Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 90
8. september 2012 LAUGARDAGUR46
Krossgáta
Lárétt
1. Svissnesk bogaskytta tíndi trjástofn og
breytti í postulín (10)
10. Áköf eygði grip og orustu (10)
12. Tími og trantur eru mynni (9)
13. Form hentar ekki til keppni utandyra (12)
14. Minnkaði árásarþunginn er könnunar-
hjálpin barst? (20)
15. Stækka fósturgimbrina (10)
17. Hýsir hljómsveit og bannar flutning (10)
19. Ákveðin hlýja að utan (7)
22. Læri að tengjast maskínum sem
verða að skönnum (8)
24. Þar fann Sigurður heita
ginið á Fáfni (10)
26. Fyrsti karlinn var dama (4)
28. Flæða um fjörð (4)
29. Ristum viskar með þartilgerðum
áhöldum (12)
31. Skrái Dag á síður þeirra (7)
33. Raði yst því sem lak (7)
34. Undirbý einingar og frásagnarmáta (8)
36. Næturferja fyrir næturferð (7)
37. Undirmálshríslur eru nótur til fóta (16)
38. Með sniði duglegs (5)
Lóðrétt
1. Einföld slá smávaxna ávaxtarunna (12)
2. Kippur Heljarföður er síðasta átakið (14)
3. Félagi Portusar og Atosar var masari (6)
4. Er mútta konan fyrir faraó? (10)
5. Leggur pabbi eða prófessor (9)
6. Innan varpi vörður dyra (9)
7. Mun strengur styrkja við undir flík? (11)
8. Girnist Pam og áflog hefjast (10)
9. Bretinn var drepinn (7)
11. Vinnum og göngum á héraðsmótum (11)
16. Sjónvarpssápa vísar ekki
lengur veginn (10)
18. Leita drossíu vegna dalagleði (12)
20. Brothægt og sundurlaust (8)
21. Stök altrygging 51 veitir menntun utan
hins almenna kerfis (10)
23. Hastar á höfn enda til minnkunar (10)
25. Hvatvísi breyti árfarvegi (9)
27. Gömul með hinu berinu (8)
29. Rúm fyrir ara í þessu flæmi (7)
30. Betri gæta í miðju ári (7)
32. Klippa síðan frakka (5)
35. Mæta til að klára (4)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist nokkuð sem stundað er í
yfirfærðri merkingu um land allt allan ársins hring og þykir ekki til fyrirmyndar, en í bókstaflegri
merkingu til sveita þessar vikurnar, og þykir nauðsynlegt. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 12.
september næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „8. september“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og
fær vinningshafi eintak af
bókinni má ekki elska þig
frá Forlaginu. Vinningshafi
síðustu viku var Jóhannes
Sigmundsson, Flúðum.
I N N A N L A N D S F L U G
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10 11
12
13
14
15 16
17 18
19 20
21 22 23
24 25
26 27 28
29 30
31
32 33
34 35 36
37
38
F A G N A Ð U R Ó K L H
A Æ L N N E F N D A R S E T U R
R Ó S A V Í N Ý Á R Ó I U
A A A D I M M U B O R G I R N
N G L Ó E M T A K A
G J A L D Þ R O T A S T Ó R F E L L D
U N U I S I N R A
R Æ G I R Ó F A S K Y N D I L A U S N
S U T F A S R S S
R Ö R A L A G N I N G V Á M Æ L I
Ý R K O A I S I N
M A N N A M Ó T Á T A K A M I Ð J A N
I A A U Á I E U
Þ O R G R Í M U R S N Æ K Ó R Ó N A
R S K Ú A K S Ð
L O S T F A G R A N M E Ð V I R K N I
T A Ð A A A Í L
A P A K K E R I S F E S T I N N I
B R I M R Ó T I E A D N
Ú L I S T A M A N N A L A U N
U
Á þessum degi fyrir réttum 38 árum, hinn 8. september árið 1974, náð-aði Gerald Ford Bandaríkjaforseti Richard Nixon, forvera sinn í emb-
ætti, vegna afskipta hans af Watergate-hneykslinu. Þessi gjörningur olli
mikilli hneykslan, enda einungis réttur mánuður síðan Nixon hrökklaðist
úr embætti.
Watergate-málið
olli straumhvörfum í
bandarískum stjórn-
málum en í grunninn
snerist það um innbrot
nokkurra skósveina
Nixons inn á skrif-
stofur landsnefndar
Demókrataflokksins
í júní 1972, í aðdrag-
anda forsetakosninga
þar sem Nixon var
síðar endurkjörinn.
Skrifstofurnar voru í
Watergate-hótelinu í
Washington.
Innbrotsþjófarnir
voru gripnir glóðvolg-
ir þar sem þeir voru að gramsa í skjölum og reyna að koma fyrir símhler-
unarbúnaði. Þó ekki sé öruggt að Nixon sjálfur hafi fyrirskipað innbrotið
þá er hafið yfir allan vafa að forsetinn hafi í krafti embættis síns reynt að
hamla framgangi rannsóknarinnar, meðal annars með því að múta inn-
brotsþjófunum til þagnar, eyða sönnunargögnum, reyna að stöðva rann-
sókn alríkislögreglunnar (FBI) og reka þá undirmenn sína sem voru
ósammála hans nálgun.
Með tímanum fóru þræðir að berast að Nixon og þrýstingurinn á hann
jókst stöðugt. Fjölmiðlar veltu við hverjum steininum á fætur öðrum og
eftir mikla baráttu þurfti Nixon að afhenda upptökur frá Hvíta húsinu
þar sem sannaðist að hann hafði tekið þátt í samsærinu.
Þingið hafði hafið ferli til að koma Nixon frá, en forsetinn ákvað að
segja af sér í ágústmánuði 1974 í stað þess að bíða niðurstöðu þingsins, og
Gerald Ford varaforseti tók við valdataumunum.
Ford þessi er einstakur í sögunni því að Nixon skipaði hann varaforseta
haustið áður, eftir að Spiro Agnew þurfti að segja af sér vegna hneykslis-
mála. Hann var því aldrei kjörinn til valda, hvorki sem forseti, né vara-
forseti.
Ford tók svo fyrrnefnda ákvörðun um að náða Nixon af öllum þeim
brotum sem hann gæti hafa framið í embætti. Það gerði hann að eigin
sögn til að forða þjóðinni frá langvinnum og erfiðum málaferlum sem
hefðu klofið þjóðina.
Ekki voru nándar nærri allir sammála þeirri nálgun Fords og náðunin
olli miklu fjaðrafoki. Er nær öruggt að hún hafi ekki orðið Ford til fram-
dráttar í forsetakjörinu 1976 þar sem hann tapaði fyrir Jimmy Carter. - þj
Heimild: history.com
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1974
Nixon gefnar upp
sakir vegna Watergate
Gerald Ford náðaði forvera sinn á forsetastóli einum mánuði eftir að
Richard Nixon hafði hrökklast frá völdum eftir Watergate-hneykslið.
VALDASKIPTI Nixon og Ford ræða málin í skrifstofu
forsetans í aðdraganda þess að hinn fyrrnefndi sagði
sig frá embætti. Ástæðan var Watergate-hneykslið og
aðkoma forseta að því. NORDICPHOTOS/AFP