Fréttablaðið - 29.05.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 29.05.2012, Blaðsíða 42
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR18 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé Ísland er ekki stórt land og vægi þess í alþjóðlegu samstarfi er ekki mikið. Samt virðist stundum eins og íslenskir stjórn- málamenn finni sig verða meiri og mikil- vægari þegar þeir eru aðilar að alvar- legum ákvörðunum sem hafa gríðarleg áhrif. Þannig mátti beinlínis sjá hvernig Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson belgdust út og stækkuðu þegar þeir fengu að vera með í því að samþykkja árás á Írak. Hróðugir sátu þeir og sögðu ábúðar fullir frá mikilvægi ákvörðunar sinnar og þess að Ísland skoraðist ekki undan ábyrgð sinni. Minntu helst á litla drengi sem fá að spila fótbolta með stóru strákunum og finna eigið mikil vægi springa út. ÖSSUR Skarphéðinsson var ekki síður ábúðarfullur þegar hann lýsti stuðningi Íslendinga við hernaðar- aðgerðir í Líbíu. Þar á bæ hefur góða liðið, sem Íslendingar studdu, nú sett lög um að það sé ólöglegt að móðga líbísku þjóðina og stofnanir hennar. Gagnrýni á byltinguna, sem Íslendingar studdu með ráðum og dáð, getur þýtt lífstíðarfangelsi. OG ekki virðist þurfa typpi til að mikilvægið vaxi við ákvarð- anir um líf og dauða. Ekki var annað að sjá en Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir fyndi mikið til sín þegar hún samþykkti gagnrýnislaust áframhald- andi hernað í Afganistan sem utanríkisráð- herra vor. FLESTAR þær stríðsaðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa staðið að eru á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, Nató. Þar höfum við verið frá stofnun, enda þótti ein- hverjum nauðsynlegt að hér væri her til að vernda okkur gegn Sovétríkjunum. Það að þau eru ekki lengur til hefur í engu breytt afstöðunni, í hernaðarbandalaginu skulum við vera. Sumt fólk þarf ekki rök fyrir að vera í samtökum sem drepa annað fólk, það er nefnilega svo mikilvægt. ÍSLENDINGAR hafa á síðustu 5 árum greitt tæpan milljarð til Atlantshafsbanda- lagsins, eða 911 milljónir króna. Vinstri stjórnin sem nú situr við völd stóð að hækkun framlaga úr 87,6 milljónum króna árið 2009, í 216,4 árið 2010. Það virðist samrýmast nútíma vinstri stefnu að vilja eyða meiri peningum í morð. ÍSLAND er ekki stórt land og vægi þess í alþjóðlegu samstarfi er ekki mikið. Það gæti hins vegar verið það, ef íslenskir stjórnmálamenn hefðu kjark til að sam- þykkja ekki alla drápsleiðangra. Ísland gæti verið rödd friðar, en er rödd hernaðar. Mikið er það trist. Meiri peningar í morð1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. áfengisblanda, 6. í röð, 8. ar, 9. móðurlíf, 11. drykkur, 12. frárennsli, 14. gistihús, 16. sjó, 17. angra, 18. annríki, 20. stöðug hreyfing, 21. bandaríkjamaður. LÓÐRÉTT 1. fugl, 3. klukka, 4. hagnýtt gildi, 5. atvikast, 7. fugl, 10. æxlunarkorn, 13. svif, 15. lokka, 16. ákæra, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. púns, 6. rs, 8. ryk, 9. leg, 11. te, 12. afrás, 14. hótel, 16. sæ, 17. ama, 18. önn, 20. ið, 21. kani. LÓÐRÉTT: 1. erla, 3. úr, 4. nytsemi, 5. ske, 7. sefhæna, 10. gró, 13. áta, 15. laða, 16. sök, 19. nn. Laust hérna? Já heldur betur! Ívar! Pétur! Þetta gerist ansi oft! Sniðugt! What? Hei! Það eru tutt- ugu mínútur eftir á þessum stöðumæli! Ef við verðum snöggir að versla er möguleiki á því að við þurfum ekki að borga neitt! Að versla með þér er eins og að fara á hestbak með Jesse James, pabbi. Ég veit ekki með þig, en ég er byrjaður að svitna í lófunum! Já, auðvitað get ég smækkað þau, en ég held að þú eigir að vera með stór eyru. Lýtalækningar Hannes minn, gerðu mér greiða og hættu að gera þessi pirrandi hljóð. Ókei. Hvers konar pirrandi hljóð viltu að ég geri? Í 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.