Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 30

Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 30
10 • LÍFIÐ 11. MAÍ 2012 það að hann á jú húsið með byggingarréttin- um – þannig var honum seld þessi eign upp- haflega. Hitt er svo annað mál hvort ríkið og borgin hefðu átt að selja reit með byggingarrétti á í miðbæ Reykjavíkurborgar við torg almennings, en það er ekki við hann að sakast um það. Reyndar má segja að hann hafi verið með ólíkindum þolinmóður í þessu máli þar sem þetta stóð allt til fyrir mörgum árum en var hætt við vegna mótmæla. Svo er auðvitað ekkert leyndarmál að krepp- an hefur haft þau áhrif að æ erfiðara reynist fyrir tónleikahaldara að fylla húsið og þar af leiðandi að greiða aðstöðuleigu fyrir sínar uppákomur. Einnig hefur tilkoma Hörpunnar haft áhrif á rekstur staðarins. Persónulega finnst mér hið versta mál og mikil synd að svona fallegur salur hverfi. Nú ertu kölluð Inga á Nasa. Hvað verður um Ingu á Nasa þegar ballinu lýkur? Inga á Nasa verður friðuð, stoppuð upp og sett út á Austurvöll með Jóni Sigurðssyni þegar ballinu lýkur. En svona í fullri alvöru þá veit ég ekki hvað verður um mig, en eitt veit ég og það er að mig langar til að taka mér smá frí. Annars borgar sig að segja sem minnst, ætli ég verði ekki farin að gera eitthvað annað spennandi og skemmti- legt fljótlega. Þú hefur oft á tíðum vakið athygli fyrir fatnað þinn og útlit – seturðu mikla pressu á þig við að líta vel út sem andlit staðarins. Ég hef alltaf frá því ég man eftir mér viljað vera flott klædd og ekki minnkaði það með tilkomu Nasa enda bara svo miklu skemmtilegra að vera klædd í stíl við hvert „gigg“. Hver verður hinsta uppákoma NASA? Staðnum verður lokað 1. júní næstkomandi og síðasta „giggið“ verður Eurovision-partý Páls Óskars þann 26. maí. Eitthvað að lokum? Það eina sem er öruggt er að það er ekkert öruggt. PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON Borgin á að kaupa Nasa Framhald af síðu 8 Hvernig líður þér með það að nú sé skemmti- staðurinn Nasa allur? Mér líður auðvitað hræði- lega. Það er ömurlegt að starfsemin í þessu fallega húsi fái ekki að halda áfram. Það er enn alvarlegra mál að það er ekkert svona hús að koma í staðinn. Engin lausn er í sjónmáli um hvað verður um alla þá viðburði sem Nasa hefur hýst. Gay Pride, Euro- vision, Airwaves og ótal útgáfutónleikar hryntónlist- armanna eru í uppnámi. Þeir sem halda að þess- ir viðburðir séu allir á leiðinni í Hörpu, vita ekkert um hvað þeir eru að tala. Hvað þýðir þetta fyrir tónlistarmenn eins og þig , Sálina, Gus Gus og fleiri? Þegar Nasa hverf- ur, mun koma stórt gat í tónlistarflutning hryntónlist- ar í Reykjavík. Ef borgarstjórn vill að þetta hótel rísi, þá verður hún að sjá sóma sinn í því að finna lausn á þessu vandamáli, áður en bygging hótelsins hefst. Er einhver staður á Íslandi sem er sambæri- legur Nasa í augnablikinu. Nei. Nasa er einstakt húsnæði. Það er ekkert að koma í staðinn fyrir það. Ég er með lausn á þessu. Borgin er að fara hér eftir deiliskipulagi Davíðs Oddsonar síðan á breiktíma- bilinu um 1985. Þá var samþykkt að hótel mætti rísa á þessum reit. Almenningur á að krefjast þess að deiliskipulagi á þessum reit verði breytt, t.d með undirskriftalista. Þessi reitur á að vera eign almenn- ings, ekki einkamál eins lóðareiganda. Húsfriðun- arnefnd á að friða Nasa, ekki bara að utan, held- ur líka innréttingarnar. Borgin á að kaupa Nasa og reka sem Félagsheimili Reykjavíkur, með svipaðri starfsemi og hefur verið á Nasa síðustu tíu ár. Slíkur rekstur getur alveg staðið undir sér. Svo mætti laga og fegra Landsímahúsið sjálft og gera það fallegra að innan sem utan. Starfsemin í gamla Landsíma- húsinu yrði svo auðvitað: Skrifstofur Alþingis, því Alþingi sárvantar húsnæði. Skrifstofutíma lýkur um svipað leyti og hljóðprufur hefjast inni á Nasa. Eng- inn mun trufla neinn. Borgin getur svo útvegað Pétri Þór Sigurðssyni aðra lóð undir hótelið sitt sem hann dreymir um að byggja.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.