Fréttablaðið - 16.07.2012, Síða 40
16. júlí 2012 MÁNUDAGUR20
sport@frettabladid.is
11. umferð pepsi-deildar karla lýkur í kvöld með þremur leikjum. Selfoss sækir ÍA
heim, Stjarnan tekur á móti Breiðablik á meðan Grindvíkingar koma í Árbæinn og spila gegn Fylki. Allir leik-
irnir hefjast klukkan 19.15 og verður fylgst með þeim öllum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
hANDbolti Íslenska landsliðið
hafnaði í þriðja sæti á æfinga-
móti í Frakklandi sem fram fór
um helgina. Ísland tapaði gegn
Spáni síðasta föstudag en vann svo
Túnis, 31-27, í bronsleiknum í gær.
Markvörðurinn Hreiðar Levý
Guðmundsson kom til bjargar í
leiknum í gær. Varði níu skot og
fékk aðeins á sig tvö mörk. Þegar
hann kom inn var Ísland fjórum
mörkum undir í leiknum. Ólafur
Stefánsson var einnig stórkostleg-
ur með tíu mörk í ellefu skotum.
„Í heildina er ég nokkuð sáttur
við leikinn þó svo það væru slak-
ir kaflar inn á milli. Við leystum
líka sóknarleikinn illa þegar Óli
var tekinn úr umferð. Við höfum
ekkert æft það en þurfum að fara
að vinna i því,“ sagði Guðmundur
sem var hæstánægður með að fá
þennan leik enda mun Ísland mæta
Túnis á Ólympíuleikunum í Lond-
on.
„Mér finnst varnarleikurinn á
hárréttri leið. Erum fljótir á fótum
og strategían að halda. Við fáum
of mörg hraðaupphlaup á okkur en
löguðum það. Markvarslan var góð
framan af en svo kom Hreiðar með
stórkostlega markvörslu. Hann og
vörnin voru frábær.“
Björgvin varði ágætlega í leikn-
um en innkoma Hreiðars var eins
og áður segir mögnuð.
„Hreiðar hefur verið að standa
sig mjög vel á æfingum og hefur
sýnt að hann er í góðu formi.“
Guðjón Valur Sigurðsson hvíldi
allan seinni hálfleikinn en hann er
enn að jafna sig af meiðslum.
„Það munaði um minna. Guðjón
er samt á réttri leið en við tökum
enga áhættu með hann,“ sagði
Guðmundur en Róbert Gunnars-
son og Snorri Steinn Guðjónsson
skiptust á að vera í horninu í seinni
hálfleik.
„Snorri leysti það mjög vel og
vonandi verður ekki þörf á því
að leysa þetta. Við vonum að það
verði í lagi með Guðjón í London.“
Ingimundur virðist vera búinn
að hrista af sér sín meiðsli og lék
af krafti í gær. Aron Pálmarsson
gat aftur á móti lítið leikið en hann
er slæmur í hnénu.
„Við þurfum að fá meira frá
honum. Það á að skoða hans mál
betur er við komum heim. Hann
kennir sér meins í hnénu.“
Guðmundur hrósaði fyrirliðan-
um Ólafi Stefánssyni sérstaklega
en hann var frábær í leiknum og
virkar í ótrúlega góðu formi.
„Ég hef ekki séð Óla svona
góðan síðan árið 2002. Hann var
stórkostlegur og er í ótrúlegu
formi,“ sagði þjálfarinn en hann
segir liðið vera á réttri leið í undir-
búningi sínum fyrir Ólympíuleik-
ana í London.
henry@frettabladid.is
Óli ekki verið svona góður í tíu ár
Guðmundur Guðmundsson hrósar landsliðsfyrirliðanum Ólafi Stefánssyni í hástert. Ólafur er í ótrúlegu
formi og skoraði tíu mörk í ellefu skotum gegn Túnis í gær. Hreiðar Levý Guðmundsson sneri þá töpuðum
leik við með hreint út sagt magnaðri markvörslu á síðustu fimmtán mínútum leiksins.
ótrúlegur íþróttamaður Hinn 39 ára gamli Ólafur Stefánsson er í lygilegu formi
þessa dagana og ætlar sér greinilega stóra hluti í London. fréttabLaðið/daníeL
KöRfUbolti Hörður Axel Vilhjálms-
son, landsliðsmaður Íslands í
körfubolta, hefur dregið sig úr
æfingahópi íslenska landsliðsins
sem tekur þátt í undankeppni Evr-
ópumóts karlalandsliða í ágúst og
september. Hörður heldur þess í
stað til móts við félag sitt Mittel-
deutscher BC í efstu deild þýska
körfuboltans og æfir með liðinu á
undirbúningstímabilinu.
Átján manna æfingahópur
Íslands, sem æfði af krafti í
júní, hefur æfingar á nýjan leik
á sunnudag manni færri. Hannes
S. Jónsson, formaður Körfuknatt-
leikssambands Íslands, segist
ekki reikna með að leikmaður
verði kallaður inn í æfingahópinn
í stað Harðar. Tólf leikmenn munu
skipa lokahópinn sem spilar fyrir
Íslands hönd í undankeppninni.
Hannes segir stjórn KKÍ og
afreksnefnd þurfa að endurskoða
vinnubrögð sín.
„Reglurnar hjá Körfuknatt-
leikssambandi Evrópu (FIBA) eru
þannig að við eigum leikmennina
okkar yfir sumartímann. Þetta er
spurning hversu mikið við viljum
ganga á hag leikmannsins,“ segir
Hannes.
„Við ætlum ekki að standa í vegi
fyrir Herði í þessu tilfelli en þetta
er ekki í fyrsta skipti sem þetta
gerist hjá okkur,“ bætir Hannes
við og segir A-landsliðið auk
yngri landsliða vera glugga fyrir
leikmenn til að koma sér á fram-
færi erlendis. Þannig hafi marg-
ir íslenskir leikmenn komist í
atvinnumennsku.
„Við teljum það gott fyrir
íslenskan körfubolta að eiga
atvinnumenn og höfum því ekki
staðið í vegi fyrir okkar leikmönn-
um. En við höfum heldur ekki átt
marga atvinnumenn undanfarin
ár,“ segir Hannes og bætir við að
þó fjölgun þeirra sé mikið fagnað-
arefni fyrir íslenskan körfuknatt-
leik megi það ekki koma niður á
landsliðinu.
Í vöxt hefur færst hjá atvinnu-
mönnum í íþróttum undanfarin
ár að gefa ekki kost á sér í lands-
lið þjóða sinna. Leikmenn fá laun
sín greidd hjá félögum sínum sem
óttast aukið álag og meiðslahættu
sem fyrir er í landsliðsverkefnum
leikmanna sinna.
„Félögin geta ekki sett leik-
mönnum sínum afarkosti. Auð-
vitað er þetta á endanum pers-
ónuleg ákvörðun hvers og eins
leikmanns,“ segir Hannes sem er
þó meðvitaður um að leikmenn séu
oftar en ekki undir mikilli pressu
frá félögum sínum. - ktd
Vandamál að atvinnumenn Íslands í körfubolta velji félög sín fram yfir landsliðið:
Þurfum að endurskoða vinnubrögð okkar
valdi frekar félagið Hörður axel tók
félagslið fram yfir landsliðið.
fréttabLaðið/daníeL
Vináttulandsleikur:
ísland-túnis 31-27 (15-15)
Mörk Íslands (skot): Ólafur Stefánsson 10/2
(11/2), Snorri Steinn Guðjónsson 8/2 (12/4),
alexander Petersson 6 (10), Kári Kristján Kristjáns-
son 2 (2), Guðjón Valur Sigurðsson 2 (5), arnór
atlason 1 (2), ingimundur ingimundarson 1 (2),
aron Pálmarsson 1 (3).
Varin skot: björgvin Páll Gústavsson 11, Hreiðar
Levý Guðmundsson 9.
úrslit
box Tveir áhugaverðir hnefa-
leikabardagar fóru fram um
helgina. Á Upton Park, heimavelli
West Ham, mættust þungavigtar-
kapparnir og ruslakjaftarnir
David Haye og Dereck Chisora.
Hvorugur þeirra er með hnefa-
leikaleyfi og var bardaginn
því ekki viðurkenndur af neinu
alvöru hnefaleikasambandi.
Engu að síður mættu 30 þúsund
manns í rigninguna á Upton Park
og sáu Haye steinrota Chisora í
fimm lotum.
Haye var hættur að berjast en
segist nú vilja berjast við Vitali
Klitschko. Hann hefur áður tapað
fyrir bróður hans, Wladimir.
Haye skoraði Vitali á hólm eftir
bardagann og hélt því fram að
Úkraínumaðurinn þorði ekki að
berjast við sig.
Í Las Vegas fór helsta vonar-
stjarna Breta, Amir Khan, illa að
ráði sínu gegn Bandaríkjamann-
inum Danny Garcia.
Khan með mikla yfirburði
framan af en í þriðju lotu náði
Garcia að slá Khan niður með
rosalegum vinstri krók. Khan
jafnaði sig aldrei og var bardag-
inn stöðvaður í fjórðu lotu.
Framtíð Khan er í mikilli
óvissu eftir bardagann enda
búinn að tapa tveimur bardögum
í röð. - hbg
Hnefaleikar um helgina:
Haye vann en
Khan tapaði
haye í stuði david Haye er hér að mis-
þyrma Chisora um helgina.
nordiC PHotoS/Getty