Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.07.2012, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 03.07.2012, Qupperneq 2
3. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR2 NÝ BÓK FRÁ HUGLEIKI EYÐILEGGING Íslamskir uppreisnarmenn í norðurhluta Mali ráðast á grafhýsi. NORDICPHOTOS/AFP MALI, AP Herskáir íslamistar hófu um helgina víðtæka eyðileggingu á menningarminjum í Timbúktú, bæði bænahúsum múslíma og grafhýsum helgra manna. Þeir segja húsin, sem eru á menningarminjaskrá Sam einuðu þjóðanna, notuð til hjáguða dýrk- unar og hyggjast útrýma þeim áður en sharia-lög múslíma verða innleidd. Oumar Ould Homaha, talsmaður uppreisnarliðsins, sagð- ist ekki hafa minnstu áhyggjur af áhrifum eyðileggingarinnar á ferðamennsku í landinu. - gb Uppreisnarmenn í Mali: Fornar minjar lagðar í rúst DÝRALÍF Starfsmenn Mjólkursam- sölunnar á Vestfjörðum voru að sækja mjólk á bæinn Hól í Önundar firði þegar þeir tóku eftir fálka í vegkantinum. Héldu þeir fyrst að um hrafn væri að ræða en áttuðu sig þegar nær var komið. „Þegar við komum að honum hoppaði hann frá en flaug ekki og því datt okkur í hug að hann þyrfti á hjálp að halda,“ sagði Sæmundur Guðmundsson við vestfirska fréttaritið Bæjarins besta. Fálkinn var fluttur á Nátt- úrustofu Vestfjarða þar sem Böðvar Þórisson líffræðingur skoðaði fuglinn. „Hann virðist hafa lent illa í grút, sem getur verið mjög hættulegt fyrir svona rándýr,“ sagði Böðvar. - bþh Starfsmenn á mjólkurbíl: Fundu ófleygan fálka í vegkanti FYRSTA GLASABARNIÐ Louise Brown, nokkurra ára gömul, í hópi félaga sinna. NORDICPHOTOS/AFP BRETLAND Um það bil fimm milljón börn hafa nú fæðst með aðstoð glasafrjóvgunar. Fyrsta glasabarnið fæddist í Bretlandi árið 1978. Það var stúlka, sem fékk nafnið Louise Brown, en móðir hennar lést í síðasta mánuði. Tæknin hefur þróast mjög síðan þá, en vísindamenn á alþjóðlegri ráðstefnu um glasa- frjóvganir, sem haldin var í Tyrklandi um helgina, ráða fólki frá því að bíða með barn- eignir í von um að geta gripið til glasafrjóvgana síðar meir. Nú eru um það bil 1,5 milljónir glasafrjóvgana reyndar á ári hverju, en af þeim heppnast um 350 þúsund. - gb Glasafrjóvganir æ algengari: Fimm milljón glasabörn fædd Fíkniefnasali tekinn á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum handtók á sunnudag ísfirskan mann sem er grunaður um að selja fíkniefni í bænum. Leitað var heima hjá honum og fundust þar fíkniefni og umbúðir, ásamt tækjum og tólum sem til- heyrðu sölumennskunni. LÖGREGLUFRÉTTIR FERÐAMÁL „Þetta er ævintýralega skrýtið,” segir Torfi Yngvason, eigandi Arctic Adventures, um nýtt 750 króna þjónustugjald sem Þing- vallanefnd leggur á þá sem kafa eða snorkla í gjánni Silfru. Torfi segir að í hálft annað ár hafi starfað nefnd með fulltrúum Sportkafarafélagsins, Þingvalla- nefndar og fyrirtækjanna sem nýta Silfru. Þar hafi verið málefna- leg umræða og áhersla á samstarf og almenna sátt. Runnið hafi tvær grímur á menn eftir viðtal við Ólaf Haraldsson þjóðgarðsvörð í Frétta- blaðinu í vor þar sem málið virtist lengra komið en þeir töldu. „Okkur var þá tjáð að við þyrft- um engar áhyggjur að hafa því það yrði ekkert gert fyrr en í fyrsta lagi eftir sumarið og með ríkum fyrirvara,“ segir Torfi. Annað hljóð hafi verið komið í strokkinn á fundi 21. júní. Þar hafi Álfheiður Inga- dóttir, formaður Þingvallanefndar, flutt þau tíðindi að þjónustugjald yrði lagt á strax frá 1. júlí. Torfi segir hefð fyrir því í ferða- iðnaðinum að slíkar breytingar séu gerðar með eins árs fyrirvara enda séu verðskrár gefnar út og ferðir gjarnan seldar með löngum fyrir- vara. Litlar skýringar hafi fengist á því í hvað þjónustugjaldið ætti að fara og hvernig og hver ætti að inn- heimta það. Samkvæmt lögum megi ekki innheimta þjónustugjald nema til að mæta kostnaði við veitta þjónustu. „Það eina sem er víst er að þau ætla að ráða heilan starfsmann til að standa þarna og rukka okkur. Þetta er algjörlega fáránlegt. Vænt- anlega fer helmingurinn af gjald- inu í að borga honum laun,“ segir Torfi sem kveður vissulega þörf á þjónustu við Silfru og fyrir hana séu köfunarfyrirtæki reiðubúin að greiða. Fyrst og fremst vanti sal- erni og aðstöðu til að skipta um föt. Viðkomandi starfsmaður mun einnig eiga að sinna öryggisgæslu. Torfi segir lítið gagn af manni uppi á bakka við köfunarslys. Auk þess fari yfir sjötíu prósent af gestum Silfru ekki í köfun heldur snorkl og séu ekki í neinni hættu því þeir fljóti á yfirborðinu. Að sögn Torfa sinna starfsmenn þjóðgarðsins nú þegar sams konar störfum og ætluð eru hinum nýja starfsmanni. „Ég skil ekki hvers vegna við eigum að borga sérstak- lega fyrir þessa þjónustu þegar allir aðrir fá hana ókeypis. Við hljótum að eiga að fá einhverja sértæka þjónustu umfram það sem allir aðrir gestir garðsins fá en það fást engin svör um það,“ segir Torfi. Byrja átti að innheimta þjón- ustugjaldið við Silfru í fyrra- dag. Þá var áðurnefndur starfs- maður ekki mættur. Torfi segir að á fundi í síðustu viku hafi þjóðgarðs vörður sagst ætla að reyna að fá gjaldinu frestað um tvo mánuði. Fyrirtækin vilji hins vegar fresta því um eitt ár. Engar fréttir hafi borist af málinu síðan. gar@frettabladid.is Gagnrýna nýtt gjald fyrir kafanir í Silfru Eigandi Arctic Adventures segir nýtilkomið gjald Þingvallanefndar á kafara og snorklara í gjánni Silfru mismuna gestum þjóðgarðsins og koma á óvart. Helm- ingur gjaldsins fari væntanlega í laun starfsmanns sem eigi að rukka það. TORFI YNGVASON Snorkl og köfun í Silfru nýtur vaxandi vinsælda. Hér flýtur eigandi Arctic Adventure í snorklbúningi á yfirborði gjárinnar og kannar undirdjúpin. MYND/ARCTIC ADVENTURES SAMFÉLAGSMÁL Reykjavíkurborg hefur nú ákveðið að hefja innritun barna sem eru fædd í janúar 2011 í leikskóla borgarinnar. „Þetta gæti sett strik í reikning- inn hjá þeim dagforeldrum sem eru búnir að fylla hjá sér í öll pláss og vísa börnum annað. Sumir gætu endað með tvö, þrjú börn í staðinn fyrir fjögur, fimm,“ segir Bergljót Snorradóttir, einn forsvarsmanna Barnsins, samtaka dagforeldra í Reykjavík. Fyrir rúmri viku birtust fréttir af því að Reykjavíkurborg hygðist ekki innrita börn fædd árið 2011 í leikskóla á þessu ári. Þessi viðsnúningur kemur sér afar illa fyrir dagforeldra. „Það er komið fram við okkur eins og þetta sé hobbý hjá fólki. Það vantar algjörlega virðingu fyrir starfsframlagi okkar,“ segir Bergljót og bendir á að fólk í öðrum stéttum myndi varla sætta sig við álíka viðsnúning í vinnu. Bergljót segir tímasetninguna á tilkynningunni afleita. Flestir dagforeldrar taki sér sumarfrí í júlí. Það sé fyrirséð að mörgum dagforeldrum verði kippt úr fríinu með símtölum varðandi uppsagnir plássa. „Það er komin ofboðsleg kergja í dagforeldra og það hefur komið til tals að segja upp samstarfi við borgina. Núna verður farið í að skoða það mál alvarlega. Það er ekki hægt að vinna undir þessu. Starfsöryggi okkar er ekkert.“ - ktg Dagforeldrar í Reykjavík ósáttir við misvísandi skilaboð frá yfirvöldum: Segja starfsöryggi sínu ógnað LEIKSKÓLABARN Reykjavíkurborg hefur nú hafið innritun á börnum fæddum í janúar 2011 í leikskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR HVER ÞREMILLINN! Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóðaskap, hirðu-leysi, slysagildrur og fleira. thremillinn@frettabladid.is Veggjakrotarar voru ekki lengi að setja mark sitt á nýmálaða veggi í göngunum undir Miklu- braut við Lönguhlíð. Stutt er síðan göngin voru máluð. „Þessi göng eru ásetin og vinsæl hjá þeim sem hafa verið í veggjakroti. Þau eru nokkuð fjöl- farin og við höfum viljað koma á betra ástandi þarna. Nú vinnum við að því,“ segir Guðmundur Vignir Óskarsson, verkefnastjóri hjá Fram- kvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. „Það var dregið mikið úr fjármagni við hreins- un eftir hrunið. Það fól í sér að ekki var hreinsað jafn oft í þessum undirgöngum og áður. Það hefur komið niður á útliti,“ segir Guðmundur. Ástandið stendur þó til bóta. „Nú er verið að vinna að því að koma undir- göngunum í lag aftur og halda þeim við með sómasamlegum hætti. Við erum bara að vinna niður hala í því. En það er krafa borgarinnar að undirgöngin séu hrein.“ Guðmundur segir mismunandi hversu lengi veggir haldist hreinir af kroti. „Ef þetta er málað reglulega dregur verulega úr veggjakroti og göngin geta haldist mjög lengi hrein.“ - ktg Fallegri undirgöng í vændum VERKSUMMERKI Úðabrúsar, eins og sá sem liggur í þessum polli, eru títt notaðir til þess að krota á veggi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SPURNING DAGSINS Páll, þarftu þá ekki að drífa í að stofna nýtt félag? „Drífuvinafélagið er það drífandi að það þarf ekki að dreifa því.“ Páll Reynisson stóð að stofnun Drífuvina- félagsins sem vann að því að safna 120 haglabyssum sem Jón Björnsson smíðaði og voru kallaðar Drífur vegna langdrægni sinnar. Sú síðasta kom í leitirnar fyrir nokkrum dögum. Ég skil ekki hvers vegna við eigum að borga sérstaklega fyrir þessa þjónustu þegar allir aðrir fá hana ókeypis. TORFI YNGVASON EIGANDI ARCTIC ADVENTURES

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.