Fréttablaðið - 16.07.2012, Blaðsíða 16
FÓLK|HEIMILI
Það eru margar leiðir til að þrífa hefð-
bundin lyklaborð, allt eftir því hvaða
óhreinindi það eru sem helst þarf að
þrífa. Það allra fyrsta sem þarf að gera
er að taka lyklaborðið úr sambandi eða
taka rafhlöðurnar úr. Lyklaborðið getur
skemmst við hreingerninguna ef það er
rafmagn á því.
Til að ná ryki úr lyklaborðinu er auð-
veldast að nota litla handryksugu. Ef
rykið er mikið er hægt að setja bursta
á venjulega ryksugu og bursta með
honum um leið og ryksugað er.
Dagleg notkun elur af sér alls kyns
sýkla sem fá að lifa óáreittir á tökkum
lyklaborðsins ef ekkert er að gert. Var-
ist þó að nota ekki of sterk hreinsiefni
þar sem ekki er gott fyrir fingurna að
vera í snertingu lengi við þess konar
efni. Setjið efnið í tusku og strjúkið yfir
lyklaborðið. Gott er að nota eyrnapinna
til að komast á milli takkanna.
Stundum er þörf á að fara út í al-
varlegri hreinsunaraðgerðir, til dæmis
þegar einhvers konar vökvi hellist
yfir lyklaborðið. Þá er best að byrja á
því að þurrka upp allan þann vökva
sem hægt er. Ef takkarnir eru orðnir
klístraðir þarf að taka þá af. Þá þarf
að leggja á minnið rétta staðsetningu
allra takkanna eða jafnvel taka mynd
af lyklaborðinu áður en takkarnir eru
teknir af.
Þegar búið er að taka lyklana af er
hægt að þrífa borðið sjálft með ryksugu
eða tusku með hreinsiefni í. Takkana
sjálfa má þrífa með vatni eða eyrna-
pinna. Á mjög erfiða bletti má nota
strokleður, passið þó að strokleðurs-
leifarnar fari ekki ofan í lyklaborðið. Ef
ekkert af þessu virkar má nota mjúkan
tannbursta, bleyttan í hreinsiefni. Setj-
ið svo takkana aftur á lyklaborðið og þá
ætti það að vera orðið eins og nýtt.
HVERNIG ÞRÍFA Á LYKLABORÐ
Lyklaborð tölvunnar er flestum mikilvægt en það, eins og aðrir hlutir, safnar
ryki og drullu með tímanum. Hér eru ráð til að halda því hreinu.
GRÓÐRARSTÍA Margir
gleyma að þrífa lykla-
borð en þar þrífast alls-
kyns óhreinindi.
Á heimasíðu Húsasmiðj-
unnar má finna leiðbeiningar
um hvernig skuli mála flísar.
Til að byrja þarf að hreinsa
flísarnar og gamla fúgu með
sterku hreinsiefni og svo með
sveppaeyði. Hreinsið líka
gamla málningu af, ef einhver
er á flísunum. Því næst skal
grunna flísarnar, en gætið þess
að hvergi sé bleyta á flísum eða
í fúgu.
Notið gervihárapensil eða rúllu
fyrir grunninn, málið alltaf lóð-
rétt í sömu átt. Látið grunninn
þorna og pússið með sand-
pappír að grófleika 120. Bleytið
tusku með
White Spirit
og strjúkið
yfir. Mál-
ið aðra
umferð
af grunni.
Strjúkið yfir
með sandpappír að
grófleika 160, þurrkið
sem fyrr og málið með lakkinu,
látið þorna, strjúkið yfir með
sandpappír (grófleika 180) og
málið aðra umferð, látið lakkið
þorna og allt er klárt. Ekki
gleyma að mála ávallt lóðrétt í
sömu átt.
FLIKKAÐ UPP
Á FLÍSARNAR
Eru flísarnar farnar að
láta á sjá? Hví ekki að
mála?
Hildur Kjartansdóttir ákvað að skella í eina köku og skreyta hana í tilefni þess að hún er í vikulöngu
sumarfríi. „Ég gerði stúdentsköku fyrir
vinkonu mína sem útskrifaðist úr MR og
skreytti hana með skólanum sjálfum. Þá
komst ég að því að ég hef mjög gaman
af að skreyta kökur með þekktum bygg-
ingum. Mér finnst Höfði falleg bygging
og ákvað að spreyta mig á því að gera
hana. Ég fór með kökuna til ömmu og
afa og þau fengu að eiga hurðarhúnninn
sem svo mikið var horft á í sjónvarpinu
þegar leiðtogafundurinn fór þar fram,“
segir Hildur.
Aðspurð segist hún alveg tíma því
að borða kökurnar. „Það er fínt að ein-
hver borði þær því annars skemmast
þær bara.“ Vinir og vandamenn Hildar
fá helst að njóta afraksturs bakstursins
en hún hefur gert svolítið af því að baka
fyrir afmæli og aðrar veislur og gefur þá
kökuna sem gjöf. „Það eru ekki margir
í vinahópnum sem hafa gaman af köku-
skreytingum þannig að þeim finnst fínt
að ég sjái um þetta,“ segir hún.
Hildur byrjaði að nota sykurmassa í
skreytingar fyrir rúmu ári síðan. „Mér
finnst skemmtilegast að fá áskoranir
og vinna út frá þeim. Ég gerði til dæmis
geislasverðsköku fyrir vin minn af því
hann var lengi búinn að biðja um að
ég gæfi honum geislasverð
þegar ég kláraði geisla-
fræðina sem ég er að læra,“
segir Hildur og tekur fram
að geislafræði hafi reyndar
ekkert með geislasverð að
gera. Hún segir alls ekki
erfitt að gera svona fallega
skreyttar kökur, það reyni
helst á þolinmæðina. „Þetta
felst í æfingunni en tekur svolítinn
tíma. Ég var fjóra til fimm tíma að lita
massann og skreyta Höfðakökuna.“
Hildi finnst gaman að elda og baka
en í sumar vinnur hún við að elda fyrir
börn og starfsfólk í sumarbúðum KFUM
& KFUK á Hólavatni. „Það er alltaf gam-
an að elda þegar maður fær hrós fyrir
og það er vel borðað af matnum,“ segir
Hildur sem hyggur á meiri og jafnvel
metnaðarfyllri kökuskreytingar í fram-
tíðinni. ■ lilja.bjork@365.is
HÖFÐI Á KÖKU
GAMAN AÐ BAKA Hildur Kjartansdóttir er frístundabakari sem eyðir góðum
tíma í eldhúsinu. Hún vinnur í sumar við að elda fyrir krakka í sumarbúðum.
FALLEG OG GÓMSÆT
Hildi finnst Höfði falleg
bygging og ákvað að
skreyta köku með bygg-
ingunni þekktu. Það
tókst svona stórvel.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Útsalan
í fullum gangi
Flott föt fyrir
flottar konur
st. 40 – 58
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
íslensk
framleiðsla
í 20 ár
Rafhitarar fyrir heita potta
Save the Children á Íslandi
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
BAKAR Í FRÍINU
Hildur er frístundabakari
með metnað. Henni finnst
gaman að fá áskoranir og
hugmyndir frá öðrum þegar
kemur að því að skreyta
kökurnar sem hún bakar.