Fréttablaðið - 03.07.2012, Qupperneq 28
3. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR24
BAKÞANKAR
Erlu
Hlynsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. steintegund, 6. hljóm, 8. slunginn,
9. fjallaskarð, 11. voði, 12. vanvirðing,
14. matarsamtíningur, 16. drykkur,
17. atvikast, 18. rölt, 20. tveir eins, 21.
ánægjublossi.
LÓÐRÉTT
1. kennimark, 3. frá, 4. fugl, 5. bar,
7. árstíð, 10. uppistaða, 13. skraf, 15.
keppni, 16. verkur, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. talk, 6. óm, 8. fær, 9. gil,
11. vá, 12. ósómi, 14. snarl, 16. te, 17.
ske, 18. ark, 20. ii, 21. kikk.
LÓÐRÉTT: 1. lógó, 3. af, 4. lævirki, 5.
krá, 7. misseri, 10. lón, 13. mas, 15.
leik, 16. tak, 19. kk.
Hvað
gerðist
eiginlega
í gær?
Eins og ég sagði,
þá hrasaði ég niður
brekkuna og ofan
í ána. En þetta
reddaðist. Ég náði
taki á tommustokk
sem hékk yfir
flúðunum.
Meidd-
irðu þig?
Bara aðeins.
Ég fékk
svolitlar blóð-
nasir, nokkrar
skrámur og
marbletti.
ÁSTIN!
RIFBEIN!
Olnboginn
fór úr lið og
ég brákaði
tvö ...
Á ég að
blása á
bágtið?
Sæl. Býrðu
hér?
Nei. Ég er
að koma í
heimsókn.
Ég sá eitthvað
hreyfast en eng-
inn svarar þegar
ég banka.
Það er
skrítið.
Þú getur skilið
pakkann eftir
og ég bíð hérna
þangað til einhver
kemur.
Nei! Nei!
Nei! Nei!
Nei! Nei!
Nei! Nei!
Jæja. ViÐ þurfum aÐ
fara yfir þessa götu,
meÐ góÐu eÐa illu!
Sjáðu!
sjáðu!
Hér er ég!
HA HA,
HA HA Bonk!
…ohhh
reddot design
winner 2011
Einu sinni var pínulítið konungsríki norður í höfum. Þetta var samt ekkert
venjulegt konungsríki því þarna hafði átt
sér stað lýðræðisbylting og þess vegna
fékk þjóðin að kjósa. Eitt sinn, þegar sami
konungur hafði ríkt í 16 ár, ákváðu þrjár
prinsessur og tveir prinsar, hvert fyrir sig,
að steypa honum af stóli.
FYRSTAN skal nefna norska prinsinn.
Hann sagði tíma til kominn fyrir sig að
snúa heim og byggja upp samfélagið í litla
ríkinu. „Ég vil leggja hönd á plóg,“ sagði
hann með norskum hreim. Lögfræðiprins-
essan kom önnur. Hún sagði mikilvægt
að drottning landsins væri málsvari
mannréttinda og lýðræðis: „Ég er
óhrædd á þeim vettvangi.“ Þá var
komið að sjónvarpsprinsessunni.
Hún sagði að drottning landsins
ætti ekki að taka afstöðu í einu
eða neinu. „Sameinumst,“ sagði
prinsessan. Jarðfræðiprinsinn var
fjórði. Hann var sannfærður um
að hann gæti beint samfé-
laginu „eitthvað á réttari
brautir,“ og bætti við: „Ég
held að ég geti gert samfé-
laginu gagn.“ Baráttuprins-
essan var síðust til að gefa
kost á sér. Hún sagði kosn-
ingarnar snúast um traust.
„Ég tel að mjög stór hluti
þjóðarinnar treysti mér,“
sagði hún.
BRÁTT leið að kjördegi þegar allir þúsund
íbúar ríkisins greiddu atkvæði og konung-
urinn var endurkjörinn. Hann sagði um sín
530 atkvæði: „Ég er þakklátur fyrir þessa
afgerandi niðurstöðu.“ En það voru fleiri
þakklátir.
LÖGFRÆÐIPRINSESSAN fékk 26 atkvæði.
Hún sagðist ekki sjá eftir neinu og þakk-
aði fyrir stuðninginn. „Ég er mjög þakk-
lát,“ sagði hún. Norski prinsinn var kátur
með sín 10 atkvæði. Honum fannst forrétt-
indi fyrir sig og konuna sína að taka þátt í
kosningabaráttunni: „Vonandi verðum við
betra fólk fyrir vikið.“ Baráttuprinsessan
fékk 18 atkvæði og var glöð. Hún túlkaði
yfirburði konungsins þannig að fólk væri
að kjósa með auknu beinu lýðræði: „Það
er það sem ég vel að sjá út úr þessu og
það vekur með mér von.“ Jarðfræðiprins-
inn fékk 86 atkvæði. Hann sagðist fullur
eldmóðs eftir baráttuna, vera kominn með
„blóð á aðra vígtönnina“ og ætla í fram-
tíðinni að verða enn gildari í samfélags-
umræðunni. Sjónvarpsprinsessan fékk 330
atkvæði og fannst alveg hreint „frábært að
ná þriðjungi atkvæða.“ Hún var þakklát:
„Ég get ekki annað en verið glöð.“
ÞAÐ er þannig sem hún endar, sagan af
kosningunum í konungsríkinu litla norður í
höfum. Prinsarnir sem töpuðu voru himin-
lifandi og prinsessurnar sem töpuðu voru
himinlifandi. Og öll lifðu þau hamingjusöm
til æviloka.
„Takk“