Fréttablaðið - 29.05.2012, Blaðsíða 18
FÓLK|
HELGI JÓNAS
GUÐFINNSSON
KÖRFUBOLTI
Helgi á að baki
farsælan feril sem
körfuboltamaður.
Hann spilaði með
Grindavík og var
atvinnumaður í
Evrópu um tíma.
ÞJÁLFARI
Helgi stýrði liði
Grindavíkur til sig-
urs á Íslandsmóti
karla í körfubolta í
vetur.
STYRKTARÞJÁLFUN
Meðal íþrótta-
manna sem Helgi
hefur styrktarþjálf-
að eru Einar Hólm-
geirs son, Jón Arnór
Stefáns son, Brenton
Birming ham og Jón
Gunnar
Eysteins-
son.
HEILSA
SKEMMTILEGT
■ Fjölbreytni
Metabolic er bæði fjölbreytt
og árangursríkt æfingakerfi en
líka skemmtilegt fyrir iðkendur.
Ein vinsælasta líkamsræktin í vetur er Metabolic hópþrektímarnir. Metabolic er byggt upp þannig
að þátttakendur stjórna álaginu sjálfir
sem þýðir að þeir geta tekið þátt sem
byrjendur eða verið í mjög góðu formi.
Helgi Jónas Guðfinnsson, framkvæmda-
stjóri Metabolic og þjálfunarkennari við
ÍAK einkaþjálfunarnámið hjá Keili, segir
eitt markmiða í upphafi hafa verið að
búa til æfingakerfi sem væri í senn fjöl-
breytt og árangursríkt en líka skemmti-
legt fyrir iðkendur. „Markmið Metabolic
er að auka lífsgæði og gera hreyfingu
að tilhlökkunarefni. Rauði þráðurinn í
Metabolic er að auka efnaskiptahraða.
Þannig á virk fitubrennsla sér ekki aðeins
stað á meðan tíminn stendur yfir heldur
í marga klukkutíma eftir að tíma lýkur.“
Hver tími er um 45 mínútur. Af þeim tíma
fara 20 mínútur í upphitun og niðurlag.
„Við byrjum tímana á dýnamískri upp-
hitun til að gera fólk tilbúið fyrir átökin.
Þannig stuðlum við að lágmarksmeiðsla-
hættu en við leggjum gífurlega áherslu
á öryggi í allri þjálfun. Síðan tökum við
spretti, hoppum aðeins, köstum hlutum
og lyftum lóðum. Útgangspunkturinn er
að þjálfa mis munandi orkukerfi líkamans
og við vinnum mest í stöðvaþjálfun.“
Tíminn sem unnið er undir álagi er
aðeins um 25 mínútur en er að sama
skapi mikil keyrsla. Hver og einn stjórnar
alfarið æfingaálaginu og þjálfarar gæta
þess að finna rétt erfiðleikastig fyrir
hvern og einn.
MJÖG GÓÐAR VIÐTÖKUR
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa
að sögn Helga. „Kíló og sentímetrar
hafa hrunið í vetur en einna vænst
þykir okkur um árangurssögur frá
þeim sem voru illa á sig komnir en eru
farnir að gera armbeygjur á tánum og
spretta og sveifla köðlum í mínútu án
þess að stoppa. Fólk talar líka mikið
um minnkandi stoðkerfisverki eins
og bakverki, lækkaða forgjöf í golfi og
að það hafi náð betri tímum í lang-
hlaupum.“ Metabolic hópþrektímarnir
hófu göngu sína síðasta haust í Grinda-
vík og Reykjanesbæ. Í dag stunda yfir
300 manns Meta bolic víðs vegar um
landið en einnig er boðið upp á tímana
á Álftanesi, í Vestmannaeyjum og á
Akureyri. „Viðtökur hafa farið fram úr
björtustu vonum. Þessa dagana erum
við að skoða frekar möguleika til vaxtar
hérlendis og erlendis. Margir hafa haft
samband við okkur enda frétt að fólk
hefði rosalega gaman af þessum tímum
okkar og væri að ná miklum árangri.“
TILHLÖKKUNAREFNI
AÐ FARA Í RÆKTINA
HREYSTI Metabolic hópþrektímarnir hafa slegið í gegn í vetur. Byrjendur jafnt
sem lengra komnir stunda fjölbreyttar æfingar hlið við hlið.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
GAMAN Í RÆKTINNI
„Markmið Metabolic
er að auka lífsgæði og
gera hreyfingu að til-
hlökkunarefni,” segir
Helgi Jónas Guðfinns-
son, framkvæmdastjóri
Metabolic.
MYND/VILHELM GUNNARSSON
Nám sem nýtist þér!
SKRIFSTOFU- OG FJÁRMÁLAGREINANÁM
NÁM FYRIR FULLORÐIÐ FÓLK
Upplýsingar veitir fagstjóri
viðskipta- og fjármálagreina
í síma 594 4000/824 4114.
Netfang inga.karlsdottir@mk.is
Skrifstofubraut I
Staðbundið nám, tvær annir.
Höfuðáhersla er lögð á viðskipta-
og samskiptagreinar.
nslutímiKen
frá kl. 8:20 – 13:00.
rnám, þrjár annir.Fja
Kennt í lotum.
50+
Hagnýtt nám fyrir þá sem eru komnir
yfir fimmtugt, vilja styrkja sig í lífi og
starfi eða taka að sér ný verkefni.
Office Skills Programme for
foreigners
Nám á skrifstofubraut fyrir þá sem
ekki hafa íslensku að móðurmáli.
Sales and Service
Programme for foreigners
Nám á verslunarbraut fyrir þá sem
ekki hafa íslensku að móðurmáli.
Skrifstofubraut II
Staðbundið nám, kennslutími
frá kl. 8:20 – 13:00.
Fjarnám, þrjár annir.
Kennt í lotum.
Viðurkenndur bókari
Námið skiptist í þrjá hluta;
A) reikningshald, b) skattskil og
upplýsingakerfi og c) raunhæft
verkefni. Námið er ein önn og
undirbýr nemendur fyrir próf á vegum
efnahags- og viðskiptaráðuneytisins
til Viðurkennds bókara skv. 43. gr. laga
nr. 145/1994 um bókhald.
NÝTT NÝTT
Skipholti 29b • S. 551 0770
15% AFSLÁTTUR
AF JÖKKUM OG YFIRHÖFNUM
dæmi um merki sem eru í búðinni
2biz- Desiqual-SkunkFunk-Creme-VETO-B-Young-og fleiri góð
AFSLÁTTARSPRENGJA
BESTU BROTIN
ÚR ÞÁTTUM FM 957
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag