Fréttablaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 19
PITSUR
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Kynningarblað
Spagettípitsa,
hráfæðispitsa, Happspitsa,
fyrsta pitsan, eldbakaðar
pitsur.
Veitingastaðurinn Eldofninn er lítill og vinalegur pitsu-staður, staðsettur í Grímsbæ
við Bústaðaveginn. Þar er boðið
upp á girnilegar eldbakaðar pitsur
eftir ítalskri forskrift. „Þetta er lítill
fjölskyldustaður, rekinn af okkur
hjónunum og strákunum okkar og
svo að sjálfsögðu erum við með frá-
bært aðstoðarfólk,” segir Eva Karls-
dóttir sem er eigandi ásamt manni
sínum Ellert A. Ingimundarsyni
leikara.
Fyrsta flokks hráefni
Hráefni er ekki bara hráefni, eru
einkennisorð sem höfð eru að
leiðar ljósi hjá Eldofninum og því
er það valið af kostgæfni. „Hrá-
efnið skiptir öllu máli, til dæmis
er enginn sykur notaður í pitsu-
sósuna heldur plómutómatar sem
eru náttúrulega sætir, en sósan er
löguð daglega ásamt deiginu. Best
geymda leyndarmál Eldofnsins er
svo hvítlauks- og eldofnsolíurnar
sem einnig eru gerðar á staðnum.“
Hakkið, sem er án allra íblönd-
unarefna, kemur frá Kjöthöllinni og
er steikt á staðnum, kletta salatið er
frá Hveratúni og basilíkan kemur
beint frá bónda. „Basil er órjúfan-
legur partur af Margarítu special,
rauð sósan, mozzarella- sneiðar,
ólífuolía og basillauf, sem sagt
rauður, hvítur og grænn, sem eru
litir ítalska fánans.“
Eldofn og kaffi frá Ítalíu
Árið 2008 fóru þau hjónin til Ítalíu
og ætluðu að finna el-
dofn og skoða ítalska
pitsustaði. „Við fórum
í sex verksmiðjur að
skoða ofna áður en
við ákváðum að kaupa
ofninn okkar og að
sjálfsögðu borðuðum
við svo pitsur í öll mál.
Eldofninn sem v ið
keyptum er með snún-
ingsplötu sem auð-
veldar jafna bökun
og minnkar líkur á
að pitsurnar brenni
við. Þannig getum við
útbúið fyrsta f lokks eldbakaðar
pitsur og veitt viðskiptavininum
óskipta athygli í leiðinni áhyggju-
laust.“
Eldofninn selur einnig sérinn-
flutt kaffi frá Ítalíu sem þau hjónin
fundu fyrir tilviljun á ferðalagi sínu.
„Við ætluðum bara að taka nokkur
kíló af kaffi með heim og rákumst
inn í fjölskyldufyrirtækið Italcaffé í
Ceperana í La Spezia héraðinu. Þeir
vildu endilega að við myndum selja
kaffið þeirra á Íslandi. Okkur leist
vel á og slógum bara til.“ Sífellt fleiri
kúnnar koma núorðið á Eldofninn
eingöngu til þess að kaupa sér kaffi
eða baunir til að taka með heim.
Ánægður viðskiptavinur besta
auglýsingin
Hjá Eldofninum er mikið lagt upp
úr því að veita góða þjónustu og já-
kvætt og persónulegt viðmót haft að
leiðarljósi í öllum samskiptum við
kúnnann. „Hingað koma reglulega
nýir viðskiptavinir eingöngu vegna
góðrar umfjöllunar frá öðrum,
þannig að ánægður viðskiptavinur
er besta auglýsingin,“ segir Eva stolt
af orðspori Eldofnsins.
Tilboð og opnunartímar
Ýmis tilboð eru í gangi á Eld-
ofninum. „Við erum með hádegis-
tilboð á virkum dögum; pitsa með
tveimur áleggstegundum og súper-
dós og svo er tíu prósent afsláttur
þegar fólk sækir.“
Ekki er boðið upp á heimsend-
ingu nema um stórar pantanir sé
að ræða. Eldofninn er
opinn frá klukkan 11.30
t i l 21 þriðjudaga t i l
fimmtudaga og til 22 á
föstudögum. Á laugar-
dögum er opið frá 17-22
og á sunnudögum frá
17-21 en á mánudögum
er lokað. Á heimasíðu
Eld ofnsins, eldofninn.
is, er hægt að skoða mat-
seðilinn ásamt fleiru en
einnig er Eldofninn að
finna á facebook.
Hráefnið skiptir öllu máli
Pitsustaðurinn Eldofninn í Grímsbæ við Bústaðaveg er vel falið leyndarmál í miðju íbúðahverfi sem býður upp á vinalegt
andrúmsloft og eldbakaðar pitsur í hæsta gæðaflokki. Mikið er lagt upp úr persónulegri og góðri þjónustu.
Öflugur eldofn frá Ítalíu er í Eldofninum í Grímsbæ. Hér eru eigendurnir, þau Ellert og
Eva. MYND/RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Vinalegur staður í miðju íbúðahverfi.
Sérinnflutt kaffi frá Ítalíu er
alveg málið eftir matinn.
Best geymda leyndarmál Eldofnsins er hvítlauks- og Eldofnsolían með hinum frábæru eldbökuðu pitsum.