Fréttablaðið - 11.05.2012, Side 46

Fréttablaðið - 11.05.2012, Side 46
11. maí 2012 FÖSTUDAGUR26 lifsstill@frettabladid.is 26 Kokkastéttin var áður full af hálfgerðum hroka- pungum, en nú sækja sífellt fleiri stúlkur í starfið. Þær lyfta upp meðaltalinu í bekkjum sínum og á vinnu- markaðnum eru þær oftar en ekki í heimsklassa. MATREIÐSLA „Þessar stúlkur hafa skarað fram úr og meðal annars lyft meðaltalinu í bekkjunum þó þær séu fáar,“ segir Ragnar Wessman, fagstjóri matreiðslu í Hótel- og matvælaskólanum. Stúlkur skrá sig í auknum mæli til náms í matreiðslu við Hótel- og matvælaskólann miðað við áður. Ragnar segir fáar konur hafa sótt í starfið hingað til en að á síðustu árum hafi orðið breyting þar á. „Það sem hefur aðgreint Ísland frá hinum Norðurlöndunum í þessum málum er að fáar stúlkur sækja í þetta nám,“ segir hann. „Það er margt sem gæti spilað þar inn í, til dæmis er menning- in innan bransans mjög karllæg og margir af gömlu kokkunum eru, eins og maður segir á góðu kokkamáli, hálfgerðir hroka- pungar. Í Svíþjóð og Danmörku eru jafnmargir kven- og karl- kynsnemendur en hér hefur þetta verið ein stúlka á önn innan um tólf til fjórtán stráka. Síðustu tvö árin hefur þetta breyst eitthvað og nú eru konur einn þriðji nem- enda.“ Ragnar segir stúlkurnar hafa plumað sig vel bæði í náminu og úti á vinnumarkaðinum. „Þær fara út á vinnumarkaðinn og eru taldar í hópi fagmanna í heims- klassa og standa nú í fremstu víg- línu,“ segir hann. Aðspurður segir hann ekki úti- lokað að vinsældir og velgengni landsliðskokksins Hrefnu Rósu Sætran hafi eitthvað með þessa hugarfarsbreytingu að gera. „Án þess að segja það með vissu þá gæti sýnileiki hennar og ímynd hafa orðið til þess að konur líti á þetta nám sem tækifæri og átti sig frekar á möguleikunum.“ Íslenskum kokkum hefur vegn- Fleiri stúlkur læra kokkinn að vel á alþjóðlegum vettvangi og að sögn Ragnars eru þeir vinsæl- ir starfskraftar á veitingahúsum úti í heimi. „Þeim hefur vegnað mjög vel og ég held að því sé að þakka hæfilegri blöndu af starfs- námi og grunnnámi. Við kennum teoríuna og svo fá þau tækifærið til að nota ímyndunaraflið á veit- ingastöðunum.“ sara@frettabladid.is FLEIRI STÚLKUR Í KOKKINN Ragnar Wessman, fagstjóri matreiðslu í Hótel- og matvælaskólanum, segir fleiri stúlkur nema matreiðslu nú en fyrir þremur árum. Hann segir þær jafnframt hafa hækkað meðaltal einkunna í bekkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÁIR HÖFÐU TRÚ Á KVENKYNSNEMA Hrefna Rósa Sætran, eigandi veitingastaðanna Fiskmarkaðarins og Grill- markaðarins, kveðst hafa orðið vör við þennan gamalgróna hugsunarhátt þegar hún sótti um nemastöðu á sínum tíma. Hún sótti um á mörgum af vinsælustu veitingastöðum borgarinnar en fékk dræmar undirtektir á þeim flestum. Að lokum fékk hún starf á Apótekinu og segir yfirkokkinn, Sigurð Ólafs- son, hafa veitt henni tækifærið sem hún þurfti. „Sigurður hafði mikla trú á mér og gaf mér tækifæri til að sanna mig. Ég komst að því eftir að ég hætti á Apótekinu að sumir starfsmenn staðarins höfðu veðjað um hversu lengi ég myndi þrauka í starf- inu, það var allt frá einum degi og upp í tvær vikur. En enginn taldi mig þrauka lengur en það,“ rifjar Hrefna Rósa upp. Hún segir þó við- mótið hafa breyst mikið síðan þá, ekki aðeins í kokkastéttinni heldur í samfélaginu öllu. „Ég held það séu konur að læra á flestum veitingastöðum borgarinnar í dag og það er jákvæð þróun. Ég er til að mynda með þrjá kvenkynsnema á Fiskmarkaðnum og tvær á Grillmarkaðnum.“ KYNLÍF Nýverið skrifaði ég um kynlíf í kjölfar barneigna og fékk margvíslegar athugasemdir sem sneru margar að skorti á kynlöng- un. Kynlöngun er ögn flókið fyrir- bæri því vitneskjan er takmörkuð og margir þættir hafa áhrif á hana. Ein kenning um kynlöngun karla er sú að þeir taki fyrst eftir stinnu typpi og fari þá að hugsa um kynlíf. Stinning á sér stað oft yfir daginn og því gæti misskilningurinn um kynlífsóða karlmenn stafað af því að þeir veita líkamlegu ástandi sínu athygli og í kjölfarið túlka stinn- inguna sem kynlöngun og fara þá að hugsa um kynlíf. Hjá konum er þessu oft öfugt farið því kynferðisleg æsing kvenna, blaut píka, er ekki jafn greinileg og stinning lims. Fæstar konur stinga reglulega fingri upp í leggöng yfir daginn til að kanna rakastigið. Þannig að, þegar konur ætla koma sér í stuð þá byrja þær oftar en ekki á beinni örvun, líkam- legri og andlegri, og fara í kjölfarið að finna fyrir löngun. Til að hefja kynlíf þarf að byrja á því að finna út hvað kemur manni í stuð og það gerist með fantasíum. Fín leið til að komast að því hvaða fantasíur kitla mann er klám. Mömmurnar sem spyrja mig um klám langar ekki að horfa á týpískt stórra-sílíkonbrjósta-bikinífars- klám og því hef ég mælt með kven- kyns klámleikstjórunum Candida Royalle fyrir rómantískt klám, og Tristan Taormino, sem sérhæfir sig í fræðslu í bland við kynlífssenur. Sumum finnst þetta myndræna klám fráhrindandi svo þá má nýta sér tæknina og hlaða niður einni eldheitri erótík inn á lesbrettið. Nýj- asta nýtt í bókmenntaheiminum er „mömmuklámið“; erótískar skáld- sögur skrifaðar af mömmum, og þar er Fifty shades of Grey sú heit- asta. Ég er ofsalega hrifin af eró- tískum bókmenntum og eyddi einu sumri í að rannsaka eldgömul rit og hafði einstaklega gaman af. Þar mátti finna allt sem ég hafði séð í klámi og svo miklu meira. Það var eitthvað við það að lesa þetta hljóð- laust, svart á hvítu, í miðri mann- mergð á Austurvelli. Bækur leyfa okkur að búa til myndræna fantasíu sem svo má nýta sem handrit í raun- verulegu kynlífi. Þú veist hvernig það er með góða bók, hana getur verið erfitt að leggja frá sér og því gæti þetta verið lausn á kynlöngun einhverra mæðra. Þá langar mig að nýta tæki- færið og benda drengjum á að þeir megi gjarnan lesa meira. Ef erótík kveikir ekki lestraráhuga ungra drengja þá veit ég ekki hvað gerir það. Mömmuklám í mæðradagsgjöf KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is STUÐLA AÐ HVÍTARI TÖNNUM Neysla á eplum og gulrótum getur stuðlað að hvítari tönnum og einnig lyftiduft og sítrónusafi. Þetta kemur fram á vef Huffington Post, sem leitaði til sérfræðinga um það hvernig best væri að hvítta tennurnar á náttúrulegan hátt. FANTASÍUR Klám getur hjálpað fólki að átta sig á fantasíum sínum, að mati Siggu Daggar. LOKSIN S FÁANLE GAR AFTUR ! ÁLFASALAN 2012 í s er helgarblaði Fréttablaðsin Krakkasíðan krakkar@frettabladid.is Páli Rúnari Bjarnasyni finnst skrýtið að geta andað í vatni MUNDU AÐ EFNI SEM ÞÚ SETUR Á NETIÐ ER ÖLLUM OPIÐ, ALLTAF! www.saft.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.