Fréttablaðið - 08.09.2012, Qupperneq 54
8. september 2012 LAUGARDAGUR6
Kennarastaða í Brúarskóla
Skóla- og frístundasvið
Brúarskóli óskar eftir að ráða kennara í 100% starf í Brúarsel Kleifarseli 18. Í skólanum er góður starfsandi,
stuðningur við nýja starfsmenn og starfsmenn vinna náið saman. Skólinn er sérskóli í Reykjavík fyrir nemendur
sem eiga í vanda, bæði geð- og hegðunarlega. Í starfinu er lögð er áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða
uppbyggingu hvers einstaklings. Skólinn er tímabundið úrræði. Við leitum að hressu fólki sem er tilbúið til að
taka þátt í skemmtilegu og krefjandi starfi.
Umsóknarfrestur er til 21. september 2012.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og KÍ.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Allar frekari upplýsingar gefur skólastjóri Brúarskóla, Björk Jónsdóttir í síma 6648440
eða netfangið bjork.jonsdottir@reykjavik.is
Hæfnikröfur:
• Kennarapróf
• Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu á
miðstigi, þó ekki skilyrði
• Reynsla af því að vinna með börn og unglinga í
alvarlegum hegðunarvanda
• Þekkingu á því að takast á við erfiða hegðun
• Er í góðu líkamlegu formi
• Er öflugur og sveigjanlegur í samstarfi
• Æskilegt er að umsækjendur hafi sótt námskeið um
hegðunarvanda nemanda.
• Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni
• Annast kennslu nemenda í samráði við
skólastjórnendur og foreldra
• Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum
og samstarfsmönnum
• Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og
annað fagfólk
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
09
07
0
9/
12
Tölvunarfræðingur – forritari
Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða tölvunar-
fræðing, eða einstakling með sambærilega
menntun, í hálft starf nú þegar.
Viðkomandi þarf að hafa haldgóða kunnáttu og
reynslu í vefsmíði og forritun. Reynsla af kennslu í
grunnskólum, námsefnisgerð eða skólastarfi
almennt er æskileg.
Um er að ræða starf við gerð og útgáfu stafræns
námsefnis á vef Námsgagnastofnunar í samstarfi
og samráði við ritstjórn stofnunarinnar.
Námsgagnastofnun er leiðandi á sviði námsefnis-
útgáfu á Íslandi og leggur metnað sinn í að gefa
út fjölbreytt og vandað námsefni fyrir grunnskóla.
Útgáfa námsefnis á stafrænu formi er vaxandi þáttur
í starfsemi stofnunarinnar.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningum og stofnanasamningi.
Allar nánari upplýsingar um starfið veita Ingibjörg
Ásgeirsdóttir, forstjóri og Hafdís Finnbogadóttir,
útgáfustjóri í síma 535 0400 eða í tölvupósti
ingibjorg@nams.is og hafdis@nams.is
Umsóknum ásamt öllum nauðsynlegum upplýsing-
um skal koma til Námsgagnastofnunar, Víkurhvarfi 3,
203 Kópavogi fyrir 25. september nk. Með allar
upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð
» Fjárhagsleg ábyrgð
» Starfsmannaábyrgð
Hæfnikröfur
» Hjúkrunarmenntun
» A.m.k. 5 ára starfsreynsla
» Reynsla í starfsmannastjórnun skilyrði og framhaldsmenntun í stjórnun
æskileg
» Framhaldsnám í geðhjúkrun æskilegt
» Framsækinn og dugmikill leiðtogi
» Framúrskarandi samskiptahæfni skilyrði
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 23. sept. 2012. Starfshlutfall er 100%
og veitist starfið frá 1. desember 2012 til 5 ára í samræmi við stefnu
Landspítala um ráðningu yfirmanna.
» Upplýsingar veita Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri, netfang
pallmatt@landspitali.is, sími 543 4077 og María Einisdóttir, mannauðs-
ráðgjafi, netfang mariaein@landspitali.is, sími 543 4034.
» Umsókn fylgi ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram
afrit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi, ritgerðum, þróunarverkefnum
og vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í að vinna
eða birt.
» Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, umsögn
stöðunefndar hjúkrunarráðs Landspítala og viðtölum við umsækjendur.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Maríu
Einisdóttur, mannauðsráðgjafa, Stjórn geðsviðs 34A við Hringbraut.
Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs
Landspítala á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður
í hjúkrun.
Hjúkrunardeildarstjóri
á geðsviði
Laust er til umsóknar starf hjúkrunardeildarstjóra á sameinaðri sérhæfðri
endurhæfingar- og göngudeild á Kleppi. Hjúkrunardeildarstjóri er
yfirmaður hjúkrunar á deild, stjórnar daglegum rekstri og ber ábyrgð
á uppbyggingu og þróun hjúkrunar. Hann stuðlar að þekkingarþróun
í hjúkrun og nýtir niðurstöður rannsókna. Næsti yfirmaður er
framkvæmdastjóri geðsviðs.
Sérhæfða endurhæfingardeildin er 10 rúma deild sem er fyrir einstaklinga
með geðklofasjúkdóma og aðra alvarlega geðsjúkdóma. Einnig hefur
deildin sérhæft sig í meðferð einstaklinga með geðsjúkdóma samhliða
alvarlegum atferlistruflunum.
Á göngudeildinni sinnir fjölfaglegur hópur starfsfólks sérhæfðri eftirfylgni
og meðferð fyrir sjúklinga með langvinnar geðraskanir, bæði í formi
göngudeildarþjónustu og vitjana í heimahús.