Fréttablaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 22. maí 2012 13 Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svo- kallað viðbótarálag sem þeir vel- flestir hafa lagt á síðastliðið ár eða svo. Fram hefur komið að sérfræðilæknar hafi verið samn- ingslausir í rúmt ár og að ekki hafi farið fram neinar viðræð- ur milli aðila um nokkurt skeið. Hins vegar hefur verið sett reglu- gerð sem hefur verið endurnýjuð reglubundið síðastliðna mánuði og tryggir greiðsluþátttöku ríkisins í sjúkrakostnaði einstaklingsins samkvæmt síðasta samningi milli aðila. Vert er að benda á þá mismunun sem felst í því að aðrir aðilar sem eru með virka samninga taka ekki aukagjöld af sjúklingum sínum, samanber einkareknar heilsu- gæslur í Salahverfi, Lágmúla eða Læknavaktina svo dæmi séu tekin. En svo virðist sem slíkt gangi nær óáreitt fyrir sig í heilt ár af hálfu sérgreinalækna undir vökulu auga velferðarráðuneytisins. Komið hafa fram kvartanir vegna þess að aukinn kostnaður leggst á sjúklinga vegna viðbótar- gjalda og einnig hefur verið hvatt til þess að ríki og Læknafélag Reykjavíkur, sem fer með samn- ingsumboð fyrir hönd sérfræði- lækna innan Læknafélags Íslands, slíðri sverðin og komist að niður- stöðu. Formaður samninganefndar lækna sagði í fréttum að annað hvort hækkuðu menn gjöldin eða starfssemi sérfræðilækna legðist af í núverandi mynd. Daginn eftir kom fram hjá velferðarráðherra að til stæði að koma á þjónustu- stýringu sem ekki var tilgreint frekar í hverju fælist enda beðið niðurstöðu nefndar með tillögur þessa efnis. Þá var í upplagi sömu fréttar tilgreint að ekki stæði til að auka kostnað vegna sérfræði- lækna né hækka laun þeirra á þessu ári. Mig rámar í að aðrir ráðherrar hafi lýst yfir svipuðum fyrirætlunum en án árangurs. Það er því ljóst að það stefnir í einhvers konar uppgjör milli aðila og líklegt að ríkið muni reyna að finna leiðir til þess að viðhalda þeirri góðu þjónustu sem sérfræði- læknar hafa veitt án þess þó að borga meira fyrir hana. Í því felst væntanlega aukið álag á opinbera kerfið og þá sérstaklega heilsu- gæsluna sem hefur verið veikluð undanfarið eins og fram hefur komið vegna mönnunarvanda. Lausn vandans er ekki ein- föld og sérlega flókin þegar við- kvæm starfsemi sem þessi byggir á starfsmönnum ríkisins og í sama mund rekstraraðilum einka- fyrirtækja með hagsmuni slíkra að leiðarljósi. Sú hótun að leggja niður starfsemi kæmi sér verulega illa fyrir utanspítalaþjónustu. Á sama tíma yrðu líklega uppsagnir á sjúkrahúsum og landflótti lækna aukinn þar sem þetta eru sömu aðilarnir og því tvöföld áhætta fyrir ríkið að taka á vandanum. Það liggur þó fyrir að sjúk- lingar munu ekki vilja sætta sig við að greiða hærri gjöld og ríkið verður að koma til móts við þá sem eru sjúkratryggðir og standa við loforð sín um að veita þeim bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Á sama hátt liggur fyrir að læknar sem ekki eru á samningi munu líklega ekki treysta sér til að starfa á stofu þar sem tekjuöryggið er frá þeim numið með slíkum hætti. Þeir munu því mögulega hætta, fara á samning eða reyna fyrir sér í hreinum einkarekstri. Felst lausn velferðarráðherra mögulega í því að taka áhættuna og neita greiðslum til þeirra sem eru utan samninga? Hann ræður augljóslega ekki við sérfræði- læknana síðastliðin ár frekar en Ögmundur eða Álfheiður og því sennilega affarasælast að semja og klára málið, eða hvað? Felst lausn vel- ferðarráðherra mögulega í því að taka áhættuna og neita greiðslum til þeirra sem eru utan samninga? Velferðarráðherra og sérgreinalæknar? Teitur Guðmundsson læknir HEILSA Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Frétta- tímann og í grein í Fréttablaðinu sagt mig hafa brotið siðareglur lögmanna og vegið að starfsheiðri hennar sem lögmanns í síðasta pistli mínum á Pressunni. For- saga málsins er sú að Helga Vala hafði í viðtali á RÚV sagt héraðs- dómara hafa brotið gegn ungum mönnum sem komu til landsins á fölsuðum skilríkjum með því að dæma þá til fangelsisrefsingar. Vísaði hún í því sambandi til 31. gr. flóttamannasamnings Sam- einuðu Þjóðanna sem ekki hefur verið lögfestur hér á landi. Ég taldi í mínum pistli þessa túlkun undarlega og í engu sam- ræmi við skýran texta ákvæð- isins. Þar að auki hefur Hæsti- réttur margdæmt þá til refsingar sem reynt hafa að koma til lands- ins með því að framvísa fölsuð- um skilríkjum án þess að gefa sig fram við yfirvöld. Um þetta eru því skýr og fjölmörg dóma- fordæmi. Með hliðsjón af því og að Helga Vala hefur látið málefni hælisleitenda sig varða í pólitísku starfi sem flokksmaður og vara- þingmaður Samfylkingarinnar velti ég því fyrir mér hvort lög- fræðingurinn Helga eða stjórn- málamaðurinn Vala væri að tjá sig um dóminn. Þegar Helga Vala gefur álit í fjölmiðlum á málum sem til umræðu eru verður hún að vera undir það búin að einhver and- mæli henni. Skiptir þá engu máli hvort það eru félagar hennar í Lögmannafélaginu eða aðrir. Helga Vala var ekki að sinna lög- mannsstörfum þegar hún gaf álit sitt á brotlega héraðsdómaranum og túlkun á gildandi lögum og reglum. Með gagnrýni minni er ég því ekkert að vega að starfs- heiðri hennar sem lögmanns. Ég taldi bara túlkun hennar á gild- andi rétti vera ranga. Ég hef hins vegar enga ástæðu til að ætla annað en að Helga Vala sinni lög- mannsstörfum sínum af sam- viskusemi og gæti hagsmuna umbjóðanda síns í hvívetna eins og lögmönnum ber. Helga Vala segir að ég hafi kall- að hana „svokallaðan sérfræðing“ og hafi leyft mér á opinberum vettvangi að efast um þekkingu hennar í flóttamannarétti, saka- málaréttarfari og refsilögum. Ég hvorki kallaði hana „svokallað- an sérfræðing“ né efaðist ég um þekkingu hennar í flóttamanna- rétti eða öðrum greinum lögfræð- innar. Umfjöllun mín um „svokall- aða sérfræðinga“ var í tengslum við dæmalausa orðræðu Marðar Árnasonar sem tók að sér í þing- sal að vega að starfsheiðri verj- anda mannanna og taldi nær að tilefndir yrðu sérfræðingar að sunnan til að halda uppi vörnum fyrir hælisleitendur. Ég vissi ekki að Mörður ætti við samflokks- mann sinn, Helgu Völu, þegar hann talaði um sérfræðinga að sunnan. Ég hef hins vegar oft velt því fyrir mér, ótengt þessu máli, hvernig menn verða sérfræðing- ar, sérstaklega þegar þeir eru nýútskrifaðir úr skóla. En ein- hvern veginn verða sumir sér- fræðingar í öllu öðru fremur um leið og þeir opna munninn í fjöl- miðlum. Sérfræðingur að sunnan Dómsmál Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður 18.júní kl 20:00 Miðasala á harpa.is, midi.is Í miðasölu Hörpu og í síma 528 5050 Paul McCartney 70 ára Afmælistónleikar Í Eldborg Hörpu Egill Ólafsson, Gunnar Þórðarson, Andrea Gylfadóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Jakob F. Magnússon, Eyjólfur Kristjánsson, Pálmi Sigurhjartarson, Björgvin Gíslason, Tómas M.Tómasson, Eðvarð Lárusson, Ásgeir Óskarsson, Gísli Helgason, Ólafur Þórarinsson, Baddi úr Jeff Who, Magnús R. Einarsson, Þórður Árnason M iðasala hefst í dag

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.