Fréttablaðið - 11.07.2012, Page 12

Fréttablaðið - 11.07.2012, Page 12
12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna Með innleiðingu örgjörva- korta þurfa korthafar ekki lengur að láta kort sitt af hendi þegar greitt er fyrir vörur og þjónustu. Þeir stinga einfaldlega kortinu í posann og staðfesta við- skiptin með því að slá inn pinnið sitt í stað þess að skrifa undir. Pinnafgreiðslumáti var tek- inn upp til að auka öryggi í við- skiptum með greiðslukort og hefur reynslan af honum erlend- is verið jákvæð. „Við erum núna að taka upp þessar öryggisráð- stafanir eins og gert hefur verið í nágrannalöndum okkar á undan- förnum árum. Öryggisráðstafan- irnar fyrir korthafa byggjast á því að þeir haldi kortinu sínu og pinn- inu aðgreindu. Ef einhver stelur kortinu og reynir að nota það á sölustað getur hann illa athafnað sig nema hann hafi pinnið. Þess vegna er mikilvægt að gæta vel að pinninu sínu,“ segir Sigurður Hjalti Kristjánsson, ráðgjafi hjá Capacent sem stýrir verkefninu Pinnið á minnið. Sigurður segir nýja afgreiðslu- mátann öruggari. „Hér á landi hefur verið hægt að fara með hvaða kort sem er á suma sölu- staði. Eftir því sem sölustöðum með örgjörvaposa fjölgar verður erfiðara fyrir óprúttna aðila að athafna sig.“ Á heimasíðu Valitor segir að svik með stolin og glötuð greiðslu- kort og kort með falsaðar segul- rendur hafi verið vaxandi vanda- mál um allan heim. Það hafi bitnað á söluaðilum og kortaútgefendum auk þess sem það hafi valdið kort- höfum óþægindum. Upptaka nýja afgreiðslumátans hafi stórlega dregið úr svikunum. „Pinnaðferðin er miklu öruggari en maður verður að gæta þess að enginn komist yfir pinnið manns. Það má ekki geyma það í veskinu með kortinu og það þarf einnig að gæta þess að enginn horfi á þegar maður stimplar það inn í örgjörva- posann,“ segir Bergsveinn Samp- sted, framkvæmdastjóri Korta- lausna Valitor. Hann leggur áherslu á að neyt- endur taki við kvittun og skoði hana vel þótt þeir hafi staðfest upphæðina sem þeir greiða með pinninu sínu í örgjörvaposa. Komist óprúttnir aðilar yfir bæði kortið og pinnið ber korthafi ábyrgð á úttektum af kortinu, að því er segir á vefsíðunni pinnid.is þar sem er að finna upplýsingar um notkun örgjörvakorta. ibs@frettabladid.is Pinnaðferðin er miklu öruggari en maður verður að gæta þess að eng- inn komist yfir pinnið manns. BERGSVEINN SAMPSTED FRAMKVÆMDASTJÓRI KORTALAUSNA VALITOR Korthafi ber ábyrgð komist þjófar yfir pinnið NÝR AFGREIÐSLUMÁTI Gæta þarf að því að halda korti og pinni aðgreindu. Danska utanríkisráðuneytið hefur í samvinnu við ýmsa aðila látið þróa app fyrir erlenda blaðamenn. Þar er að finna upplýsingar um Danmörku, bæðir myndir og texta, sem hægt er að nota þegar fjallað er um land og þjóð. Gengið er út frá því að þeir aðilar í Danmörku sem taka þátt í verkefninu sendi utanríkisráðuneyt- inu efni jafnóðum. Í tilkynningu frá danska utanríkisráðuneytinu segir að notkunin sé endurgjaldslaus. ■ Danska utanríkisráðuneytið Upplýsingar á appi fyrir erlenda blaðamenn Nýtt afsláttarkort, sem kallast Sund- og safnakortið, er komið í verslanir. Kortið veitir aðgang að yfir þrjátíu sundlaugum og fjölda safna víða um land. Með kortinu, sem er ýmist fyrir ein- stakling eða fjölskyldu, er hægt að fara einu sinni á hvert safn og tvisvar í hverja sundlaug sem taka þátt í samstarfinu. Fjölskyldukortið gildir fyrir tvo fullorðna og börn yngri en 18 ára. „Markmiðið með kortinu er að hvetja ferðamenn og ekki síst fjölskyldufólk sem ferðast um landið til að heimsækja söfn og skella sér í sund á ódýran og hagkvæman hátt, segir Jón Hlíðar, forsvarsmaður Sund- og safnakortsins. Hann bendir á að kortið geti verið fljótt að borga sig ef horft er til aðgangseyris í sund og á söfn. Kynningartilboð er á kort- inu þessa dagana og kostar kort fyrir einstakling 5.900 krónur og fjölskyldukort 8.900 krónur. Kortið má nálgast í verslunum N1 og hjá verkalýðsfélögum. Hægt er að kynna sér hvaða sundlaugar og söfn eru í boði á heimasíðunni www.sundogsafna- kortid.is og líka á Facebook. Sund- og safnakortið er sparnaðarleið fyrir ferðafólk: Veitir aðgang að sund- laugum og söfnum IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI Eitt fjölmargra safna sem kortið veitir aðgang að. ÍS L E N SK A SI A .I S U T I 60 38 0 07 /1 2 MIKIÐ ÚRVAL AF VÖNDUÐUM SVEFNPOKUM FYRIR ALLAR AÐSTÆÐUR. ÞÚ GETUR TREYST OKKUR ÞEGAR KEMUR AÐ ÚTIVIST. TILBOÐ: 11.990 KR. HIGH PEAK TACOMA 1600 Tilvalinn fyrir sumarið, vorið eða haustið. Þolmörk -4°C. Þyngd: 1.6 g. Fylling: Trefjar. Almennt verð: 14.990 kr. TILBOÐ: 52.792 KR. TNF BLUE KAZOO Frábær, vandaður dúnpoki, nettur en hlýr! Þolmörk: -9°C. Þyngd: 1.140 g. Almennt verð: 65.990 kr. VERÐ FRÁ: 19.990 KR. TNF ALEUTIAN Vandaðir og vinsælir. Þolmörk -5°C. Þyngd: 1.545 g. Fylling: Trefjar. Til í ýmsum útgáfum. NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS SOFÐU ÚTI Í SUMAR VERÐ FRÁ: 66.990 KR. DEUTER NEOSPHERE Sérlega vandaðir verðlaunadúnpokar, rúmir og teygjanlegir. Þolmörk: -10°C. Þyngd: 1.320 g. Fylling: 675+ Fill dúnn. Fást í Glæsibæ. er sú verðhækkun sem varð á miða í Þjóð- leikhúsið frá árinu 2006 til ársins 2011.51,7%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.