Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 51
FÖSTUDAGUR 11. maí 2012 31
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
Hásteinsvöllur, áhorf.: 768 Kristinn Jakobsson (7)
0-0
Skot (á mark): 15-9 (3-0)
Varin skot: Abel 0 - Sigmar Ingi 3
ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 6 - Arnór Eyvar
Ólafsson 6, Brynjar Gauti Guðjónsson 7, Rasmus
Christiansen 6, Matt Garner 7 - George Baldock
5 (75. Eyþór Helgi Birgisson -), Guðmundur
Þórarinsson 6, Ian David Jeffs 5 (70. Aaron Spear
5) - Tony Mawejje 3, Þórarinn Ingi Valdimarsson 6,
Christian Steen Olsen 5 (84. Víðir Þorvarðarson -).
BREIÐABLIK (4-3-3): Sigmar Ingi Sigurðarson 7,
Tómas Óli Garðarsson 6 - *Renee Troost 7 - Sverrir
Ingi Ingason 7 - Kristinn Jónsson 7, Finnur Orri
Margeirsson 5, Andri Rafn Yeoman 4, (46. Árni
Vilhjálmsson 5), Petar Rnkovic 4, (60. Þórður S.
Hreiðarsson 6), Jökull I Elísabetarson 5, Haukur
Baldvinsson 5 (85. Arnar Már Björgvinsson -), Elfar
Árni Aðalsteinsson 5.
FÓTBOLTI Markalaust jafntefli var
niðurstaðan í fyrsta heimaleik ÍBV
þetta tímabilið en Breiðablik sóttu
Eyjamenn heim í gær. Þrátt fyrir
fjörlegar lokamínútur einkenndist
leikurinn fyrst og fremst af
miðjuþófi og gagnslausum
sóknaraðgerðum.
Eyjamenn voru þó reyndar
nokkuð sprækir í upphafi leiks og
hefðu þeir nýtt eitt af þeim færum
sem þeir fengu þá hefði leikurinn
sjálfsagt þróast á annan máta.
„Það hefði breytt leiknum.
Leikmenn hefðu róast og allt
hefði gengið betur,“ sagði
Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV
eftir leikinn. Hann setti svo þrjá
framherja inn á í seinni hálfleik
en án árangurs. „Við reyndum allt
sem við gátum. Það tekst samt
ekki alltaf. Ég er samt þokkalega
sáttur við spilamennskuna og það
eina sem vantaði var markið.“
Breiðablik er nú án sigurs í
fyrstu tveimur umferðunum
þriðja árið í röð. „Við ætlum
okkar auðvitað þrjú stig í
hverjum leik. En svona hefur
þetta verið hjá okkur á vorin og
veit ég ekki af hverju. Kannski
finnst leikmönnum erfitt að
venjast grasinu eftir mikla
gervigrasnotkun,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Blika. Þeir
grænu hafa þar að auki ekki enn
skorað í ár en Ólafur hefur ekki
miklar áhyggjur af því.
„Við fengum færi í þessum leik
og það var það sem vantaði hjá
okkur síðast. Nú er næsta skref að
nýta færin,“ sagði hann og sagði að
umræðan um sóknarmenn liðsins
hefði mögulega haft áhrif.
„Þegar þeir heyra að þeir
geta ekki skorað þá hlýtur það
að setjast á þá. En það eru bara
tveir leikir búnir og menn verða
að ýta svona hugsunum frá sér.
Ég hef fulla trú á því að okkar
sóknarmenn geti skorað en þeir
þurfa að hafa hana líka.“
Ian Jeffs segir það vonbrigði
fyrir Eyjamenn að hafa aðeins
fengið eitt stig úr fyrstu tveim-
ur leikjunum. „Þegar ég sá hvaða
liðum við myndum mæta í fyrstu
tveimur umferðunum sá ég mögu-
leika á því að vinna báða leikina.
En það tókst ekki. Okkur gekk
ágætlega að spila boltanum en
svo vantaði kraft á síðasta þriðj-
ungnum til að klára sóknirnar. Það
þurfum við að laga.“ - esá
Eyjamenn og Selfyssingar skildu jafnir í markalausum leik á Hásteinsvelli í Pepsi-deild karla í gær:
Vertíðin byrjar rólega í Vestmannaeyjum
ÓLAFUR KRISTJÁNSSON Blikar hafa
ekki náð að vinna í fyrstu tveimur
umferðunum undanfarin þrjú sumur.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁLFASALAN
2012
Styrkjum börn og
fjölskyldur sem fljást
vegna áfengis- og
vímefnaneyslu
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gói og Baunagrasið
Einn Gói, þrjár baunir og margfaldur Þröstur Leó
verða að heilu ævintýri. Risinn, gamla konan, sjálfspilandi
harpan, hænan sem verpir gulleggjum og allir þorpsbúarnir
mæta til leiks á litla sviði Borgarleikhússins.
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Leikhúsglaðningur fyrir alla fjölskylduna!
Fréttatíminn
Morgunblaðið
Lau 12/5 kl. 13:00 Örfá sæti
Lau 12/5 kl. 14:30 Örfá sæti
Sun 20/5 kl. 13:00 Örfá sæti
FÓTBOLTI Íslenska 17 ára landsliðið
í fótbolta tapaði í gær 0-1 fyrir
Georgíu í lokaleik sínum í sínum
á EM í Slóveníu.
Íslenska liðið hefði komist í
undanúrslit hefði strákunum
tekist að jafna leikinn en
sigurmark Georgíumanna kom
sex mínútum fyrir leikslok.
Þjóðverjar unnu 3-0 sigur á
Frökkum í hinum leik riðilsins
og enduðu með fullt hús stiga.
Georgíumenn fengu fjögur stig,
Frakkar tvö stig og íslenska liðið
rak lestina með eitt stig.
Ef íslensku strákunum hefði
tekist að jafna leikinn þá hefðu
Ísland, Frakkland og Georgía
öll verið jöfn að stigum. Ísland
og Frakkland væru þá með
jafnan og bestan árangur í
innbyrðisleikjum liðanna þriggja
en Ísland hefði farið áfram á
betri markatölu í öllum leikjum
riðilsins. - óój
Íslenska 17 ára liðið á EM:
Einu marki frá
undanúrslitum