Fréttablaðið - 29.05.2012, Síða 42
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR18
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
Ísland er ekki stórt land og vægi þess í alþjóðlegu samstarfi er ekki mikið. Samt
virðist stundum eins og íslenskir stjórn-
málamenn finni sig verða meiri og mikil-
vægari þegar þeir eru aðilar að alvar-
legum ákvörðunum sem hafa gríðarleg
áhrif. Þannig mátti beinlínis sjá hvernig
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson
belgdust út og stækkuðu þegar þeir fengu
að vera með í því að samþykkja árás á Írak.
Hróðugir sátu þeir og sögðu ábúðar fullir
frá mikilvægi ákvörðunar sinnar og
þess að Ísland skoraðist ekki undan
ábyrgð sinni. Minntu helst á litla
drengi sem fá að spila fótbolta með
stóru strákunum og finna eigið
mikil vægi springa út.
ÖSSUR Skarphéðinsson var ekki
síður ábúðarfullur þegar hann lýsti
stuðningi Íslendinga við hernaðar-
aðgerðir í Líbíu. Þar á bæ hefur góða
liðið, sem Íslendingar studdu, nú sett
lög um að það sé ólöglegt að móðga
líbísku þjóðina og stofnanir hennar.
Gagnrýni á byltinguna, sem
Íslendingar studdu með ráðum og
dáð, getur þýtt lífstíðarfangelsi.
OG ekki virðist þurfa typpi til
að mikilvægið vaxi við ákvarð-
anir um líf og dauða. Ekki var
annað að sjá en Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir fyndi mikið til sín þegar
hún samþykkti gagnrýnislaust áframhald-
andi hernað í Afganistan sem utanríkisráð-
herra vor.
FLESTAR þær stríðsaðgerðir sem íslensk
stjórnvöld hafa staðið að eru á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins, Nató. Þar höfum
við verið frá stofnun, enda þótti ein-
hverjum nauðsynlegt að hér væri her til að
vernda okkur gegn Sovétríkjunum. Það að
þau eru ekki lengur til hefur í engu breytt
afstöðunni, í hernaðarbandalaginu skulum
við vera. Sumt fólk þarf ekki rök fyrir að
vera í samtökum sem drepa annað fólk, það
er nefnilega svo mikilvægt.
ÍSLENDINGAR hafa á síðustu 5 árum
greitt tæpan milljarð til Atlantshafsbanda-
lagsins, eða 911 milljónir króna. Vinstri
stjórnin sem nú situr við völd stóð að
hækkun framlaga úr 87,6 milljónum króna
árið 2009, í 216,4 árið 2010. Það virðist
samrýmast nútíma vinstri stefnu að vilja
eyða meiri peningum í morð.
ÍSLAND er ekki stórt land og vægi þess
í alþjóðlegu samstarfi er ekki mikið. Það
gæti hins vegar verið það, ef íslenskir
stjórnmálamenn hefðu kjark til að sam-
þykkja ekki alla drápsleiðangra. Ísland
gæti verið rödd friðar, en er rödd hernaðar.
Mikið er það trist.
Meiri peningar í morð1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. áfengisblanda, 6. í röð, 8. ar, 9.
móðurlíf, 11. drykkur, 12. frárennsli,
14. gistihús, 16. sjó, 17. angra, 18.
annríki, 20. stöðug hreyfing, 21.
bandaríkjamaður.
LÓÐRÉTT
1. fugl, 3. klukka, 4. hagnýtt gildi,
5. atvikast, 7. fugl, 10. æxlunarkorn,
13. svif, 15. lokka, 16. ákæra, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. púns, 6. rs, 8. ryk, 9. leg,
11. te, 12. afrás, 14. hótel, 16. sæ, 17.
ama, 18. önn, 20. ið, 21. kani.
LÓÐRÉTT: 1. erla, 3. úr, 4. nytsemi, 5.
ske, 7. sefhæna, 10. gró, 13. áta, 15.
laða, 16. sök, 19. nn.
Laust hérna? Já heldur
betur!
Ívar! Pétur! Þetta gerist
ansi oft! Sniðugt! What?
Hei! Það eru tutt-
ugu mínútur eftir á
þessum stöðumæli!
Ef við verðum snöggir
að versla er möguleiki
á því að við þurfum
ekki að borga neitt!
Að versla
með þér er
eins og að
fara á hestbak
með Jesse
James, pabbi.
Ég veit ekki
með þig, en ég
er byrjaður að
svitna í
lófunum!
Já, auðvitað get
ég smækkað
þau, en ég held
að þú eigir að
vera með
stór eyru.
Lýtalækningar
Hannes minn, gerðu mér
greiða og hættu að gera
þessi pirrandi hljóð.
Ókei.
Hvers konar
pirrandi hljóð
viltu að ég geri?
Í
2012