Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 66
8. september 2012 LAUGARDAGUR18
Kerru stolið
Seinnipartinn í apríl var kerru með skráningarnúmerið
ZY-457 stolið við Akralind í Kópavogi.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir kerrunnar mega
hafa samband við Árna Frey Gestsson í síma 560-5222 eða
lögregluna í síma 444-10000
Námsleyfi grunnskólakennara
og skólastjórnenda
2013–2014
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum
um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda
grunnskóla skólaárið 2013–2014. Stjórn sjóðsins
hefur ákveðið að við úthlutun verði sett í forgang
nám sem tengist
• Tækni- og raungreinum.
• Samspili náttúruvísinda og listgreina með
nýsköpun og skapandi hugsun að leiðarljósi.
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi
á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga www.
samband.is. Umsóknarfrestur er til og með
2. október 2012.
Umsækjandi, sem æskir námsleyfis, skal fullnægja
eftirfarandi skilyrðum og skuldbindingum, sbr. reglur
Námsleyfasjóðs:
a) Hafa gegnt starfi í 10 ár samtals við kennslu,
ráðgjöf eða stjórnun í grunnskóla, í eigi minna
en hálfu starfi, og verið í starfi sl. fjögur ár.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags
eða aðila sem stofnað er til með samstarfi
sveitarfélaga og taka laun samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Félags grunnskólakennara eða kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Skólastjórafélags Íslands.
c) Ljúka 60 ECTS eininga háskólanámi eða
sambærilegu námi, miðað við 1/1 námsleyfi, og
skal námið miða að því að nýtast viðkomandi í
því starfi sem hann er ráðinn til að sinna.
d) Að loknu námsleyfi skal námleyfishafi senda
stjórn sjóðsins innan fjögurra mánaða staðfest
vottorð skóla um nám í námsleyfinu.
e) Enginn getur fengið hærri fjárhæð í námsleyfi
en sem nemur tveggja ára föstum launum á
starfsævi viðkomandi.
f) Laun í námsleyfi miðast við starfshlutfall
námsleyfisþega næsta ár áður en námsleyfi hefst
eða meðaltal síðustu þriggja ára ef það er hærra.
Upplýsingar veitir Guðfinna Harðardóttir
í síma 515 4900, tölvupóstfang:
gudfinna.hardardottir@samband.is
Styrkurinn verður veittur í janúar 2013 og er að
fjárhæð kr. 750.000.
8.
Fellihýsi stolið
Þann 14. júlí sl. var fellihýsi, með skráningarnúmerið
ZY-457 stolið við Eskivelli 1.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir fellihýsisins mega
hafa samband við Árna Frey Gestsson í síma 560-5222 eða
lögregluna í síma 444-10000.
Nordplus auglýsir styrki til
norræns menntasamstarfs
Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir hjá
Nordplus haustið 2012. Styrkirnir sem um
ræðir eru:
___________________________________
Undirbúningsheimsóknir í Nordplus Junior
Styrkir fyrir kennara í leik,- grunn,- og framhalds-
skólum til að heimsækja samstarfsskóla á Norður-
löndum og Eystrasaltslöndum vegna styrkumsóknar
um samstarfsverkefni næsta vor.
___________________________________
Undirbúningsheimsóknir í Nordplus Voksen
Styrkir fyrir þá sem sinna fullorðinsfræðslu til að
heimsækja samstarfsstofnanir á Norðurlöndum og
Eystrasaltslöndum vegna styrkumsóknar um sam-
starfsverkefni næsta vor.
___________________________________
Styrkir til verkefna í Nordplus norrænu
tungumálaáætluninni
Aukaumsóknarlota verður haldin haustið 2012. Um
er að ræða styrki til verkefna sem fjalla um norræn
tungumál. Verkefnin verða að vera samstarfsverkefni
a.m.k. þriggja stofnana í þremur Nordplus þátt-
tökulöndum. Umsóknir skulu skrifaðar á dönsku,
sænsku eða norsku.
___________________________________
Umsóknum skal skila rafrænt á síðunni
ars.norden.org.
Starfsfólk Landskrifstofu Nordplus á Íslandi veitir
frekari upplýsingar og aðstoð í umsóknarferlinu.
Umsóknarfrestur er 1. október 2012
www.nordplus.is
Auglýsing um styrki
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir
umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki, síðari
úthlutun.
Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.
Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr
fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum
hins opinbera og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum
skólaárin 2010-2011.
Til úthlutunar eru allt að 5.500.000.- kr.
Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum
Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á
fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir voru í sjón-
varpi árin 2009–2011, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í fram-
haldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar
gjalda af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum.
Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.
Ferða- og menntunarstyrkir 2012 – fyrir félagsmenn
Hagþenkis, síðari úthlutun
Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hag-
þenkis vegna síðari úthlutunar. Rétt til að sækja hafa þeir sem
hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við
félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem farnar voru á
árinu. Umsækjendur skulu senda skrifstofu Hagþenkis afrit af
ferðakostnaði og skilagrein fyrir áramót.
Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.
Umsóknarfrestur rennur út 20. september kl. 16.
Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð og
eyðublöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins:
www.hagthenkir.is. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að
umsókn hafi borist og gildir hún sem kvittun.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna
Hringbraut 121, 4.h. 107 Reykjavík
Netfang: hagthenkir@hagthenkir.is Sími 551-9599
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Klórgerðartæki fyrir Breiðholtslaug
nr. 12914.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod.