Fréttablaðið - 16.07.2012, Page 15
Björg Gunnarsdóttir heldur úti heimasíðunni www.overone-coffee.com ásamt Önnu Gunn-
arsdóttur systur sinni. Við fengum að
kíkja inn á heimilið hennar og hún sýndi
okkur sína uppáhaldshluti. Björg hefur
mikinn áhuga á tísku og húsgögnum og
er dugleg að sækja sér innblástur og
prófa eitthvað nýtt. „Ég sæki innblástur
í tímarit og hjá vinum og ef ég fæ ein-
hverjar hugmyndir þá fletti ég þeim upp
á netinu. Ég hef líka verið dugleg að róta
á flóamörkuðum og finna gersemar þar,“
segir Björg.
Heimili Bjargar einkennist af róman-
tík og litum og þar er mikið af gömlum
hlutum. Þær systur byrjuðu með heima-
síðuna seinasta haust og er mikið af fólki
sem heimsækir síðuna dag hvern enda
eru þær duglegar að setja inn færslur.
Í haust ætlar Björg að flytja til Kaup-
mannahafnar þar sem hún er að fara
í starfsnám hjá tískumerkinu Bruuns
Bazaar en Björg er lærð í kjólasaum. Björg
mun halda áfram að blogga í Danmörku.
„Ég held að það verði gaman að blogga í
Køben því að ég mun þá vera í alveg nýju
umhverfi og fá nýjan innblástur. Anna
mun þó halda áfram að blogga frá Ís-
landi,“ segir Björg. ■ gunnhildur@365.is
LITRÍK OG RÓMANTÍSK
LISTRÆN SMEKKKONA Björg Gunnarsdóttir hefur mikinn áhuga á hönnun
en hún heldur úti lífsstílsbloggi ásamt systur sinni.
ÓLÍFUOLÍA SEM HREINSIEFNI
Auðvelt er að ná rákum og blettum af ryðfríu stáli með örlítilli
ólífuolíu. Hellið einfaldlega olíu í tusku og strjúkið yfir stálið.
Fægið síðan með þurrum eldhúspappír.
GAMLIR MUNIR
HEILLA
Björgu finnst gaman að
safna gömlum fallegum
hlutum eins og mynda-
vélum. Þá safnar hún
gömlum cappuccino
bollum sem hún finnur á
flóamörkuðum.
HEIMILISLEGT
Heimilið hennar
Bjargar er mjög litríkt
og fullt af gömlum
hlutum sem eiga sér
langa sögu.
Gerið gæða- og verðsamanburð
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
*3,5% lántökugjald
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*
NÝTT Sængurver
Handklæði
Sloppar
Púðar