Fréttablaðið - 16.07.2012, Qupperneq 2
16. júlí 2012 MÁNUDAGUR2
MENNING Víkingaskipi því sem
trónaði yfir hátíðarsvæðinu í
Vatnsfirði árið 1974 þegar Vest-
firðingar fögnuðu 1100 ára
afmæli Íslandsbyggðar var farg-
að þann 31. maí síðastlinn. Síð-
ustu árin stóð það á minjasafni
Egils Ólafssonar á Hnjóti við Pat-
reksfjörð.
„Auðvitað eru alltaf skiptar
skoðanir meðal manna þegar
farið er í svona aðgerðir en því
miður var ekkert annað hægt að
gera,“ segir Heiðrún Eva Kon-
ráðsdóttir, forstöðumaður minja-
safnsins. Einn þeirra sem sjá
eftir víkingaskipinu er Kristinn
Þór Egilsson, ábúandi á Hnjóti.
„Þetta er örugglega í fyrsta sinn
á Íslandi sem safngripur er tek-
inn og honum fargað,“ segir
hann.
Óskað var tilboða í skipið, að
sögn Heiðrúnar Evu, en engin
slík bárust. Hún segir enn frem-
ur að víkingaskipið, sem reynd-
ar var hannað sem leikmunur úr
gömlum hringnótabát, hafi verið
illa farið og fúið.
Magnús Ólafs Hansson, stjórn-
arformaður minjasafnsins, stað-
festir það og segir að það hafi
staðið úti síðan á þjóðhátíðinni
1974. Göt hafi verið komin í það
á mörgun stöðum þar sem viður-
inn hafi molnað í sundur. Kjöl-
urinn hafi verið sprunginn, vík-
ingahausinn sem settur var á það
fyrir hátíðina hafi dottið af og
því fátt sem minnti á hinn reisu-
lega leikmun sem setti svip sinn
á hátíðina á sínum tíma.
„Við ráðfærðum okkur við sér-
fræðinga á þessu sviði sem sögðu
að það myndi kosta tugi milljóna
að koma því í fyrra horf og það er
eitthvað sem við ráðum ekki við,“
segir hann.
Minjasafnið sendi Þjóðminja-
safni Íslands erindi þar sem
óskað var eftir áliti. Þjóðminja-
safnið svaraði á þá lund að þessi
munur væri til vitnis um það
hvernig Vestfirðingar fögnuðu
1100 ára afmæli Íslandsbyggð-
ar en það væri víðs fjarri að það
hefði eitthvert gildi sem endur-
byggt skip frá víkingaöld.
Eins og Heiðrún Eva sagði er
víkingaskipið búið til úr gömlum
hringnótabát en Þjóðminjasafnið
sá ekki heldur ástæðu til að varð-
veita skipið á þeim forsendum því
nú þegar væru til eintök af slík-
um bátum á öðrum íslenskum
söfnum.
Margt gefur þó að líta á minja-
safninu á Hnjóti. Þar eru nokkr-
ir bátar en einnig munir úr safni
Gísla heitins Gíslasonar á Upp-
sölum. Má þar nefna hattinn sem
karlinn skartaði þegar íslenskir
sjónvarpsáhorfendur kynntust
honum fyrst.
jse@frettabladid.is
Auðvitað
eru alltaf
skiptar skoðanir
meðal manna
þegar farið er í
svona aðgerðir.
HEIÐRÚN EVA KONRÁÐSDÓTTIR
FORSTÖÐUMAÐUR MINJASAFNS
EGILS ÓLAFSSONAR Á HNJÓTI
Þjóðhátíðarleikmun
frá árinu 1974 fargað
Víkingaskipi, sem gert var úr gömlum nótabát fyrir þjóðhátíð Vestfirðinga árið
1974, hefur verið fargað. Skipið olli slysahættu og það hefði kostað tugi milljóna
að gera það upp. Fyrsta sinn sem safnmun er fargað segir ábúandi á Hnjóti.
FÁTT SEM MINNIR Á FYRRI REISN Víkingaskipið var orðið fúið og hættulegt börnum
þegar það var tekið af minjasafninu og því fargað. MYND/HEIÐRUN EVA KONRÁÐSDÓTTIR
SLYS Karlmaður á sjötugsaldri
lést þegar bíll sem hann ók hafn-
aði utan vegar á Vatnsskarði um
miðjan dag á laugardag.
Maðurinn var einn í bílnum og
var úrskurðaður látinn á slys-
stað.
Tildrög slyssins eru nú rann-
sökuð, en bíllinn valt ekki þegar
hann lenti utan vegar. Lögreglan
á Blönduósi rannsakar málið. - þeb
Maður á sjötugsaldri lét lífið:
Missti bílinn út
af á Vatnsskarði
Erlendur maður lést
Erlendur ferðamaður á fimmtugsaldri
lést í Þjórsárdal á laugardag. Óskað
var eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, vegna alvarlega veiks
manns í sundlauginni í Laugardal, en
sú beiðni var svo afturkölluð eftir að
læknir á staðnum hafði úrskurðað
manninn látinn. Maðurinn var einn
á ferð. Verið er að rannsaka hvernig
andlát hans bar að.
LÖGREGLUMÁL
FÓLK „Það var mikið stuð hér og
rosalega gaman, en því miður
vantaði allan vind og því fóru
flugdrekarnir lítið sem ekkert á
loft,“ segir Guðlaugur Ottesen
Karlsson hjá Viðeyjarferjunni.
Ætlunin var að reyna við
Íslandsmet í flugdrekaflugi á
fjölskylduhátíð sem fram fór í
Viðey í gær. Fyrra met var sett
í eynni árið 2010. „Við reynum
bara aftur við þetta á næsta ári,“
segir Guðlaugur hress í bragði.
Samkvæmt tölum Viðeyjarferj-
unnar skemmtu sér tæplega 300
manns þar saman í gær. - trs
300 á fjölskylduhátíð í Viðey:
Logn skemmdi
flugdrekaflug
VIÐEY Meðal uppákoma á fjölskylduhátíð
í Viðey í gær var kennsla í að grilla pylsur
og poppa yfir eldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BRUNI Heimilisfaðir brást vask-
lega við þegar eldur kom upp í
baðherbergi íbúðarhúss á Reyðar-
firði í gærmorgun. Með slökkvi-
tæki að vopni réð hann niðurlög-
um eldsins áður en hann náði að
breiðast út um húsið.
Eldurinn kom upp þegar lítil
stúlka var læst inni á baðher-
bergi en heimilisfaðirinn braut
upp baðherbergisdyrnar og kom
stelpunni út. Í húsinu var einn-
ig eiginkona mannsins. Þegar
slökkvilið kom á vettvang var
maðurinn búinn að slökkva eld-
inn, en hann var sendur í skoð-
un á sjúkrahúsið í Neskaupstað
vegna gruns um reykeitrun. - jse
Bruni á Reyðarfirði:
Heimilisfaðir
bjargaði búinu
Daníel, verðið þið ekki kölkuð
af þessu?
Nei, nei, eða hvað varstu aftur að
segja?
Daníel Jakobsson er bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar. Hafrannsóknastofnunin
rannsakar um þessar mundir kalkþörung-
anámur í Ísafjarðardjúpi en fyrirhuguð er
vinnsla á þessum þörungi í bæjarfélaginu
STJÓRNSÝSLA Gera á ráð fyrir
því að þjóðaratkvæðagreiðsla
um tillögur stjórnlagaráðs fari
fram 20. október, á meðan ekki
hefur verið tekin önnur ákvörð-
un. Þetta kemur fram í bréfi Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdóttur, for-
seta Alþingis, til innanríkisráðu-
neytisins.
Innanríkisráðuneytið sendi
forsætisnefnd Alþingis bréf
þann 6. júlí þar sem óskað var
eftir staðfestingu þingsins á því
hvort 20. október verði kjördag-
ur þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Þingsályktunartillaga sem þingið
samþykkti í vor
gerir ráð fyrir
því að atkvæða-
greiðslan fari
f r a m e k k i
seinna en 20.
ok tóber, en
í lögum um
framkvæmd
þjóðaratkvæða-
greiðslna
ákveður
Alþingi kjördag. Innanríkisráðu-
neytið á svo samkvæmt lögunum
að auglýsa hana í síðasta lagi
mánuði fyrir kjördag.
Í bréfi forseta Alþingis segir að
erindi innanríkisráðuneytisins
verði lagt fyrir forsætisnefnd á
næsta fundi hennar í ágúst. „For-
sætisnefnd er ekki bær til þess að
staðfesta vilja eða áform Alþingis
eða túlka ályktanir þess á annan
hátt. Ef sérstök þörf er á verður
ráðuneytið því að bregðast við
alveg sjálfstætt,“ segir í bréfinu.
Þá segir þar að taki Alþingi aðra
ákvörðun um kjördag eftir að
það hefur komið saman í septem-
ber verði ráðuneytinu gerð grein
fyrir því.
- þeb
Undirbúa á þjóðaratkvæðagreiðslu út frá þingsályktunartillögu Alþingis:
Tuttugasti október verði kjördagur
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
STJÓRNSÝSLA „Maður náttúrulega
gleðst yfir öllu sem gert er til að
styrkja tjáningarfrelsið í sessi,“
segir Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamanna-
félags Íslands,
um stýrihóp
þriggja ráðu-
neyta sem vinn-
ur nú að end-
u r s k o ð u n á
tjáningar- og
upplýsingafrels-
islöggjöfinni.
„Ég trúi því að
það sé gríðarlega mikilvægt fyrir
íslenskt samfélag að tjáningar-
frelsið og fjölmiðlarnir séu styrktir
í því verkefni sínu að tryggja opna
og gagnsæja umræðu,“ segir Hjálm-
ar jafnframt.
Fram kom í Fréttablaðinu á laug-
ardag að stýrihópurinn skoði meðal
annars hvort afnema eigi heimild-
ir til lögbanns vegna væntanlegrar
birtingar efnis í fjölmiðlum og hvort
færa eigi meiðyrðamál úr hegning-
arlögum og yfir í skaðabótalög, en
þau yrðu þá einkamál.
Þá er verið að skoða hvernig
hægt er að tryggja vernd heimild-
armanna og uppljóstrara.
Alþingi samþykkti í fyrra þings-
ályktunartillögu Birgittu Jónsdótt-
ur og fleiri um að Ísland myndi
skapa sér afgerandi lagalega sér-
stöðu varðandi vernd tjáningar- og
upplýsingafrelsis. Að sögn Katrínar
Jakobsdóttur mennta- og menning-
armálaráðherra var fyrsta skrefið í
þeim áfanga endurskoðun fjölmiðla-
laganna. Hún segir skoðunina á
áframhaldandi breytingum brýna,
komið hafi á daginn að mikil þörf
sé á endurbótum í málaflokknum.
Hjálmar segir að nefndin hafi
sent erindi til Blaðamannafélagsins
vegna málsins og óskað umsagnar
þess. Hann segir að félagið sé að
byrja að skoða fyrirhugaðar breyt-
ingar og muni að sjálfsögðu koma
sjónarmiðum Blaðamannafélags-
ins á framfæri. Frestur til að skila
athugasemdum vegna málsins renn-
ur út 20. ágúst. - þeb
Formaður Blaðamannafélagsins ánægður með mögulegar lagabreytingar:
Mikilvægt að styrkja fjölmiðla
HJÁLMAR JÓNSSON
FERÐAÞJÓNUSTA „Við hlutum þessa
viðurkenningu í fyrra, fyrst allra
dagsferðar-
fyrirtækja hér-
lendis, og erum
mjög stolt af
að hafa hlotið
hana aftur í
sumar,“ segir
Guðmundur
Sigurðsson,
eigandi ferða-
skrifstofu-
nnar Gateway
to Iceland sem
hlotið hefur viðurkenningu fyrir
framúrskarandi frammistöðu frá
ferðavefnum Trip Advisor.
„Margir skipuleggja ferðalög
sín samkvæmt Trip Advisor. Við
höfum fengið mikil skrif þarna
inni og finnum vel fyrir því,“
segir Guðmundur. - trs
Gateway to Iceland hrósað:
Fá klapp á bak
frá Trip Advisor
GUÐMUNDUR
SIGURÐSSON
ÍÞRÓTTIR Anníe Mist Þórisdóttir
tryggði sér í gær sigur á Crossfit-
leikum Reebok, annað árið í röð.
Hún fær 250 þúsund Bandaríkja-
dali í verðlaunafé.
Anníe Mist byrjaði mótið
rólega en kleif hratt upp stiga-
listann og var svo gott sem búin
að tryggja sér sigurinn fyrir síð-
ustu greinina. Þá gat hún nánast
tekið því rólega. Anníe Mist er sú
fyrsta í stuttri sögu keppninnar
sem nær þeim árangri að vinna
tvö ár í röð. Titlinum fylgir nafn-
bótin „hraustasta kona heims“.
Anníe Mist hraustust í heimi:
Vann Crossfit-
leikana aftur
SPURNING DAGSINS
Ég trúi því að það sé
gríðarlega mikilvægt
fyrir íslenskt samfélag að
tjáningarfrelsið og fjölmiðl-
arnir séu styrktir í því verk-
efni sínu að tryggja opna og
gagnsæja umræðu.
HJÁLMAR JÓNSSON
FORMAÐUR BLAÐAMANNAFÉLAGSINS