Fréttablaðið - 16.07.2012, Blaðsíða 14
16. júlí 2012 MÁNUDAGUR14
timamot@frettabladid.is
„Hugmyndin varð til þegar ég var
að ganga Laugaveginn með dætrum
mínum í fyrra. Ég hef oft skrifað um
efni tengd útivist og ferðalögum, og í
þessari göngu hvöttu þær mig til að
taka þau skrif lengra og setja vef á
laggirnar með upplýsingum um göngu-
leiðir og það varð úr, það vantaði svona
vef en hliðstæðir vefir eru þekktir víða
um heim,“ segir Jónas Guðmundsson
sem nýverið setti á laggirnar vefinn
gonguleidir.is. Á honum er að finna lýs-
ingar á 250 leiðum um land allt.
Spurður hvernig leiðirnar á vefnum
hafi verið valdar segir Jónas það ein-
falt: „Þetta eru leiðir sem ég hef farið,
nú þegar eru komar 250 leiðir inn og
ég kem til með að setja hátt í 100 leiðir
í viðbót inn í sumar,“ segir Jónas sem
lengi hefur stundað útivist og göngur
auk þess að vera virkur í björgunar-
sveitum um árabil.
„Ég hef verið að labba í 25 ár og ég
komst að því þegar ég hóf vinnu við
vefinn að ég hef meira og minna haldið
til haga upplýsingum um gönguferðir
mína, fyrst óformlega og svo formlega.
Ég á loggbækur, ljósmyndir úr ferðum
og líklega hátt í 100 göngukort. Líklega
er ég nörd á þessu sviði, það þýðir ekki
annað en að játa það.“
Á gönguleiðavefnum eru hagnýtar
upplýsingar um gönguleiðirnar, bæði
er leiðarlýsing á síðunni, upplýsingar
um göngutíma, myndir og svo er hægt
að sækja GPS-hnit leiðarinnar ef það
á við. Þá er hægt að prenta út stutta
og markvissa lýsingu sem passar á A4
blað og hentar til að taka með í göng-
una.
„En svo verður fólk auðvitað að
kunna að ferðast, vera rétt útbúið og
við öllu búið. Vera með GPS-tæki með
sér í lengri ferðir,“ segir Jónas sem
frábiður sér stimpilinn göngugarpur
þrátt fyrir mikla göngureynslu.
„Ég byrjaði í skátunum 10 eða 12 ára
gamall og svo tóku björgunarsveitirn-
ar við. En ég er enginn garpur, meiri
svona meðalkall. Þetta verður bara
hluti af lífstílnum. Dætur mínar eru
löngu komnar upp á lagið. Þær gengu
með mér Laugaveginn í fyrra sjö og
ellefu ára gamlar. Nú vorum við að
koma úr gönguferð um Fjallabak. Það
geta allir gengið, málið er bara að sigta
inn á leiðir sem henta,“ segir Jónas að
lokum. sigridur@frettabladid.is
JÓNAS GUÐMUNDSSON: OPNAÐ FYRSTA GÖNGULEIÐAVEF LANDSINS
Gengst við því að vera nörd
JÓNAS GUÐMUNDSSON Hefur stundað göngur í 25 ár og ferðalangar njóta góðs af á síðu hans www.gonguleidir.is. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fjallabakið er í miklu uppáhaldi hjá Jónasi sem nefnir leiðina inn í Vondugil sem
dæmi um skemmtilega göngu við allra hæfi. Hér er gripið niður í lýsingu hans á
vefnum:
„Ef það teldist góð vinnubrögð að skrifa VÁ í gönguleiðalýsingu væri það gert hér.
Stórkostlegt svæði með ótrúlegri litadýrð. Við hefjum gönguna við skála Ferðafélags
Íslands í Landmannalaugum. Fyrsti leggurinn er sameiginlegur með þeim sem eru að
ganga Laugaveginn. Rétt áður en við byrjum að hækka okkur að Brennisteinsöldu er
skilti sem bendir til hægri. Á því stendur Vondugil og Háalda. Göngum inn í Vondugil
og sömu leið til baka.
[…] Litadýrðin í giljunum er ótrúleg. Á nokkrum stöðum sunnan (vinstra megin) við
Uppgönguhrygginn eru litirnir næstum óraunverulegir. Ekkert verra er að vera hér eftir
góðan rigningarskúr en þá skerpir stundum á litum og þeir jafnvel breytast.“
WWW.GONGULEIDIR.IS
VÁ Í VONDUGILJUM
Merkisatburðir
1627 Tyrkjaránið: 242 manns numin á brott frá Vestmannaeyj-
um af sjóræningjum frá Algeirsborg og seld í þrældóm. Auk
þeirra eru 36 drepnir.
1661 Fyrstu peningaseðlar í Evrópu gefnir út af Stokkhólmsbanka.
1951 Skáldsagan Bjargvætturinn í grasinu eftir J. D. Salinger
kemur út í Bandaríkjunum.
1990 Yfir 1600 manns láta lífið í jarðskjálfta á Filippseyjum.
2005 Skáldsagan Harry Potter og blendingsprinsinn kemur út
á sama tíma um allan heim. 287.564 eintök seljast að meðal-
tali á hverri klukkustund fyrsta sólarhringinn.
2009 Alþingi Íslendinga samþykkir með 33 atkvæðum gegn 28
(tveir sátu hjá) að senda umsókn um aðild til Evrópusambands-
ins. Allir flokkar klofna í afstöðu sinni nema Samfylkingin.
ROALD AMUNDSSEN (1872-1928) landkönnuður fæddist þennan dag.
„Ævintýri er bara lélegt skipulag.“
x
Þennan dag fyrir réttu 61 ári síðan kom út í Banda-
ríkjunum bókin The Catcher in The Rye eða Bjarg-
vætturinn í grasinu eins og hún kallast á Íslensku.
Þetta var fyrsta skáldsaga höfundarins J.D. Salinger
sem áður hafði vakið athygli fyrir smásagnaskrif.
Söguþráður bókarinnar er einfaldur, fylgst er með
söguhetjunni, hinum sextán ára Holden Caulfield,
flækjast um í New York eftir brottrekstur úr
heimavistarskóla fyrir drengi, raunar hinum fjórða
á skömmum tíma. Söguhetjan er einnig sögumaður
frásagnarinnar sem flakkar aftur í tíma, dregur upp
mynd af fjölskyldu Caulfields og gefur innsýn í
hvað stefnir hjá honum.
Í sögunni kvað við nýjan tón í bandarískum bókmenntum.
Ekki hafði tilvistarkreppu unglings verið lýst betur, orðfæri og
hugðarefnum. Holden Caulfield er andhetja, en andhetja sem
margir gátu speglað sig í og bókin varð fljótt afar vinsæl. Hún var
þó umdeild, Caulfield hefur trú að háði og spotti og talar frjálslega
um vændi sem féll í grýtta jörð hjá sumum þjóðfélagshópum og
var hún bönnuð víða í Bandaríkjunum.
Höfundurinn dró sig í hlé og gaf lítið út eftir að bókin kom út.
Hann neitaði að tala við fjölmiðla og hafnaði síendurteknum
boðum um að selja réttinn til að færa efni bókarinnar yfir á hvíta
tjaldið.
Bókin kom út í íslenskri þýðingu árið 1975 en höfundur hennar
var Flosi Ólafsson.
ÞETTA GERÐIST: 16. JÚLÍ 1951
Bjargvætturinn í grasinu gefin út
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALGERÐUR ODDNÝ ÁGÚSTSDÓTTIR
sem lést laugardaginn 7. júlí á Hrafnistu 2b
í Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Grafar-
vogskirkju miðvikudaginn 18. júlí kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningarsjóð Hrafnistu í Hafnarfirði.
Inga I. Svala Vilhjálmsdóttir Páll Trausti Jörundsson
Kára Hrönn Vilhjálmsdóttir Sigmundur Smári Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri frændi og vinur,
EYJÓLFUR EYJÓLFSSON
frá Botnum í Meðallandi,
Sundlaugavegi 24,
Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Klausturhólum
fimmtudaginn 5. júlí, verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 17.
júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birna Halldórsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGFÚS SIGURÐUR KRISTJÁNSSON
fyrrv. yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli,
Garðavegi 12, Keflavík,
lést mánudaginn 9. júlí. Jarðarförin fer fram
20. júlí nk. frá Keflavíkurkirkju kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á samtök um Alzheimer,
0327-26-004302 kt. 580690-2389.
Jónína Kristjánsdóttir
Hilmar Bragi Jónsson Elín Káradóttir
Magnús Brimar Jóhannsson Sigurlína Magnúsdóttir
Hanna Rannveig Sigfúsdóttir Ágúst Pétursson
Drífa Jóna Sigfúsdóttir Óskar Karlsson
Sjöfn Eydís Sigfúsdóttir Jóhann Ólafur Hauksson
Snorri Már Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför bróður okkar, mágs og frænda,
KARLS KONRÁÐS KARLSSONAR
Blómvallagötu 13, Reykjavík,
sem lést að heimili sínu 12. þ.m., fer
fram frá Landakotskirkju þriðjudaginn
17. þ.m. kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Norbert Gossmann
BJÖRN FRIÐFINNSSON
fv. ráðuneytisstjóri, sem lést þann
11. júlí síðastliðinn, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni þann 19. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Rauða krossinn.
Iðunn Steinsdóttir
Leifur Björnsson Ragnheiður Ármannsdóttir
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir Þórir Guðmundsson
Halldór Björnsson Helga Rut Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.