Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 48
FÓLK|MATUR
Paleo er ekki enn einn megrunarkúrinn heldur er það ákveðið mataræði eða jafnvel ákveðinn lífstíll. Kenn-ingar eru uppi um og fornleifarannsóknir ýta undir
þær kenningar að steinaldarmaðurinn hafi verið heil-
brigðari en maðurinn hefur verið fyrr og síðar í sögunni.
Fylgjendur paleo halda því fram að mataræði þessara tíma
manna sé það sem hentar mannskepnunni best. „Í mjög
stuttu máli þá er hugmyndin með paleo að fara aftur í það
hreina. Ég kynntist þessu mataræði í gegnum crossfit en
ég hef stundað það undanfarin tvö ár. Ég ákvað að reyna
að bæta árangur minn í crossfittinu með því að fara á enn
einn „kúrinn“ en ég hélt í upphafi að paleo snerist um það.
Mér til mikillar furðu þá hætti þetta að snúast um megrun
eða átak og þar sem mér finnst mjög gott að borða og
hreinlega elska mat þá hentar þetta mataræði mér afskap-
lega vel,“ segir Unnur Lára Bryde.
Hún prófaði mataræðið fyrst í fyrra og var á því í sex
mánuði og er byrjuð aftur núna eftir hlé. „Ég borða aldrei
nema góðan mat þegar ég er á paleo-mataræðinu. Kjöt og
fiskur, ávextir og grænmeti og hnetur og fræ eru megin-
uppistaðan í mataræðinu. Ég sleppi sykri, unnum kjötvör-
um, mjólkurvörum (nema smjöri), kornmeti og haframjöli.
Ég leyfi mér samt sem áður alveg að svindla stundum enda
held ég að fólk haldi ekki út í þessu ef farið er alla leið. Ég
finn mikinn mun á mér þegar ég fer eftir paleo-mataræðinu
og er orkumeiri og sef betur. Ég get líka borðað endalaust
án þess að fitna.“
Unni finnst gaman að elda og það er mikill kostur þegar
farið er eftir paleo-mataræði. „Það þarf að nenna að hafa
svolítið fyrir þessu. Ég er svo heppin að mér finnst gaman
að elda, ég slaka á við það og það er eins og jóga fyrir mig
að standa við eldavélina,“ segir Unnur og hlær. Hún bætir
því við að þetta mataræði henti öllum sem vilja lifa heil-
brigðu lífi og ná sér í gott form.
Hér fylgja með uppskriftir að góðum kvöldmat eftir
Unni. ■ lilja.bjork@365.is
EKKI BARA ENN EINN KÚRINN
HOLLUR MATUR Unnur Lára Bryde segist bara borða góðan mat. Hún er á paleo-mataræðinu og líður afskaplega vel af því. Hún
mælir með því fyrir alla sem vilja lifa heilbrigðu lífi, koma sér í betra form og líta betur út eða bara líða betur á allan hátt.
ORKUBÚNT Unnur
Lára hefur verið á paleo-
mataræðinu undanfarið
og verður orkumeiri af
því og sefur betur.
MYND/VALLI
2 bakkar af kjúklinga-
bitum
2-3 rauðir chili
3 noble-hvítlaukar
1 krukka svartar ólífur
ólífuolía
steinselja
sítróna
salt og pipar
Brúna kjúklingabita
í olíu á pönnu, setja
kjúklinginn í steikar-
pott eða eldfast mót,
afhýða hvítlauk og
skera í stóra bita, saxa
chili-pipar smátt og
setja þetta í pottinn yfir
kjúklingabitana ásamt
svörtum heilum ólífum.
Baka við 180 gráður í
30 mínútur, bera fram
með sítrónusneiðum og
steinselju sáldrað yfir.
1 1/2 sæt kartafla
4 stórar gulrætur
1 laukur
1 rauð paprika
1 askja sveppir
brokkolí
Skræla kartöflur og
skera í „julienne“-
strimla (svona eins
og franskar). Gera
eins með gulrætur,
papriku og lauk,
sveppi í þykka bita.
Hita smá olíu á
pönnu og mýkja á
vægum hita kartöflur
og gulrætur í 4-5
mínútur, bæta rest
af grænmeti út í og
blanda saman, setja í
eldfast mót inn í ofn
í um það bil tuttugu
mínútur og salta
smá.
OFNBAKAÐ RÓTARGRÆNMETI
GAMAN AÐ
ELDA
„Það þarf að nenna
að hafa svolítið
fyrir þessu. Ég er
svo heppin að mér
finnst gaman að
elda, ég slaka á við
það og það er eins
og jóga fyrir mig
að standa við elda-
vélina.“
Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940 | Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 9–16.
ÚT Á GRANDA ÚT Á GRANDA
VEIÐ
IPOR
TIÐ.
IS
NÝ V
EFV
ERS
LUN
ÓDÝRASTA VEIÐIBÚÐIN ÚT Á GRANDA ER NÚ MEÐ ÚTSÖLU
15 – 80% AFSLÁTTUR bara 2 dagar eftir
OPNUNARTÍMAR YFIR ÚTSÖLUNA
laugardag kl. 9 – 16
sunnudag kl. 10 – 16
SILUNGAFLUGUR - 150 KR. 30% A F ÖLLUM VÖÐLUJÖKKUM
LAXA FLUGUR - 250 KR 30 – 50% AF ÖLLUM FLUGUSTÖNGUM
SPINNSTANGIR - 2.500 KR. 30 – 80 % AF SPINNSTÖNGUM
VÖÐLUR - 6.000 KR 30 - 50 % AF ÖLLUM VÖÐLUM
FLUGUHJÓL - 2.500 KR. 30 – 50 % A F ÖLLUM FLUGULÍNUM
SPINNHJÓL - 2.500 KR.
FLUGUSTANGIR - 5.000 KR
1.500 KR FLÖKUNAR H NÍFAR -
RAFMAGNS UTANBORÐSMÓTOR 30.000 KR (ÁÐUR 47.980 KR.)
JAXON SLÖNGUBÁTUR 290 CM 150.000 KR (ÁÐUR 249.000 K R)
JAXON SLÖNGUBÁTUR 2 30 C M 59.000 KR ( Á ÐUR 99 0. 00 K R )
SÝNINGAR EINTAK 320 CM SELST HÆSTBJÓÐANDA Á SUNNUDAG
KJÚKLINGUR
MEÐ CHILI OG
HVÍTLAUK