Fréttablaðið - 16.07.2012, Side 42
16. júlí 2012 MÁNUDAGUR22
Við bjóðum
góða þjónustu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
2
19
Íslandsbanki,
stoltur stuðningsaðili í 15 ár
Hlaupum til góðs
Á hlaupastyrkur.is getur þú safnað áheitum frá vinum
og vandamönnum til stuðnings góðgerðafélagi að eigin
vali. Láttu gott af þér leiða á hlaupum.
Skráning hafin á maraþon.is
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður að morgni menningar -
nætur þann 18. ágúst.Vegalengdir við allra hæfi og hægt að fara
heilt maraþon í boðhlaupi með 2-4 þátttakendum.
Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka 18. ágúst
GOLF Íslenska landsliðið náði ekki
því markmiði sínu að komast í
lokakeppni EM. Undankeppnin var
haldin á Hvaleyrarvelli í Hafnar-
firði. Þrjú efstu liðin af átta kom-
ust áfram og hafnaði Ísland í
fjórða sæti.
Ísland og Portúgal voru jöfn
í þriðja sæti eftir fyrsta daginn
en bilið á milli þeirra var orðið
tólf högg eftir annan daginn. Það
bil var of breitt og íslenska liðið
minnkaði muninn aðeins í eitt
högg lokadaginn og var því ellefu
höggum frá því að komast áfram.
„Það voru vissulega vonbrigði
að komast ekki áfram enda taldi
ég það vera raunhæft markmið að
komast áfram. Við vissum að Eng-
land og Holland væru með sterk lið
en Portúgalarnir komu verulega á
óvart. Breiddin hjá þeim var meiri
en við héldum. Þeir léku líka vel í
kulda og trekki. Þeir skildu okkur
eftir á öðrum degi og það bil var of
mikið,“ sagði Úlfar Jónsson lands-
liðsþjálfari.
Íslenska liðið saxaði nokkuð á
forskot portúgalska liðsins á fyrri
níu holum lokadagsins en gaf eftir
á seinni níu eins og áður í mótinu.
„Við nýttum ekki þau tæki-
færi sem við fengum á seinni níu.
Það er erfitt að segja hvað veld-
ur en leikmenn voru svolítið das-
aðir eftir meistaramótin. Þeir
virkuðu bæði líkamlega þreytt-
ir og ekki síst andlega. Meistara-
mótin eru fjórir dagar og taka á
andlegu hliðina,“ sagði Úlfar en
hann taldi fyrir mót að það myndi
hjálpa strákunum að vera nýkomn-
ir úr meistaramóti. „Það átti að
veita þeim sjálfstraust miðað við
hvað þeir léku vel en þeir virk-
uðu þreyttir í þessu móti og héldu
ekki út.“
Úlfar var ánægður með að 74
væri hæsta skor sem hefði talið hjá
íslenska liðinu á mótinu en á móti
kom að aðeins einn hringur af 18
hjá liðinu var leikinn undir pari.
„Það vantaði þessa tvo góðu
hringi á hverjum degi. Það var alls
ekki nógu gott að ná bara einum
hring á undir pari. Það olli von-
brigðum. Ég get ekki neitað því.“
Úlfar var nokkuð gagnrýndur
fyrir mótið vegna landsliðsvals-
ins. Hann skildi meðal annars
Íslandsmeistarann og heimamann-
inn Axel Bóasson eftir. Úlfar seg-
ist standa við sitt val.
„Það þýðir ekkert að horfa í bak-
sýnisspegilinn. Ég er alveg til í að
hlusta á gagnrýni en ég stend við
þetta val mitt. Ég var bara með
aðrar hugmyndir en sumir eins og
gengur. Menn eru ekki alltaf sam-
mála. Það er mitt starf að velja
þetta og ég stend og fell með því.“
Landsliðsþjálfarinn bendir samt
á að það sé lúxusvandamál að liðið
sé ekki sjálfskipað og að breidd-
in sé orðin þetta mikil í íslensku
golfi.
„Það koma margir til greina í
landsliðið og í sjálfu sér enginn
yfirburðamaður lengur. Þeir eru
mjög jafnir þessir strákar. Það er
mjög jákvætt. Strákarnir þurfa að
halda sér á tánum til þess að kom-
ast í liðið,“ sagði Úlfar en hann vill
að strákarnir fái að spila meira á
alþjóðlegum vettvangi.
„Við þurfum að gefa þessum
strákum fleiri tækifæri til að
keppa á alþjóðlegum mótum svo
þeir geti borið sig saman við menn
erlendis. Þeir geta lært margt af
þessu móti og munu vaxa með því
að spila oftar á svona mótum. Sem
betur fer eru líka fleiri strákar
farnir í háskólagolf í Bandaríkj-
unum og það á eftir að hjálpa þeim
mikið.“ henry@frettabladid.is
Enginn yfirburðamaður á Íslandi
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, segir jákvæða þróun vera í íslenska golfinu. Það sé ekki lengur einn
yfirburðamaður á landinu og breiddin sé orðin það mikil að menn þurfi að vera á tánum til þess að fá sæti
í landsliðinu. Íslenska landsliðið náði ekki að komast inn á lokakeppni EM sem fram fer á næsta ári.
ÓLAFUR BJÖRN LOFTSSON Spilaði best Íslendinganna á mótinu ásamt Guðmundi
Ágústi Kristjánssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
0-1 Björn Daníel Sverrisson (20.), 1-1 Atli
Sveinn Þórarinsson (45.), 2-1 Rúnar Már
Sigurjónsson (53.), 3-1 Rúnar Már Sigurjóns-
son, víti (60.)
Skot (á mark): 7-8 (4-6)
Varin skot: Ólafur 5 - Gunnleifur 1.
VALUR (4-3-3): Ólafur Þór Gunnarsson 7 - Matarr
Jobe 6, Atli Sveinn Þórarinsson 7, Halldór Kristinn
Halldórsson 6, Úlfar Hrafn Pálsson 5 - *Rúnar
Már Sigurjónsson 8, Haukur Páll Sigurðsson 7
(78., Andri Fannar Stefánsson -), Kristinn Freyr Sig-
urðsson 6 - Ásgeir Þór Ingólfsson 6 (75., Hörður
Sveinsson -), Matthías Guðmundsson 7 (84.,
Kolbeinn Kárason -), Guðjón Pétur Lýðsson 7
FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 5 - Guðjón
Árni Antoníusson 4, Guðmann Þórisson 5, Freyr
Bjarnason 5 (33., Bjarki Gunnlaugsson 6), Viktor
Örn Guðmundsson 4 (65., Danny Justin Thomas
5), - Pétur Viðarsson 6, Hólmar Örn Rúnarsson 7,
Björn Daníel Sverrisson 6 - Emil Pálsson 5 (65., Al-
bert Brynjar Ingason 4), Atli Guðnason 5, Atli Viðar
Björnsson 4. * MAÐUR LEIKSINS
Vodafonev., áhorf.: 1.467 Garðar Örn Hinriksson (8)
3-1
1-0 Christian Steen Olsen (26.), 2-0 Christi-
an Steen Olsen (60.), 2-1 Kristinn Ingi Hall-
dórsson (62.), 3-1 Þórarinn Ingi Valdimars-
son, víti (82.), 3-2 Steven Lennon (86.)
Skot (á mark): 9-10 (5-5)
Varin skot: Abel 3 - Ögmundur 2.
ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 6 - Matt Garner 6,
Brynjar Gauti Guðjónsson 5, Rasmus Christiansen
6, Arnór Eyvar Ólafsson 6 - George Baldock 7,
Guðmundur Þórarinsson 7, Gunnar Már Guð-
mundsson 4 (77., Andri Ólafsson -) - Þórarinn Ingi
Valdimarsson 7, Tonny Maweeje 6, *Christian
Steen Olsen 8. (66, Eyþór Helgi Birgisson 5)
FRAM (4-3-3): Ögmundur Kristinsson 5 - Halldór
Hermann Jónsson 6, Kristján Hauksson 5, Allan
Löwing 6, Daði Guðmundsson 4 (71., Jón Gunnar
Eysteinsson -) - Almarr Ormarsson 6, Hlynur Atli
Magnússon 6 (64., Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 5),
Sam Hewson 5 - Steven Lennon 7, Kristinn Ingi
Halldórsson 7, Sveinbjörn Jónasson 6 (83., Orri
Gunnarsson -). * MAÐUR LEIKSINS
Hásteinsvöllur, áhorf.: 552 Kristinn Jakobsson (7)
3-2
Pepsi-deild karla:
KR 11 7 2 2 23-14 23
FH 10 6 2 2 28-12 20
Stjarnan 10 5 4 1 23-17 19
ÍBV 10 5 2 3 20-11 17
Keflavík 11 4 3 4 19-16 15
Valur 11 5 0 6 16-15 15
Breiðablik 10 4 2 4 8-12 14
ÍA 10 4 2 4 14-22 14
Fylkir 10 3 4 3 12-18 13
Fram 11 3 0 8 13-19 9
Selfoss 10 2 2 6 13-20 8
Grindavík 10 1 3 6 14-27 6
STAÐAN
FÓTBOLTI Eftir magurt gengi í upp-
hafi móts er lið ÍBV komið í gang.
Eyjamenn unnu sinn fimmta leik
í röð í gær er Framarar komu í
heimsókn. ÍBV tapaði síðast leik
þann 24. maí.
Jafnræði var með liðunum í
leiknum en Eyjamenn nýttu færin
ólíkt gestunum sem hafa nú tapað
átta af fyrstu ellefu leikjum sínum
í deildinni.
„Framarar voru virkilega sterk-
ir í dag og léku vel. Við verðum að
teljast heppnir að hafa farið með
sigur af hólmi. Leikur okkar var
ekki nægilega beinskeyttur og ég
bjóst alveg eins við því. Ég er rosa-
lega ánægður með vinnuframlagið
hjá strákunum og þeir eiga mikið
hrós skilið,“ sagði Magnús Gylfa-
son, þjálfari ÍBV.
Valsmenn gerðu sér svo lítið
fyrir og unnu óvæntan heimasig-
ur á FH og sáu um leið til þess að
FH komst ekki á toppinn.
Fyrsti sigur Valsmanna eftir tvo
tapleiki í röð.
- hbg
Tveir leikir fóru fram í Pepsi-deild karla í gær:
Eyjamenn á siglingu
MARK Atli Sveinn Þórarinsson skorar hér fyrsta mark Vals í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN