Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 84
8. september 2012 LAUGARDAGUR40
E
gyptar eru taldir vera þeir
fyrstu er hófu að brúka
ilmvatn og ilmolíur og
þá til hvers kyns trúarat-
hafna. Rómverjar, Pers-
ar, Kínverjar og Arab-
ar fylgdu svo fljótlega í ilmandi spor
Egypta. Elstu heimildir um ilmvatns-
gerð eru frá 2. öld fyrir Krist og segja
frá konunni Tapputi sem bjó til ilmolíur
úr blómum og hálmi.
Arabíski efnafræðingurinn Al-Kindi
ritaði bók um ilmvatnsgerð á 9. öld sem
hann nefndi Bókina um efnafræði ilm-
vatna og eimingu. Bókin innihélt yfir
hundrað uppskriftir að ilmolíum og
smyrslum og lista yfir þau tæki og tól
er hentuðu best til ilmvatnsgerðar.
Ilmvatnsnotkun var ólík frá landi
til lands en Rómverjar voru líklega sú
þjóð er var hvað hrifnust af notalegum
ilminum og notuðu þeir ilmvötn á sig
sjálfa, heimilisdýrin, húsgögn sín og út
í baðvatn sitt.
Í ilmandi spor Egypta
BLÓMIÐ LJÚFA Blóm
sækórónutrésins (jasmín)
hafa verið í lykilhlutverki
í ilmvatnsgerð í aldaraðir.
Márar fluttu blómið með sér
til Frakklands á 17. öld.
Glas númer fimm
Chanel No. 5 er líklega þekktasta og jafnframt vinsælasta ilm-
vatn heims. Ilmurinn var búinn til
árið 1920 af ilmgerðarmanninum
Ernest Beaux fyrir fatahönnuðinn
Coco Chanel. Beaux sóttist eftir því
að skapa ilm er bæri með sér sama
ferskleika og var í loftinu í borginni
Arkhangelsk þar sem Beaux var við
skyldustörf í fyrri heimstyrjöldinni.
Chanel á að hafa fallið fyrir ilm-
inum í tilraunaglasi númer fimm og
þaðan dregur ilmvatnið nafn sitt.
Blóm til varnar
Samkvæmt Félagi banda-rískra ilmvatnsgerðarmanna
er hægt að fæla moskítóflugur frá
með því að bera náttúrulegar ilm-
olíur á líkamann. Félagið mælir
helst með olíu tröllatrjáa, kanilol-
íu, rósmarínolíu, olíu úr sítrónu-
grasi, piparmyntuolíu en einnig
lofnarblómsolíu, hvítlauksolíu og
basilolíu.
Höfuðstaður
ilmvatnsgerðar
Bærinn Grasse í frönsku Ölpunum
er þekktur sem höfuð-
staður ilmvatnsgerð-
ar. Þar hafa ilmvötn
verið framleidd frá 19.
öld og allt til dagsins
í dag. Fjöldi svokall-
aðra „nefja“ („Les nez“
á frönsku) hefur hlotið
menntun sína í bænum
og þar hafa yfir 2.000
ilmir verið framleiddir
í áranna rás.
Innblásturinn leynist víða
I lmgerðarmenn sækja innblástur víða og á bak við nýjasta ilm ilmvatns-framleiðandans L‘Artisan er skemmtileg saga. Rithöfundur sagði ilmvatns-
gerðarmanninum Bertrand Duchaufour frá ástarævintýri sem hann átti í á
meðan hann dvaldi í Andalúsíu. Duchaufour varð svo innblásinn af frásögn-
inni að hann skapaði í kjölfarið ilm er nefnist Séville à l’Aube. Appelsínutré
leikur veigamikið hlutverki í sögunni sem og ilminum.
Leikarar, söngvarar og fyrirsætur
hafa verið duglegar við að fram-
leiða ilmvötn í sínu nafni. Ilmirnir
eru misgóðir og nöfnin sem þau
bera einnig. Söngkonan Britney
Spears hefur framleitt 11 ilmvötn
í samstarfi við snyrtivörufram-
leiðandann Elizabeth Arden. Paris
Hilton hefur skapað átta ilmi sem
bera nöfn á borð við Just Me og
Heiress, Anthony Banderas hefur
framleitt sjö rakspíra í samstarfi
við fyrirtækið Puig og Jennifer
Lopez hefur framleitt sex ilmi.
Lady Gaga Lady Gaga Fame
Peter Andre Mysterious Girl
Beyoncé Heat og Pulse
Justin Bieber Girlfriend
Sarah Jessica Parker SJP NYC og
Covet
Katy Perry Meow og Purr
Bruce Willis Bruce Willis
STJÖRNURNAR ILMA
Ilmvötn gegndu trúarlegu hlutverki meðal Egypta til forna. Fljótlega fylgdu
aðrar þjóðir í ilmandi spor þeirra. Sara McMahon rak nefið ofan í sögu ilmvatnsins.
LOKKANDI ILMUR
Ilmvötn hafa verið til í
aldaraðir. Egyptar eru
taldir hafa verið þeir
fyrstu til að nota ilmvötn.
Nordicphotos/getty