Fréttablaðið - 22.05.2012, Side 15

Fréttablaðið - 22.05.2012, Side 15
Reynslubolti – þarf að vera sóknarmiðaður Viðskiptaþróunarstjóri Við leitum að öflugum stjórnanda, með mikla reynslu af flugrekstri og flugheiminum almennt. Viðkomandi mun annast samskipti við helstu samstarfsaðila, þróa ný og spennandi viðskiptasambönd og finna sóknarfæri fyrir WOW air. Viðskiptamenntun, leiðtogahæfileikar, ævintýra- þrá og brennandi áhugi á flugi eru ótvíræðir kostir. Markaðshetja – sem þarf lítinn svefn Vef- og verkefnastjóri í markaðsdeild Við leitum að hörkuduglegri og hugmyndaríkri markaðs- manneskju til að hafa yfirumsjón með vef WOW air, auk þess að verkefnastýra markaðsátökum hér heima og erlendis. Þarf að hafa háskólagráðu í markaðsfræði, smitandi áhuga og reynslu af markaðsmálum og vef- umsjón, auk þekkingar á vefumsjónarkerfum, s.s. Drupal. Mikið keppnisskap er skilyrði og viðkomandi þarf að hafa unun af því að skjótast milli heimshorna í vinnutímanum. Forritunargúrú – þarf að skilja tölvur Forritari vefsvæða WOW air Við viljum ráða úrræðagóðan forritara í fjölbreytt starf við þróun og viðhald vefsvæða og bókunarvélar – og til að aðstoða notendur. Háskólagráða í tölvunarfræði eða haldgóð reynsla í hugbúnaðargerð er skilyrði auk þess sem viðkomandi þarf að kunna góð skil á .Net (VB, C#), CSS/HTML, Jquery, Javascript, MS SQL, PHP, Drupal og öðru því sem við hin skiljum ekki. Ferðamálafrömuður – þarf að vera snöggur að pakka Verkefnastjóri hjá WOW ferðum Við leitum að hugmyndaríkri manneskju í framleiðslu og skipulagningu pakkaferða hjá WOW ferðum. Þarf að hafa reynslu og þekkingu á pakkaferðum fyrir hópa og einstaklinga, úrvinnslu þeirra og utanumhald. Ekki spillir fyrir að hafa einlægan áhuga á ferðalögum, mikið keppnis- skap og skemmtilega sýn á lífið og tilveruna. Samskiptasérfræðingur – þarf að vera með flug á heilanum Starfsmaður í flugrekstrardeild Starfið er fjölbreytt og felur í sér samskipti við flugvelli, flugafgreiðsluaðila, flugrekendur og aðra samstarfsaðila. Mikilvægt er að umsækjandi sé jákvæður, lipur í sam- skiptum og moldríkur af þjónustulund. Minnst 2-3 ára reynsla í flugumsjónar- og flugafgreiðslustörfum er skilyrði auk menntunar og tungumálakunnáttu sem nýtist í starfinu. Þjónustuliðsauki – þarf að kunna að brosa Starfsmaður í þjónustudeild Við leitum að þjónustuliprum og orkumiklum einstaklingi sem hefur óendanlega gaman af mannlegum samskiptum og öllu því sem snýr að flugi. Þarf að vera jákvæður, ábyrgur og stútfullur af ævintýraþrá. Skilyrðin eru stúdentspróf, reynsla af sölu- og þjónustustörfum og almenn lífsgleði. Fjármálasnillingur – þarf að kunna að reikna Starfsmaður á fjármálasviði Þarf að kunna skil á bókhaldi, afstemmingum, skýrslu- og reikningagerð og öðru skemmtilegu. Viðskiptamenntun er nauðsyn, góð og farsæl reynsla af Navison æskileg og viðkomandi má ekki vera haldinn tölvufælni af neinu tagi. Söluséní – þarf að vera söluhvetjandi Starfsmaður á sölusviði Þarf að hafa vit á tekjustýringu, áætlanagerð, verðstýringu og söluumsjón. Starfið felur í sér mikil samskipti við ferða- heildsala. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði, sem og leikni í Excel. Sjálfstæð vinnubrögð, vandvirkni og bullandi þjónustulund þurfa að fylgja. byrja með okkur? að skapandi og skemmtilegu fólki í eftirtalin störf Ekki hika við að senda umsókn á starf@wowair.is. Höfðatún 12 105 Reykjavík www.wowair.is wowair@wowair.is Ísland / Iceland +354 590 3000

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.