Fréttablaðið - 29.05.2012, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGVinnu- & öryggisfatnaður ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 20124
Vinnufatabúðin Þjarkur, sem áður var í Knarrar-vogi, flutti og sameinaðist
vinnufatadeild N1 á Bíldshöfða
9 þann fyrsta apríl síðastliðinn.
„Með þessari sameiningu varð
úr stærsta vinnufatabúð landsins
með vinnufatnað, öryggisfatnað,
einkennisfatnað og margt fleira.
Þetta eru vönduð föt fyrir allar
helstu atvinnugreinar, útgerð,
verktaka, verkstæði og fleira frá
þekktum framleiðendum,“ segir
Bjarki Jakobsson, verslunarstjóri
N1 á Bíldshöfða.
Fatamerkin sem N1 hefur til
sölu eru frá Fristad og eigin fram-
leiðsla þeirra sem heitir Kwear
ásamt nokkrum öðrum merkjum.
Fyrirtækið er með breiða línu af
skóm til sölu í þremur merkjum
Cofra, Jalas og Kwear og út frá því
fjölbreytt úrval til dæmis í öryggis-
skóm en þá er hægt að velja úr
skóm með stáltá, áltá eða fibertá.
„Við bjóðum upp á allan al-
hliða vinnufatnað, meðal annars
margar gerðir af buxum, peysum,
innanundirfatnað, kulda- og regn-
fatnað. Einnig bjóðum við mikið
úrval af öryggisvörum eins og
skóm, hjálmum, öryggisgler-
augum, heyrnahlífum, eyrna-
töppum, rykgrímum, hönskum
og mörgu fleira,“ segir hann.
Boðið er upp á tvo verðflokka
í fatnaðinum sem N1 selur. „Við
erum með ódýra línu og svo aðra
aðeins dýrari. Það er hægt að
velja úr hvað hentar hverjum og
einum,“ segir Bjarki.
Hægt er að láta merkja allan
fatnað sem keyptur er hjá fyrir-
tækinu með til dæmis merki
fyrir tækis eða nafni starfsmanns.
Merkin eru annað hvort pressuð á
eða ísaumuð í fatnaðinn.
Stærsta vinnu-
fatabúð landsins
N1 býður upp á mikið úrval af hlífðarfatnaði,
vinnufatnaði, vettlingum og öryggisskóm í
verslunum sínum um allt land. Sérvinnufatadeild
N1 er á Bíldshöfða.
UPPRUNI GALLABUXNA
Gallabuxur eiga uppruna
sinn að rekja til ítalska bæjarins
Genúa, en þar var snemma á
nítjándu öld framleitt bómullar-
efni í segl. Vegna þess hve efnið
reyndist slitsterkt var saumaður
úr því vinnufatnaður fyrir
bændur. Elstu gallabuxur sem
varðveist hafa eru frá árinu 1860
af Guiseppe Garibaldi. Efnið
slitsterka fluttist út til Evrópu
með sjómönnum frá Genúa og
reyndu franskir vefarar að búa
til eins efni. Það tókst þó ekki
en við þær tilraunir varð samt
til svipað efni, „de Nimes“ eða
denim. Gallabuxurnar breidd-
ust svo út til Ameríku seint á
nítjándu öld en Levi Strauss seldi
þá meðal annarra gallabuxur
til námuverkamanna í Banda-
ríkjunum. Heimild: Wikipedia.org
UPPRUNI RENNILÁSSINS
Rennilásar eru notaðir til að
halda ýmiss konar fatnaði saman
en eru einnig notaðir á aðrar
vörur svo sem töskur og fleira.
Elias Howe, sá sami og fann upp
saumavélina, fékk einkaleyfi fyrir
„sjálfvirkum loka á föt“ árið 1851.
Howe þróaði þó hugmyndina
ekki frekar og fjörutíu árum síðar
eða 1891 kom því á markað
rennilás, hannaður af Whitcomb
Judson, sem kallaður var „Clasp
locker“. Rennilásinn eins og við
þekkjum hann í dag var fundinn
upp af Gideon Sundback árið
1913, undir nafninu „separable
fastener“. Fyrirtækið Goodrich
Co. prófaði rennilásinn síðar á
stígvélum. Það reyndist vel og
kölluðu þeir hann nú „zipper“
sem hefur fest við rennilásinn á
ensku. Japanska fyrirtækið YKK
Co. framleiðir 7 milljón rennilása
á dag og er með 1.500 tegundir
og 427 liti af rennilásum.
Heimild: Wikipedia.org og
Vísindavefur Háskóla Íslands.
Rennilásinn eins og við þekkjum
hann í dag var fundinn upp árið 1913.
Hjá N1 er hægt að fá mikið úrval af öryggisskóm en þá er hægt að velja skó með stáltá,
áltá eða fibertá. MYND/GVA
Í verslun N1 á Bíldshöfða er stærsta
vinnufatabúð landsins með vinnufatnað,
öryggisfatnað, einkennisfatnað og margt
fleira.
MYND/GVA
MISTÖK Í VINNUFATAVALI
Það skiptir máli hvernig fólk klæðir sig í vinnunni. Það er ekkert persónulegt
heldur einungis staðreynd. Þetta á aðallega við um konur og þeirra klæðnað en
margar konur gerast sekar um ítrekuð tískuslys án þess að átta sig á því. Þetta
getur jafnvel leitt til þess að gengið er fram hjá þeim þegar þær sækja um störf
eða stöðuhækkun.
Sérfræðingar í þessum málum eru sammála um það að ein stærstu mistökin sem
konur gera er að láta sjást of mikið í brjóstaskoruna. Þeir segja það vera truflandi
og óviðeigandi. Það getur einnig haft áhrif á samstarfsfólkið ef konan klæðir sig
á of kynþokkafullan hátt. Konur í yfirmannsstöðum geta verið álitnar ekki eins
hæfar burtséð frá því hversu hæfileikaríkar þær virkilega eru.
Þannig að ef konur vilja komast áfram á vinnustaðnum ættu þær að geyma
flegnu bolina heima á meðan þær eru í vinnunni og nota þá heldur við aðrar
aðstæður.
Gallabuxur voru vinnufatnaður
ítalskra bænda og bandarískra náma-
verkamanna á nítjándu öld.
Meiri líkur eru á að
gengið verði fram hjá
konu við stöðuhækkun ef
hún klæðist flegnu.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Meira í leiðinniN1 BÍLSDHÖFÐA 9
VANDAÐUR
VINNUFATNAÐUR
9625 K2 6919
KWEAR SKÓR
7.490 kr.
7151 NA012-000
COFRA SANDALAR
11.990 kr.
9616 K2 1900
ÖRYGGISVESTI
1.650 kr.
9616 K2 JX6943
KULDAJAKKI
9.900 kr.
9623 5025-AT/C
KWEAR SMÍÐABUXUR
8.690 kr.
9628 120020
SAMFESTINGUR
8.490 kr.