Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 20
20 8. september 2012 LAUGARDAGUR
Heyrst hefur að ríkisstjórn Íslands hafi í hyggju að
hækka virðisaukaskatt á gisti-
þjónustu úr 7% í 25,5%. Við hjá
Icelandair Group og ferðaþjónust-
an í heild teljum að slíkt sé mis-
ráðið hjá ríkisstjórninni því miðað
við núverandi aðstæður þá er veru-
leg hætta á að slík aðgerð muni
minnka tekjur ríkissjóðs í stað
þess að auka þær. Að sjálfsögðu
munu virðisaukaskattstekjur ríkis-
sjóðs af seldum gistinóttum aukast
við hækkunina – um það efast eng-
inn. Aðrar tekjur ríkissjóðs munu
hins vegar dragast saman með
fækkun ferðamanna og það er mat
mitt og sérfræðinga Icelandair
Group að nettóáhrifin verði nei-
kvæð fyrir ríkissjóð þegar upp er
staðið. Icelandair Group er stór
hagsmunaaðili í íslenskri ferða-
þjónustu og er meðal annars eig-
andi Icelandair-hótelanna og
Eddu-hótelanna. Hagsmunir okkar
eru því ríkir.
Skýrsla Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands (HHÍ)
Í vikunni kom út skýrsla HHÍ, sem
unnin var fyrir fjármálaráðuneyt-
ið, um áhrif þess að hækka virðis-
aukaskatta á gistiþjónustu. Skýrsl-
an er ágæt og styður að mestu við
rök mín og ferðaþjónustunnar.
Lestur hennar hefur ekki minnkað
áhyggjur mínar af því að hækkun
virðisaukaskatts á gistingu muni
leiða til verri afkomu ríkissjóðs.
Í skýrslunni er ýjað að því að
lækkun virðisaukaskatts á hótel-
gistingu og veitingasölu úr 14%
niður í 7% árið 2007 hafi ekki
skilað sér til viðskiptavina. Í til-
viki Icelandair Group er rétt að
halda því til haga að öll okkar
hótel lækkuðu verð á hótelgist-
ingu í mars 2007 um 6,14% og verð
á veitingum á hótelum okkar lækk-
aði um 7-10% við sama tilefni. Rétt
skal vera rétt: Virðisaukaskatt-
slækkunin skilaði sér því beint til
allra viðskiptavina hótela okkar
– bæði innlendra og erlendra. Að
sama skapi mun virðisaukaskatt-
shækkun fara beint út í verðlag og
draga úr eftirspurn.
Fækkun ferðamanna vegna
virðisaukaskattshækkunar
Í skýrslunni segir að hækkun
virðisaukaskatts á gistiþjónustu
geti fækkað ferðamönnum ann-
ars vegar um 3.400–23.400 og
hins vegar um 15.000–48.000 á
ári. Mismunurinn ræðst af mis-
munandi forsendum hvað varðar
hlutfall gistikostnaðar af heildar-
ferðakostnaði og forsendum um
verðteygni. Okkar rannsóknir
benda til þess að fækkunin geti
orðið um 40.000 frá fyrri áætlun-
um, sem er innan þess ramma sem
HHÍ nefnir í skýrslu sinni. KPMG
notaðist við þá tölu í nýlegri grein-
argerð um áhrif virðisaukaskatt-
shækkunar á ferðaþjónustuna og
tekjur ríkissjóðs.
Í greinargerð KPMG er reynt að
áætla tekjumissi ríkissjóðs vegna
fækkunar ferðamanna og styttri
dvalartíma þeirra sem munu koma
vegna skattbreytinganna. Niður-
staða þeirra er að áhrif hækkun-
arinnar yrðu neikvæð á afkomu
ríkissjóðs.
Ekki tekið tillit til annarra
áhrifa af skattbreytingunni
Það sem dregur úr vægi skýrslu
HHÍ er að í henni er ekkert reynt
að meta hvaða áhrif fækkun ferða-
manna um allt að 48.000 á ári hefði
á aðra skattstofna hins opinbera.
Slík fækkun mun hafa bein áhrif
á fjölda starfsmanna í greininni,
veltu veitingastaða og annarra
þjónustuaðila – eins og öllum ætti
að vera augljóst. Ferðamaður sem
ekki kemur til landsins verður
ekki skattlagður.
Í lok skýrslu HHÍ segir berum
orðum: „Þessi greining tekur ekki
tillit til þess óhagræðis sem ætíð
leiðir af hækkun skatta og ekki
heldur til þess að hvati til undan-
skota eykst með hærra skatthlut-
falli.“ Á mannamáli þýðir þetta
að aðeins hluti myndarinnar er
dreginn upp. Með öðrum orðum
þá reynir HHÍ ekkert að meta
afleidd, neikvæð áhrif hækkunar-
innar á ríkissjóð, þ.e. hver tekju-
missirinn verður á móti tekju-
aukningunni. Þetta er að mörgu
leyti villandi framsetning – enda
eðlilegt að taka ákvarðanir út frá
heildaráhrifum skattabreytinga á
ríkissjóð. Þessi áhrif voru nýlega
metin af KPMG og niðurstaðan er
sú að virðisaukaskattshækkunin
virðist vera dæmd til að mistak-
ast að auka tekjur ríkissjóðs.
Niðurstaða HHÍ
Það er erfitt að lesa út úr skýrslu
HHÍ hvort skýrsluhöfundar mæli
með hækkun VSK á gistinætur
eða ekki. Á bls. 21 í skýrslunni
segir: „Ef jafnframt má gera ráð
fyrir að Ísland haldi áfram að vera
áhugaverður valkostur erlendra
ferðamana og að komum þeirra
til Íslands haldi áfram að fjölga
sýnist sem nú gæti verið heppileg-
ur tími til að hækka aftur virðis-
aukaskatt á gistiþjónustu. Þó ber
að hafa í huga að slík breyting
gæti orðið til þess að fæla hluta af
þessari starfsemi út af markaði og
þar með minnka virðisaukaskatts-
stofninn.“ Jafnframt segir í skýrsl-
unni á bls. 30: „Hér hefur ekki
verið litið til annarra áhrifa sem
lækkun virðisaukaskatts gæti hafa
haft í för með sér, en að öllu jöfnu
má gera ráð fyrir að lágur skatt-
ur dragi úr líkum á undanskotum
frá skatti og stækki skattstofn. Í
nýlegri skýrslu Alþýðusambands
Íslands, Samtaka atvinnulífsins og
Ríkisskattstjóra er bent á að vís-
bendingar séu um að sá pottur sé
einna helst brotinn í hótel- og veit-
ingaþjónustu.“
Lokaorð
Ég fagna skýrslu HHÍ enda er
mikilvægt að efla faglega umræðu
um ferðaþjónustuna og skattlagn-
ingu á greinina. Ein af ályktunum
skýrslunnar um að ferðamönnum
gæti fækkað um allt að 48.000 við
hækkun virðisaukaskatts á hótel-
gistingu hefur styrkt mig í trúnni
um neikvæð áhrif breytinganna á
afkomu ríkissjóðs.
Fækkun ferðamanna mun draga
úr öðrum skatttekjum ríkissjóðs,
leiða til fækkunar starfa í grein-
inni um allt land og draga úr
nýfjárfestingu. Auðvitað vita hag-
fræðingar Háskóla Íslands að það
er eðlilegast að meta heildaráhrif
skattbreytinga á afkomu ríkis-
sjóðs – en ekki einblína á einn anga
slíkra skattabreytinga eins og þeir
gera í skýrslunni.
Í skýrslu HHÍ er stuðst við
hagtölur frá árinu 2009 og viður-
kennt að ekki séu til upplýsingar
um hvaða áhrif verðbreytingar
hafa á eftirspurn eftir hótelgist-
ingu á Íslandi. Þetta eitt og sér er
umhugsunarefni og sýnir svart
á hvítu að efla þarf frekar rann-
sóknir tengdar ferðaþjónustu. Án
réttra og nýrra gagna er erfitt að
taka réttar ákvarðanir og ég vona
að fjármálaráðherra endurskoði
afstöðu sína og vinni tillögur sínar
í sátt við ferðaþjónustuna í heild
sinni.
Tilgangur virðisaukaskattkerf-
isins er tekjuöflun. Ég fullyrði að
ég tala fyrir hönd allra sérfræð-
inga Icelandair Group í ferðaþjón-
ustu – að hækkun virðisaukaskatts
á gistinætur hótela mun hafa nei-
kvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs.
Þá er betur heima setið en af stað
farið.
Í upphafi skal endinn skoða
Foreldrar eru fyrstu kennarar barna sinna og þeir aðilar sem
lengst fylgja þeim eftir í lífinu.
Fjöldi rannsókna sýnir fram á að
þátttaka foreldra í námi barnanna
styrkir þau í námi, það á einn-
ig við um árangur þeirra í lestri.
Afburðagóðan árangur finnskra
barna í lesskilningi má rekja til
menntunar- og félagslegra þátta,
finnskir foreldrar lesa mikið.
Á bókasöfnum þar í landi hefur
almenningur mjög gott aðgengi að
bókum og blöðum, en lestrarfærni
tengist sterklega því umhverfi sem
börn alast upp í. Það skiptir því
máli að:
■ börn hafi aðgang að bókum
heima, helst bókum sem þeim
finnst áhugaverðar
■ börn finni að lestur sé mikil-
vægur
■ bækur séu til á heimilinu, að
börn sjái foreldra sína lesa
■ foreldrar lesi mikið og lesi sér
til ánægju
■ börn lesi og að foreldrar hlusti
af áhuga á þau lesa
■ börn og foreldrar ræði saman
um það sem börnin lesa
■ foreldrar haldi áfram að lesa
fyrir börn sín þótt þau geti lesið
hjálparlaust.
Læsi er ekki námsgrein heldur
grundvallarfærni sem gengur
þvert á allar námsgreinar og er
undirstaða annars náms og starfa
í samfélaginu. Því er mikilvægt
að heimili og skólar séu samstiga
í því að styrkja læsi barna.
Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu
þjóðirnar helgað 8. september mál-
efnum læsis. Í ár taka Íslending-
ar þátt í þessum alþjóðlega degi
í fjórða skiptið. Í tilefni af Degi
læsis eru fjölskyldur hvattar til
að skipuleggja 30 mínútna sam-
verustund, þar sem lesið er saman,
bækur skoðaðar og rætt um efni
bókanna.
Nokkur dæmi um það sem fjöl-
skyldur geta gert:
■ Lestur um tiltekið efni. Sam-
mælist um efnið. Finnið misþungt
lesefni, þannig að allir hafi lesefni
miðað við aldur og leikni. Hafið
lestrartíma þar sem allir lesa sitt
efni í hljóði. Hver og einn getur
síðan sagt frá sínu lesefni. Takið
saman í lokin hvers fjölskyldan
varð vísari.
■ Spilið spil þar sem lesa þarf
texta til að geta haldið áfram. Gæti
verið heimatilbúið slönguspil.
■ Ráðið krossgátur saman.
■ Teiknið upp kort sem sýnir leið-
ir að heimilinu, í vinnu, verslun,
skóla. Merkið götuheiti og helstu
kennileiti.
■ Segið barninu frá bókum sem
þið hafið lesið og gefið barninu
tækifæri til þess sama.
■ Farið oft með barnið á bókasafn-
ið til að fá lánaðar bækur.
■ Hafið gott aðgengi að bókum,
tímaritum og hljóðbókum á heim-
ilinu.
■ Verið góð fyrirmynd, sérstak-
lega er feðrum og öðrum karl-
mönnum í fjölskyldum drengja
bent á mikilvægi þess að vera góð
fyrirmynd við lestur.
■ Gerið barnið að þátttakanda
í daglegum lestrar- og skrift-
arathöfnum fjölskyldunnar, t.d.
þegar þið lesið blöðin eða skrifið
innkaupalista. Fáið barnið til að
hjálpa til við að finna vörur í hill-
um verslana, lesa mataruppskrift-
ir um leið og eldað er, lesa dagskrá
sjónvarpsins og textann á skján-
um, lesa leiðbeiningar sem til eru
á heimilinu, skrifa og lesa á kort
og tölvupóst, skoða vefsíður og
tölvuforrit. Börn stíga sín fyrstu
spor í lestri og læsi með fjölskyld-
unni. Þau verða fyrir áhrifum frá
henni. Viðhorf, áhugi og notkun
lesefnis á heimili hefur bein áhrif
á lestrar- og skriftargetu barnsins.
Börn og lestur – mikilvægi foreldra
Ben Stiller og Þórey
Fjári var það gott hjá Þór-eyju Vilhjálmsdóttur, fram-
kvæmdastjóra borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðismanna, að
benda á hér í Fbl. að lögin um
endurgreiðslu 20% kostnaðar
við kvikmyndir framleiddar hér
á landi hafa reynst einstaklega
farsæl. Þau hafa meðal annars,
eins og Þórey bendir á, laðað
hingað frægar kvikmynda-
stjörnur eins og Ben Stiller, og
ekki má nú gleyma harðjöxlum
eins og Clint Eastwood, sem við
Geir H. Haarde vorum samtíða
í líkamsrækt í World Class um
árið þegar hann gerði Flags of
Our Fathers.
Það er líka aldeilis rétt hjá
henni, að þessi lög skapa vinnu
fyrir um 800 manns við kvik-
myndagerð á Íslandi, og hafa
kallað heim aftur úrvalsfólk,
sem hafði sytrað til útlanda í
erfiðu árferði. Þá eru ótaldar
þær þúsundir starfa sem skil-
greina má sem afleidd störf
vegna kvikmyndaframleiðsl-
unnar hér á landi. Á það bendir
Þórey réttilega líka.
Framkvæmdastjóri borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðis-
manna gleymir hins vegar einu
í annars afbragðsgóðri grein.
Þessi merku lög voru upphaf-
lega barin í gegn af Finni Ing-
ólfssyni, iðnaðarráðherra Fram-
sóknarflokksins, við töluverða
erfiðleika gagnvart Sjálfstæðis-
flokknum, sem Þórey vinnur
fyrir. Finnur lagði til, og fékk
samþykkta, 14% endurgreiðslu.
Sjálfsagt er að láta hann njóta
þess frumkvæðis. Þegar fram
liðu stundir hækkuðu önnur
lönd sína endurgreiðslu. Við
það dapraðist mjög segulmagn
og samkeppnishæfni Íslands á
þessu sviði.
Þegar ég varð iðnaðarráð-
herra 2007 átti ég fundi með
kvikmyndagerðarfólki sem
færði afar sterk rök fyrir
nauðsyn þess að hækka endur-
greiðsluna upp í 20%. Ég fór
með málið af stað en þótt ég
ólmaðist eins og kviðsítt naut
í mýri mætti ég hörðum vegg
hjá Sjálfstæðisflokknum sem
var líka í þáverandi ríkisstjórn.
Flokkurinn, sem Þórey vinnur
fyrir, var einfaldlega á móti því
að hækka endurgreiðsluna upp
í 20%.
Það kvað við annan tón þegar
Vinstri hreyfingin – grænt
framboð tók sæti í ríkisstjórn. Á
öðrum fundi þeirrar ríkisstjórn-
ar tók ég upp úr skúffu frum-
varpið sem Sjálfstæðisflokkur-
inn vildi aldrei sjá í ríkisstjórn
– og það rann í gegn. Alþingi
samþykkti 20% endurgreiðsluna
í kjölfarið. Síðan rann upp það
blómaskeið í kvikmyndagerð á
Íslandi sem framkvæmdastjóri
borgarstjórnarflokks Sjálfstæð-
ismanna lýsti svo fallega í grein
sinni hér í Fbl. á dögunum.
Það var því þrátt fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, en ekki vegna
hans, sem Ben Stiller, Tom
Cruise og annað stjörnuglit kom
hingað til að gera stórmyndir
sínar í sumar.
Kvikmynda-
framleiðsla
Össur
Skarphéðinsson
utanríkisráðherra
Ferðaþjónusta
Björgólfur
Jóhannsson
forstjóri Icelandair
Group
Menning
Ingibjörg
Auðunsdóttir
sérfræðingur á Miðstöð
skólaþróunar við
Háskólann á Akureyri