Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 38

Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 38
8. september 2012 LAUGARDAGUR38 Vonbrigði Í ræðu sinni á landsþingi repú- blikana í síðustu viku sagði Romney Bandaríkjamenn hins vegar búna að fá meira en nóg af Obama, þótt þeir hafi haft trú á honum fyrir fjórum árum. Hann sagði Bandaríkjamenn trúa á frelsið og framtíðina, þar á meðal frelsið til að segja hug sinn og búa sér í haginn í lífinu: „Og já, líka frelsið til að byggja upp fyrirtæki. Af eigin ramm- leik.“ Hann sagði vonleysið vera farið að ná tökum á þjóðinni, en sjálfur gæti hann snúið þessari þróun við, og vitnaði til reynslu sinnar af því að byggja upp fyrir- tæki, sem stundum hafi geng- ið vel en stundum illa: „Þetta er það sem þessi forseti virðist ekki skilja. Að fyrirtæki og fleiri störf snúast um að taka áhættu, mistakast stundum en takast stundum vel upp, en alltaf að reyna. Þetta snýst um drauma.“ Efnahagsmálin Báðir leggja þannig mikla áherslu á efnahagsmálin. Obama beinir athyglinni að þeirri erfiðu stöðu sem hann fékk í arf frá forvera sínum, repúblik- ananum George W. Bush. Krepp- an hafi verið það illviðráðanleg að hann þurfi meiri tíma til að gera það sem gera þurfi. Romney beinir hins vegar athygl- inni að því að hve hægt hafi gengið að ná upp hagvexti. Atvinnuleysið hafi til dæmis ekki komist niður og þess vegna eigi Obama ekki skilið að sitja lengur að embættinu. Úrslitin ráðast svo þriðjudaginn 6. nóvember, þegar gengið verður til atkvæða. I nnan við tveir mánuðir eru nú til forsetakosninga í Bandaríkjunum. Skoðana- kannanir sýna að úrslitin gætu farið á hvorn veginn sem er, þótt Obama hafi lengi mælst með svolítið forskot á Romney. Baráttan verður einkum háð í átta til tólf af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna. Í þessum átta ríkj- um er nefnilega afar mjótt á mun- unum og nokkuð ljóst að forseta- embætti fellur í hlut þess sem nær að tryggja sér sigur í fleiri af þess- um átta barátturíkjum en hinn. Í flestum hinum ríkjunum geta þeir leyft sér að slaka á, því úrslit- in þar þykja nánast ráðin fyrir fram. Þeir Barack Obama og Mitt Romney munu því eyða næstu vikum í ferðalög um þessi átta bar- átturíki, koma fram á kosninga- fundum og heimsækja bæjarfélög og stofnanir og fyrirtæki. Taka í höndina á sem flestum, lyfta upp litlum börnum og brosa eins oft og þeir geta framan í sjónvarps- vélarnar sem fylgja þeim hvert fótmál. Valkostir Landsfundir Demókrataflokks- ins í þessari viku og Repúblikana- flokksins í síðustu viku marka að venju upphafið að lokatörn kosn- ingabaráttunnar, með ræðum for- setaefnanna og helstu stuðnings- manna þeirra. Í ræðu sinni á fimmtudagskvöld bað Obama þjóðina um að sýna sér þolinmæði og kjósa sig aftur, þótt ekki hafi allt gengið upp á fyrsta kjörtímabilinu. Hann sagði Bandaríkjamenn að þessu sinni eiga óvenju skýrt val á milli ólíkra hugmynda demókrata annars vegar og repúblikana hins vegar, einkum um hlutverk ríkis- valdsins. Demókratar sjá ekkert athugavert við að nota ríkisvaldið til þess að laga það sem aflaga fór í efnahagslífinu, en repúblikanar megar vart til þess hugsa. Sjálfur hafi hann óhikað notað ríkisfé til þess að bjarga til dæmis bifreiðaframleiðendum frá því að fara á hausinn í kreppunni, og þar með komið í veg fyrir að þúsundir manna misstu vinnuna. Romney var á móti þessari notk- un ríkisfjármuna, og Obama gerði óspart grín að þeirri trú repúblik- ana að skattalækkanir geti lækn- að öll mein: „Ertu með afgang á ríkis fjárlögum? Reyndu skatta- lækkun. Fjárlagahallinn of hár? Prófaðu aðra. Ertu kannski að fá kvef? Taktu tvær skattalækkanir, felldu niður nokkrar reglugerðir og hringdu svo í okkur í fyrramálið.“ Fjöldi kjörmanna sem þarf til sigurs: 270Barack Obama Mitt Romney Montana 3 Wyoming 3 Oregon 7 Nebraska 5 Kansas 6 Oklahoma 7 Texas 38 Idaho 4 Utah 6 Arizona 11 Missouri 10 Arkansas 6 Kentucky 8 Tennessee 11 Alabama 9 aineM ode IslandRh nnecticutCo assachusettsM w JerseyNe lawareDe arylandM rður-KarólínaNo ður-KarólínaSu orgíaGe 4 4 7 11 14 3 10 15 9 16 4New Hampshire Virginía 13 Flórída 29 Pennsylvania 20 rmontVeNew York 29Michigan 16Minnesota 10Norður-Dakóta 3Washington 12 196 Obama með öruggt fylgi 41 hneigjast að Obama 170 Romney með öruggt fylgi95 mjótt á mununum 36 hneigjast að Romney Kalifornía 55 Havaí 4Alaska 3 South Dakota 3 3 Ohio 18 Wisconsin 10 Iowa 6 Illinois 20 Colorado 9 Nevada 6 Nýja- Mexíkó 5 Louisiana 8 Indíana 11 Mississippi 6 ashington DCW 3 stur-VirginíaVe 5 © GRAPHIC NEWS Lokatörn kosningabaráttunnar Þeir Barack Obama Bandaríkjaforseti og mótframbjóðandi hans, Mitt Romney, munu nota síðustu vikurnar fram að forseta- kosningum í ferðalög um þau ríki Bandaríkjanna, þar sem munurinn á fylgi þeirra hefur mælst minnstur. Úrslit kosninganna ráðast af því hvor þeirra nær að tryggja sér sigur í fleiri barátturíkjum. Guðsteinn Bjarnason fer yfir stöðuna vestra. HEFST Í KVÖLD KL. 19.35 BEINT FRÁ BÝLI TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS | VERSLANIR VODAFONE | VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 Forseti Bandaríkjanna er formlega kosinn á kjörmannasamkomu, sem kölluð er saman eftir að eiginlegum forsetakosningum meðal almennings er lokið. Kjörmennirnir eru alls 538, sem þýðir að til sigurs þarf atkvæði að minnsta kosti 270 kjörmanna á samkomunni. Hvert ríki hefur misjafnlega marga fulltrúa á kjörmannasamkomunni, og fer kjörmannafjöldinn í grófum dráttum eftir íbúafjölda hvers ríkis. Fyrir forsetaefnin munar því mestu um að tryggja sér sigur í fjölmennustu ríkjunum, en á síðustu vikunum snýst kosningabaráttan einkum um að tryggja sér sigur í þeim ríkjum, þar sem skoðanakannanir sýna að minnstu munar á frambjóðendum. Í forsetakosn- ingunum 2008 tókst Barack Obama að tryggja sér sigur í öllum baráttu- ríkjunum, og þar með hreppti hann embættið. SNÝST UM ATKVÆÐI 538 KJÖRMANNA Barack Obama og Mitt Romney þurfa að tryggja sér atkvæði að minnsta kosti 270 kjörmanna til að vinna sigur í forsetakosning- unum í byrjun nóvember. Í flestum ríkjum Bandaríkjanna þykja úrslitin fyrirfram að mestu ráðin, en í nokkrum þeirra er enn mjótt á mununum og þar verður þunginn í kosningabaráttunni mestur. ■ BARÁTTURÍKIN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.