Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 56
8. september 2012 LAUGARDAGUR8
Verslunarstjóri óskast á
kaffihús Kaffitárs í Höfðatorgi
Kaffitár leitar að áhugasömum og lífsglöðum
kaffiunnanda í starf verslunarstjóra á kaffihúsið
okkar í Höfðatorgi. Verslunarstjóri er ábyrgur fyrir
öllum daglegum rekstri kaffihússins og
starfsmönnum þess.
Leitað er að einstaklingi sem er sjálfstæður í
vinnubrögðum, hugmyndaríkur, lipur í samskiptum
og auðvitað kaffiunnandi. Sambærileg starfsreynsla
er æskileg en ekki skilyrði.
Starfsemi kaffihússins er fjölbreytt, m.a. sala
veitinga, kaffidrykkja, kaffipakka og gjafavöru.
Líflegt og fjölbreytt starfsumhverfi í fallegu umhverfi.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
fyrir 16. september nk. Nánari upplýsingar um
starfið veitir Elísabet Sverrisdóttir:
elisabet@hagvangur.is
Kaffitár framleiðir og selur einungis úrvalskaffi. Við leggjum
áherslu á gæði og ferskleika. Við erum skemmtileg, alúðleg,
umhverfisvæn, litaglöð og líka röff og töff. Við setjum fólk í
fyrirrúm og opnum hjarta okkar til að koma boðskap Kaffitárs
til skila og tengjast viðskiptavinum okkar traustum böndum.
Við kaupum kaffi án krókaleiða til að stuðla að þvi að við
fáum besta kaffi sem völ er á og að bændurnir fái sanngjarnt
verð fyrir vöru sína.
Atvinna óskast
Óska eftir framtíðarstarfi á höfuðborgarsvæðinu.
Hef starfað mest við skrifstofustörf.
t.d. Opus Alt , Navision og DK-bókhaldskerfi.
Einnig við verslunar- og umsjónarstörf.
Jóanna 892-0403
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða dugmikinn starfsmann í fjölbreytt og
krefjandi starf hjá Hagmálum, sem tilheyra Fjármálasviði. Hagmál annast m.a.
áætlanagerð af ýmsu tagi og aðstoða svið fyrirtækisins við gerð áætlana,
kostnaðargreiningu og skýrslugerð.
Sérfræðingur
hjá Hagmálum
Starfssvið:
• Fjárhagsáætlanagerð
• Arðsemisgreiningar
• Rekstrareftirlit og kostnaðargreining
• Aðstoð við uppgjör fyrirtækisins
• Ýmis upplýsingagjöf og skýrslugerð
Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Hilmar Garðar Hjaltason
(hilmar.hjaltason@capacent.is) og Helga Jónsdóttir
(helga.jonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á
heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsókn
um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í viðskiptafræði
• Góð reikningshaldsþekking
• Reynsla af greiningum og áætlanagerð
• Góð tölvuþekking
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Frumkvæði, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Orkuveita Reykjavíkur er veitufyrirtæki og
þjónustufyrirtæki í eigu almennings sem sér um
200.000 notendum fyrir húshitun, drykkjarvatni,
rafmagni og fráveitu. Hjá Orkuveitunni vinnur
traustur hópur starfsmanna sem hefur lagt hart að
sér í ólgusjó síðustu ára.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september
og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Við leitum að öflugum
gagnagrunnsstjóra
Kalkofnsvegi 1
150 Reykjavík
www.rb.is
Hlutverk gagnagrunnsstjóra er að starfa með hópi sérfræðinga
að uppsetningu, viðhaldi, eftirliti, stillingum og almennum rekstri
gagnagrunna fyrirtækisins. Hann sinnir ráðgjöf til forritara
um bestun á fyrirspurnum og ber ábyrgð á að gagnagrunnar
fyrirtækisins séu uppsettir og reknir í samræmi við öryggisstaðla.
Reiknistofa bankanna keyrir DB2, Oracle og MS SQL gagnagrunna
í Unix, Windows og stórtölvuumhverfi.
Kröfur
» Reynsla af gagnagrunnsstjórn
» Reynsla af kerfisstjórn einhverra eftirfarandi stýrikerfa
er kostur: AIX, Linux, Windows eða zOS
» Háskólapróf í raungreinum er æskilegt; tölvunarfræði
stærðfræði eða verkfræði
» Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
» Brennandi áhugi á gagnavinnslu og hæfni til að vinna í hóp
Umsóknarfrestur er til 14. september 2012. Umsóknir sendist á Guðbrand Jónasson,
starfsmannastjóra Reiknistofunnar, gudbrandur@rb.is. Nánari upplýsingar veitir Einar Birkir
Einarsson, framkvæmdastjóri Tæknirekstrar og þjónustu, í síma 569 8877.