Fréttablaðið - 08.09.2012, Síða 12
8. september 2012 LAUGARDAGUR12
Markmið þróunarsjóðsins er að styrkja
þróun afurða og upplifana utan háannatíma
ferða þjón ustu og auka arð semi fyrir tækja.
Samtals verða veittir styrkir úr sjóðnum sem
nema um 30 milljónum króna.
Studd verða samstarfsverkefni fyrirtækja
sem lengt geta ferðamannatímann á
tilteknum svæðum en einnig koma til
greina afbragðsverkefni stakra fyrirtækja.
Í umsókn þurfa að koma fram skýrar
hugmyndir um þá þjónustu og upplifun
sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og
varanlegum verðmætum. Verkefnin verða
að koma til framkvæmda innan þriggja
ára frá því að styrkur er veittur.
Umsóknar frestur er til 23. október 2012
og er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir
í desember.
Allar nánari upplýsingar er að fi nna
á landsbankinn.is.
Ísland allt árið
Þróunarsjóður
Landsbankinn og atvinnuvegaráðuneytið
auglýsa eftir umsóknum um styrki
í Ísland allt árið – þróunarsjóð.
KJARAMÁL Laun opinberra starfs-
manna eru um fimmtungi lægri
en laun á almennum markaði.
Þetta eru niðurstöður launakönn-
unar VR, SFR og Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar (STRV)
sem voru kynntar á blaðamanna-
fundi á Nauthóli í Nauthólsvík í
gær.
Þetta er í fyrsta skipti sem
félögin hafa með sér samstarf um
birtingu niðurstaðna launakann-
ana en þau hafa öll staðið fyrir
slíkum könnunum um árabil.
Könnunin leiddi í ljós að heild-
arlaun félagsmanna VR, SFR og
STRV hækkuðu um á bilinu sjö
til tíu prósent frá janúar 2011 til
janúar 2012. Þar af var launa-
skrið umfram kjarasamninga tvö
til þrjú prósent. Mest var hækkun
launa hjá félagsmönnum í STRV
eða tíu prósent. Hjá VR nam
hækkunin 7,4% og hjá SFR sjö
prósentum.
Laun félagsmanna hjá STRV
eru þó enn lægst launa þessara
hópa, 22% lægri en meðallaun
félaga VR að teknu tilliti til þátta
á borð við menntun starfsmanna.
Þá eru laun félaga í SFR 17,6%
lægri en meðallaun félaga VR.
Félagsmenn VR vinna á almenn-
um vinnumarkaði, félagsmenn
SFR hjá ríki, sjálfseignarstofn-
unum og opinberum fyrirtækjum
og félagsmenn STRV vinna fyrir
Reykjavíkurborg, Akraneskaup-
stað og nokkur opinber fyrirtæki
og stofnanir.
Loks hafa litlar breytingar orðið
á kynbundnum launamun meðal
félaga í félögunum þremur. Launa-
munur, sem eingöngu er hægt að
rekja til kynferðis, mælist nú 9,4%
af heildarlaunum hjá VR, 12,1%
hjá SFR og 11,8% hjá STRV.
- mþl
Niðurstöður launakönnunar VR, SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurbogar birtar:
Opinberir starfsmenn með 20% lægri laun
NAUTHÓLI Í GÆR Þeir Árni Stefán Jóns-
son, formaður SFR, Stefán Einar Stefáns-
son, formaður VR, og Garðar Hilmarsson,
formaður STRV, kynntu niðurstöður
launakönnunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Hvað heitir nýjasta mynd leik-
stjórans Reynis Lyngdal?
2. Hversu mikið hækkuðu laun
forstjóra Landspítalans um síðustu
mánaðamót?
3. Hvað heitir landsliðsþjálfari
Noregs?
SVÖR:
1. Frost 2. Um 450 þúsund 3. Egil Olsen
FRAKKLAND, AP Franska lögreglan
vonast til þess að tvær ungar stúlk-
ur geti veitt lögreglu einhverjar
upplýsingar sem gagnast mættu til
að hafa hendur í hári árásarmann-
anna, sem myrtu foreldra þeirra þar
sem þau voru á ferðalagi í Frakk-
landi.
Enn er ekkert vitað um ástæðu
árásarinnar eða hvort einn eða
fleiri stóðu að verki.
Breskir fjölmiðlar töldu í gær
grun hafa beinst að Zaid al Hilli,
bróður hins myrta Saads al Hilli,
en þeir bræður voru sagðir hafa átt
í hörðum deilum um peningamál.
Zaid sagði á síðasta ári upp störfum
í fyrirtæki bróður síns í Bretlandi,
þar sem fjölskyldan bjó. Hann hafði
hins vegar samband við lögregluna
í Bretlandi og sagði ekkert hæft í
því að hann ætti í deilum við bróð-
ur sinn. Breska lögreglan hefur ekki
séð ástæðu til að handtaka hann.
Árásarmennirnir myrtu Zaid,
eiginkonu hans og sænska konu,
sem einnig var í bifreiðinni, ásamt
breskum hjólreiðamanni, sem bjó
í næsta nágrenni og virðist hafa
komið að árásarstaðnum fyrir til-
viljun.
Öll voru þau skotin í höfuðið, að
minnsta kosti þremur skotum var
skotið í hvert þeirra en alls var 25
skotum hleypt af í árásinni.
Stúlkurnar tvær, sem eru fjög-
urra og sjö ára, lifðu af árásina,
sú yngri með því að fela sig undir
fótum móður sinnar í bifreiðinni,
en sú eldri liggur alvarlega slösuð
á sjúkrahúsi með skotsár á öxl og
meiðsli á höfði.
Málið tengist mörgum löndum og
hefur lögreglan í að minnsta kosti
þremur þeirra tekið þátt í rann-
sókninni. Fjölskyldan bjó í Bret-
landi en var ættuð frá Írak og Sví-
þjóð. Breski hjólreiðamaðurinn bjó
í Frakklandi, í næsta námunda við
morðin, en ekki er talið að hann
hafi haft nein tengsl við Zaid og fjöl-
skyldu hans. - gb
Talið að atvinnumaður hafi verið ráðinn til verksins:
Lögreglan leitar að
ástæðu morðanna
Á VETTVANGI MORÐANNA Blaðamenn og ljósmyndarar önnum kafnir að skoða
staðinn og taka myndir. NORDICPHOTOS/AFP