Fréttablaðið - 16.07.2012, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
skoðun 10
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Fasteignir.is
16. júlí 2012
165. tölublað 12. árgangur
FASTEIGNIR.IS16. JÚLÍ 201228. TBL.
Fasteignasalan Valhöll s. 588 4477 kynnir:
Stórglæsilegt sumarhús með gestahúsi á rúmlega 0,5 ha eignarlandi í Reykjaskógi í Biskupstungunum. Eignin er ofarlega í skóginum, kjarri vaxið svæði og útsýni mikið. Innbú og tæki fylgja með í kaupum. Heitt og kalt vatn í húsi.
Komið er inn í anddyri þar sem er fataskápur, geymsla í framhaldi. Gengið inn í rúmgott hol þaðan sem er aðgangur að tveimur stórum svefnherbergjum. Stofa og eldhús eru í opnu rými og með stórum út-sýnisgluggum er snúa í suður. Góð tæki eru í eldhúsi, meðal annars ofn og uppþvottavél. Frá stofu er útgengt á stóran útsýnispall sem nær um-hverfis hús. Svefnloft er afar rúm-gott, þar komast auðveldlega fyrir tvö rúm, náttborð, sjónvarp og sófa-sett. Baðherbergi er með sturtu, skápur fyrir ofan vask, þaðan er út-
gengt á pallinn þar sem er heitur pottur.
Gestahús er tæplega 17 fm að stærð. Þar er eldhús með lítilli borð-stofu, baðherbergi með sturtu og gott rými með kojurúmi en svefnpláss er fyrir þrjá. Til viðbótar við gestahús er lítið hús á lóðinni sem tilvalið er fyrir börn og leikföng þeirra. Eignin er skráð 81,7 fm í fast-eignamati en samkvæmt seljanda er um að ræða samtals 111 fm gólflöt með svefnlofti en mesta lofthæð þar er um 2 metrar. Undir aðalhúsinu er aðgangur að stóru og miklu rými þar sem m.a. kemst fjórhjól, tilvalið
fyrir áhöld og annað. Bústaðurinn er á steyptum stólpum og var byggður árið 1995. Mikið kjarr er umhverfis húsið, aðkoma góð og allur frágangur til fyrirmyndar. Greitt er fast gjald fyrir heitt og kalt vatn ásamt vega-gjaldi en sú upphæð nemur um 120 þúsund krónum á ári og er tengt vísi-tölu. Göngufæri er á leiksvæði sem sumarhúsin reka sameiginlega, þar er lítill golfpúttvöllur, fótbolta- og körfuboltavöllur.
Eign sem vert er að skoða. Upplýsingar gefur Jón Rafn Valdimarsson,löggiltur fasteignasali, sími 695-5520.
Stórglæsilegt sumarhús
Fallegt sumarhús í Reykjaskógi.
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Andri
Sigurðsson
sölufulltrúi og
lögg. leigumiðlari
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Ruth
Einarsdóttir
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur
á Facebook
5 herbergja íbúð með bílageymslu. Mikið endurnýjuð með glæsilegu útsýni.
Herbergi í kjallara í útleigu. Íbúð 115 fm plús bílskýli 27 fm. Verð 23,7 m.
Elín ViðarsdóttirLögg. fasteignasali
Auður Kristinsd.Sölufulltrúi
audur@fasteignasalan.is
OPI
Ð H
ÚS
Vegna
mikillar sölu
vantar eignir
á skrá!
Fífusel 35, 3. hæðOpið hús þriðjudaginn 17. júlí kl. 18:30 - 19:00
Laxatunga 189 - 270 Mosfellsbær 234,9 m2 einbýlishús í byggingu á einni hæð við
Laxatungu 189 í Mosfellsbæ. Eignin er laus til
afhendingar strax. V. 34,9 m.
KJARNA - ÞVERHOLTI 2 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI: 586 8080 • FAX: 586 8081
WWW.FASTMOS.IS
Einar Páll Kjærnestedlögg. fasteignasali.einar@fastmos.is
Mjög falleg
118 0 3ja
Kristnibraut 6 - 113 Reykjavík
Rauðavað 13 - 110 Reykjavík
Mjög glæsileg 114,5 m2 4ra
herbergja íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýli
við Rauðavað 13 í Norðlinga-holti, ásamt
bílastæði ílokuðum bílakjallara EiOP
IÐ H
ÚS
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandurkraftmikill þjóðmálaþáttur
B jörg Gunnarsdóttir heldur úti heimasíðunni www.overone-coffee.com ásamt Önnu Gunn-
arsdóttur systur sinni Við f ð
LITRÍK OG RÓMANTÍSKLISTRÆN SMEKKKONA Björg Gunnarsdóttir hefur mikinn áhuga á hönnun en hún heldur úti lífsstílsbloggi ásamt systur sinni.
ÓLÍFUOLÍA SEM HREINSIEFNIAuðvelt er að ná rákum og blettum af ryðfríu stáli með örlítilli ólífuolíu. Hellið einfaldlega olíu í tusku og strjúkið yfir stálið. Fægið síðan með þurrum eldhúspappír.
HEIMILISLEGT
Heimilið hennar
Bjargar er mjög litríkt
og fullt af gömlum
hlutum sem eiga sér
langa sögu.
Leitar að söguefni
Lene Stæhr leitar að
áhugaverðum sögum fólks í
danska heimildarmynd.
popp 26
Bakaði Höfða
Frístundabakarinn Hildur
Kjartansdóttir skreytir kökur
með þekktum byggingum.
Síðast bjó hún til Höfðaköku.
Smjörvi
í sérmerktum
umbúðum á
20% lægra
verði
UPPLÝSINGATÆKNI Hópurinn Radi-
ant Games lenti í 4. til 5. sæti í
stærstu forritunarkeppni heims í
síðustu viku með leikinn Robert‘s
Quest. Keppnin fór fram í Ástr-
alíu. Guðmundur Valur Viðars-
son, einn liðsmanna, lét fjarlægð-
ina ekki koma í veg fyrir að hann
gæti upplifað fæðingu frumburð-
arins heldur nýtti samskiptafor-
ritið Skype.
„Ég varð vitni að því í beinni
þegar dóttir mín kom í heiminn
eða eins mikið og ég gat í gegnum
tárin,“ segir hann. Fyrsta fjöl-
skyldumyndin er líka óhefðbund-
in. „Hún er af mér og nýfæddu
stúlkunni í rúminu og honum á
tölvuskjánum með heyrnartól“
segir Gunnþóra, kona hans.
-hþt/ sjá síðu 26
Guðmundur lofar tæknina:
Sá dótturina
fæðast á Skype
SAMFÉLAGSMÁL Af þeim rúmlega
900 börnum sem skráð eru í með-
ferð á göngudeild Barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans,
BUGL, glímir stór hópur drengja
á aldrinum 14 til 18 ára við net-
fíkn. Í alvarlegustu tilfellunum
eru börnin lögð inn. Þau eru þá
ekki bara hætt samskiptum við
aðra í umhverfinu vegna mikillar
tölvunotkunar heldur eru þau bein-
línis í lífshættu vegna þunglyndis
og vanvirkni. Þetta segir Guðlaug
María Júlíusdóttir, verkefnastjóri
félagsráðgjafar á kvenna- og
barnasviði Landspítalans.
„Börnin eru lögð inn þegar þau
eru farin að þjást af alvarlegu
þunglyndi og jafnvel sjálfsvígs-
hugsunum. Þau hafa ekki sinnt
samskiptum við fjölskyldu og
vini vikum og jafnvel mánuðum
saman, heldur einungis verið inni
á herberginu sínu. Þau hafa ekki
sinnt neinu nema tölvunni og heim-
inum sem þar er inni,“ segir Guð-
laug.
Hún tekur það fram að í göngu-
deildarmeðferð sé reynt að greina
grunnvandann. „Netfíkn er ekki
sjúkdómsgreining í sjálfu sér. Við
reynum að komast að því hvers
vegna barnið er búið að koma sér á
þennan stað í tilverunni. Mögulega
er um einstakling að ræða sem í
grunninn er kvíðinn og félagsfæl-
inn og líður best inni á herbergi.
Stundum flosna börn upp úr skóla
vegna netfíknar. Í öðrum tilfellum
eru þau búin með skólaskyldu og
reynist erfitt að fá vinnu. Foreldr-
unum finnst þá skiljanlegt að barn-
ið leiti inn í herbergi. Þeir gera sér
ekki alltaf grein fyrir því hversu
alvarlegur vandinn er.“
Í göngudeildarmeðferðinni er
fjölskyldunum hjálpað að koma
börnunum út úr herbergjunum.
„Það verða oft átök inni á heimil-
unum. Börnin láta ekki alltaf tölv-
una frá sér með góðu. Reynt er að
fara samningaleið innan skynsam-
legra marka og styðja foreldrana
í að setja mörk. Stundum gengur
þetta og stundum ekki. Stefnt er
að því að finna úrræði sem fylla
tómarúmið þegar dregið er úr
tölvunotkuninni,“ segir Guðlaug.
Á legudeild eru börnin látin
æfa sig í þeim daglegu athöfnum
sem þau voru búin að týna niður,
að sögn Guðlaugar. „Þau æfa sig
í að horfast í augu við aðra, bjóða
góðan daginn, fara reglulega í
sturtu og borða á matmálstímum.
Þau fá svokallaða umhverfismeð-
ferð. En fráhvarfseinkennin geta
verið mjög alvarleg. Þess eru
dæmi að börnin ráfi um gangana
með miklar kvalir. Þau finna fyrir
kvíða og óróa og þola ekki við. Ein-
kennin eru svipuð og fráhvarfs-
einkenni vegna annarrar fíknar.
Ég vona að þekkingin á tölvufíkn
sé að verða meiri hjá foreldrum
svo að þessi mál nái ekki að ganga
svona langt.“
ibs@frettabladid.is
Börn í lífshættu vegna ein-
angrunar sem fylgir netfíkn
Stór hópur 14 til 18 ára drengja í meðferð á göngudeild BUGL glímir við netfíkn. Foreldrum hjálpað að
koma börnunum frá tölvunni. Í alvarlegustu tilfellunum eru börnin lögð inn. Fráhvarfseinkenni eru mikil.
Börnin eru lögð inn
þegar þau eru farin að
þjást af alvarlegu þunglyndi
og jafnvel sjálfsvígshugsunum.
GUÐLAUG MARÍA JÚLÍUSDÓTTIR
VERKEFNASTJÓRI FÉLAGSRÁÐGJAFAR Á
KVENNA- OG BARNASVIÐI LANDSPÍTALANS
Ólafur í toppformi
Hinn 39 ára gamli Ólafur
Stefánsson skoraði tíu mörk
í landsleik gegn Túnis.
sport 20
VÍÐA BJART en skýjað allra
austast í fyrstu og léttir svo til.
Hægur vindur og hiti á bilinu 10 til
22 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
VEÐUR 4
16 15
13
15
15
MANNLÍF Paradís virðist ekki hafa
farið langt þó Eden í Hveragerði
hafi brunnið því að skammt frá
rústum Edens slá feðginin Hjört-
ur Benediktsson og Helga Hjart-
ardóttir upp markaði um helgar
þar sem grænmeti, bleikja og
hrossabjúgu renna út eins og
heitar lummur.
Mest er lagt upp úr grænmet-
inu sem Hjörtur ræktar nær allt
sjálfur. „Það liggur við að þetta
sé ræktað í vígðri mold því ég
er með þetta í Hjallakróki í Ölf-
usi, spölkorn frá kirkjujörðinni,“
segir hann af gamansemi.
Þetta er þriðja sumarið í röð
sem þau slá upp bás sínum á
þessum stað og segir hann að nóg
sé að gera. „Grænmetið rokselst
og síðan eru hrossabjúgun sem
ég fæ frá fólkinu á Böðmóðs-
stöðum í Laugardal svo vinsæl
að birgðirnar sem áttu að duga
út helgina seldust upp strax
klukkan fimm á föstudaginn.
Enda var geysimargt um mann-
inn þann dag, þetta var bara eins
og á útihátíð.“
Básinn er fyrir utan leikhús-
ið í Hveragerði en þau feðgin
fá einnig að nota aðstöðuna þar
inni. Hjörtur er eflaust vel að
því kominn því milli þess sem
hann sinnir hlutverki garðyrkju-
bónda og sölumanns leikur hann
hin ýmsu hlutverk hjá Leikfélagi
Hveragerðis. - jse
Grænmeti, bleikja og hrossabjúgu seld á útimarkaði í Hveragerði:
Kálið ræktað nærri vígðri mold
HJÖRTUR BENEDIKTSSON OG HELGA HJARTARDÓTTIR Í GRÆNMETISMARKAÐNUM Það var nóg um að vera í grænmetismark-
aðnum í Hveragerði þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Það fer vel á því að grænmetið sé selt skammt frá Eden
enda fer því ekki fjarri að það sé ræktað í kálgarði drottins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Grænmetið rokselst
og síðan eru hrossa-
bjúgun sem ég fæ frá
fólkinu á Böðmóðsstöðum
í Laugardal svo vinsæl að
birgðirnar sem áttu að duga
út helgina seldust upp.
HJÖRTUR BENEDIKTSSON
GRÆNMETISBÓNDI Í ÖLFUSI
Gengst við nördaskap
Jónas Guðmundsson hefur
opnað fyrsta gönguleiðavef
landsins.
Tímamót 14