Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 28
8. september 2012 LAUGARDAGUR28
FRAMHALD Á SÍÐU 32
H
ilmar Bragi Janusson er
önnum kafinn maður og
hægara sagt en gert fyrir
hann að gefa sér tíma til
að spjalla við blaðamann
enda í óðaönn að ljúka und-
irbúningi fyrir sitt fyrsta skólaár sem for-
seti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs við
Háskóla Íslands. Hann segir það vissulega
viðbrigði að söðla um eftir 20 ára starf hjá
stoðtækjaframleiðandanum Össuri.
Sumum kann að koma það spánskt fyrir
sjónir að maður í góðri stöðu hjá einu fram-
sæknasta fyrirtæki í íslensku atvinnulífi
og öðru af tveimur stærstu fyrirtækjum í
heimi á sínu sviði skuli gefa það upp á bát-
inn. Hilmar Bragi bendir á að það sama hafa
verið upp á teningnum þegar hann gekk til
liðs við Össur.
„Þá þótti mörgum fífldjarft að ganga til
liðs við svo til óþekkt sprotafyrirtæki frá
svo til óþekktu landi. Það var fyrir daga
Bjarkar og Decode og umheimurinn vissi
sáralítið um Ísland. Síðan höfum við farið
allan hringinn til frægðar og frægðar af
endemum.“
Hann þekkir orðróminn um að háskólar
séu þunglamalegar stofnanir og lítt sveigj-
anlegar en segir það hins vegar orðum
aukið.
„Ansi margt sem sagt er um háskóla-
samfélagið er mýtur; Háskóli Íslands er
mun skilvirkari og öflugri stofnun en marg-
ir gera sér grein fyrir. Þetta er svipaður
vinnustaður og Össur að því leyti að hann
er að miklu leyti knúinn af ástríðu og metn-
aði starfsmanna og slíkt umhverfi hentar
mér mjög vel.“
Súpukjötshagkerfið
Hilmar Bragi er fæddur árið 1965 á Akra-
nesi. Hann lærði efnafræði við Háskóla
Íslands og lauk síðar doktorsprófi í verk-
fræði og efnisvísindum. Hann segist í sjálfu
sér ekki hafa stefnt á frama í nýsköpunar-
geiranum þegar hann tók stefnuna í dokt-
orsnámi.
„Ég sá fyrir mér að snúa bara aftur heim
á Akranes eftir nám. Starfsmöguleikarnir
sem mín kynslóð sá fyrir sér var miklu tak-
markaðri en í dag.“ Hilmar kynntist hins
vegar ungur þeirri hugmyndafræði að til
að bæta lífskjör hér á landi til frambúðar
yrðu Íslendingar að leggja frekar rækt við
nýsköpun en hinar hefðbundnu grunngrein-
ar sem alfarið byggja á frumnýtingu auð-
linda. Þessari hugmyndafræði, sem mótaði
hann til frambúðar, kynntist hann óvænt-
um stað.
„Ég var svo heppinn að kynnast Jóni Sig-
urðssyni, forstjóra Járnblendifélagsins á
Grundartanga, í gegnum fyrsta starf mitt
eftir Háskóla Íslands. Jón hafði mikil áhrif
á mig, eins og flesta sem kynntust honum.
Hann hefur mjög skýra sýn á lífið og sam-
félagið og var eindreginn talsmaður þess
að það þyrfti að skjóta fleiri stoðum undir
atvinnulífið á Íslandi og horfði þá einkum til
þekkingargeirans.
Hilmar kallar þessa gömlu ofuráherslu á
auðlindahagfræði „súpukjötshagkerfið“, þar
sem allt gengur út hámörkun framleiðslu-
magns.
„Slík hugmyndafræði gengur um of á
auðlindir landsins og þurreys þær, hvort eð
heldur með virkjunum eða ofveiði. Athug-
aðu, að við Jón tilheyrum báðir iðnaðar-
framleiðslu, en hann vissi sem var að þetta
fyrirkomulag eitt og sér gengi ekki til lengd-
ar. Mér finnst þetta sýna að hægt er að nálg-
ast þessa uppbyggingu öðruvísi heldur en
bara með „annaðhvort eða“-rökum.“
Stoðtækjaframleiðandinn Össur, þar sem
Hilmar hóf síðar störf, tileinkaði sér sams
konar hugmyndafræði, ekki síst vegna við-
horfa frumkvöðulsins, Össurar Kristjáns-
sonar.
„Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, var á
sömu bylgjulengd og nafni hans hjá Járn-
blendifélaginu. Þar hef ég alltaf fundið
góðan hljómgrunn fyrir skoðunum mínum
hjá eigendum og stjórnendum sem sést best
á fjárfestingun fyrirtækisins í nýsköpun.
Þessi viðhorf eru enn þá sterkt aðdráttar-
afl fyrir viðskiptavini, starfsmenn og fjár-
festa. Þótt við værum fyrst og fremst drifin
áfram af því bæta lífsgæði fatlaðra, lögðum
við okkar af mörkum til eflingar nýsköpun-
argeiranns þegar við byggðum fyrirtækið.“
Ástríða fyrir nýsköpun
Hilmar Bragi vann hjá Iðntæknistofnun
áður en hann tók stökkið yfir til Össurar.
Ástæðan fyrir því að hann gekk til liðs við
stoðtækjaframleiðandann var að finna vís-
indaþekkingu sinni hagnýtan farveg. Hann
rifjar upp að árið 1992 var ástandið á Íslandi
ekki ósvipað því sem það er nú.
„Við erum dálítið fljót að gleyma en í upp-
hafi 10. áratugarins var samdráttarskeið hér
á landi og talsverð deyfð yfir samfélaginu
og manni fannst allt vera að fara til fjand-
ans og skynsamlegast að koma sér úr landi.“
Til að sporna við barlómnum stofnaði
Hilmar Bragi ásamt félögum sínum óform-
legan klúbb, „jákvæða félagið“, en þeir áttu
sameiginlegt að hafa brennandi ástríðu
fyrir nýsköpun. „Þráhyggju, myndu jafn-
vel sumir segja,“ segir hann og hlær. „Við
hittumst reglulega og ræddum málin, skipt-
umst á hugmyndum og lesefni og hvöttum
hver annan til dáða. Við vildum hins vegar
ekki sitja við orðin tóm og þegar ég komst
á snoðir um þetta litla fyrirtæki, Össur, sá
ég að þarna gæti ég fundið þekkingu minni
á efnisvísindum og verkfræði farveg og sló
til. En allir í klúbbnum hafa tekið þátt í eða
starfað við nýsköpun hver á sínu sviði.“
Framhaldið þekkja allir. Össur varð eitt
farsælasta fyrirtæki landsins og leiðandi
nýsköpunarfyrirtæki á heimsvísu. Því til
vitnis má nefna að yfirgnæfandi fjöldi kepp-
enda á Ólympíuleikum fatlaðra sem standa
nú yfir notar stoðtæki frá Össuri. Sem fram-
kvæmdastjóri vöruþróunar og vísindastarfs
gegndi Hilmar Bragi lykilhlutverki í fyrir-
tækinu.
Velgengni Össurar
En hver var lykillinn að velgengni fyrirtæk-
isins? Hilmar Bragi segir marga þætti hafa
lagst á eitt, félagslega, pólitíska og efna-
hagslega.
„Fyrirtækið byggði á reynslu í heilbrigð-
isþjónustu sem var sérlega metnaðarfull og
gengið mjög langt við það að finna lausnir
sem nýttust notendunum. Einnig voru hlutir
í umhverfinu sem sköpuðu sérstöðu. Í fyrsta
lagi má nefna aldurssamsetningu þjóðarinn-
ar; þrátt fyrir að lífslíkur væru mjög góðar
var þjóðin enn tiltölulega ung. Helstu ástæð-
ur þess að fólk þurfti gervilimi og önnur
stoðtæki voru bíl- og vinnuslys. Fyrir vikið
miðaðist hönnun okkar við ungt fólk en víða
annars staðar voru það fyrst og fremst aldr-
aðir sem þörfnuðust stoðtækja.
Í öðru lagi má nefna velferðarkerfið á
Ísland. Nágrannar okkar greiða það góðar
bætur til þeirra sem missa útlimi að fólk er
fjárhagslega sjálfstætt eftir slys. Því var
ekki að heilsa hér á landi og það var því mik-
ilvægt að koma fólki sem slasaðist aftur á
vinnumarkaðinn. Hönnun okkar miðaðist
Hentar vel að vera á flekaskilum
Hilmar Bragi Janusson, fyrrverandi framkvæmdastjóri þróunar- og rannsóknarsviðs stoðtækjaframleiðandans Össurar, var á
dögunum ráðinn forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Í samtali við Bergstein Sigurðsson ræðir Hilmar Bragi
lykilinn á bak við velgengni Össurar, samruna háskóla og atvinnulífs og óþrjótandi möguleika þekkingargeirans.
HILMAR BRAGI JANUSSON Nýbakaður forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs segir það markmið sitt að skapa umhverfi þar sem afrakstur rannsókna komist fljótt og vel í hagnýtan farveg. Tækifærin séu ótæpileg.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nágrannar okkar greiða það góðar bætur til
þeirra sem missa útlimi að fólk er fjárhagslega
sjálfstætt eftir slys. Því var ekki að heilsa hér á
landi og það var því mikilvægt að koma fólki sem slasaðist
aftur á vinnumarkaðinn.