Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 94
8. september 2012 LAUGARDAGUR50
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Lára Björk Birgisdóttir
Teikningar og texti Bragi Halldórsson
8
svar: 5 kíló.
Konráð og félagar höfðu heldur betur komist í feitt. Þau fundu bláberja
móa þar sem krökkt var af berjum. Allan daginn voru þau búin að vera að
tína ber og nú var komið að því að skoða afraksturinn. Kata horfði ofan í
hálftóma fötuna hjá Róberti og svo á berjabláan munninn hans. „Þú hefur
nú bara tínt berin upp í þig sýnist mér,“ sagði hún hneyksluð. Róbert
„Eða ert bara gráðugur,“ muldraði Kata en Róbert heyrði það ekki.
Það var mismikið í fötunum svo Konráð stakk upp á því að þau skiptu öllum
berjunum jafnt á milli sín svo allir fengju jafn mikið. „Hann líka?“ sagði
Kata og benti á Róbert. „Já, allir,“ sagði Konráð. Kata var bersýnilega ekki
mjög sátt við þá tilhögun en samþykkti hana þó með semingi.
Róbert hafði tínt 2 kíló, Lísaloppa 6 kíló, Kata
7 kíló og Konráð 5 kíló. Hversu mörg kíló fær þá
hvert þeirra í sinn hlut ef þau skipta berjunum
öllum jafnt á milli sín?
Hvernig varð þér við þegar
þú fréttir að þú hefðir verið
dregin út sem vinningshafi?
„Ég var mjög glöð en eiginlega
í sjokki.“
Hvað ertu gömul? „12 ára.“
Ertu mikill lestrarhestur? „Já,
frekar.“
Hvað er skemmtilegt við
að lesa bækur? „Þær eru oft
spennandi.“
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
„Örugglega Harry Potter.“
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? „Spennu-
bækur.“
Hvaða bók lastu síðast
og hvernig var hún? „Eldar
Kvikna, hún var geggjuð.“
Í hvaða hverfi býrð þú?
„Seljahverfi.“
Í hvaða skóla gengur þú?
„Seljaskóla.“
Hvaða námsgrein er
skemmtilegust? „Enska og
stærðfræði.“
Hver eru þín helstu áhuga-
mál? „Ég æfi sund og spila á
þverflautu.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bókaormaverkefni Borgarbókasafnsins á þessu sumri er lokið. Aðalvinn-
ingshafi var dreginn út í vikunni og var svo heppinn að fá reiðhjól. Forlagið,
Bókmenntaborgin og Örninn styrktu verkefnið og voru í samstarfi við bóka-
safnið, ásamt Fréttablaðinu.
Hvað heitir þú fullu nafni? „Ég
heiti Alexander Mar og er 13 ára.
Er í Laugalækjarskóla og æfi líka
fótbolta og körfu.“
Hvernig kom það til að þú
bjóst til bók? „Mér hefur aldrei
fundist skemmtilegt að lesa en
mér finnst voða gaman að skrifa
sögur því ímyndunaraflið er allt-
af á fleygiferð. Svo ákvað ég að
reyna að gera sérstaka bók handa
pabba. Hann var að fara að eiga
43 ára afmæli og mér fannst góð
hugmynd að búa til bók handa
honum enda langaði mig ekki að
eyða neinum peningum þetta árið
í afmælisgjafir. Svo vissi ég líka
að fjölskyldan yrði ánægð með
mig, stelpunum mundi finnast
þetta krúttlegt og fyrst og fremst
yrði pabbi glaður. Ég hugsaði oft
um þetta verkefni þegar ég var
að fara að sofa.“
Hvert er efni bókarinnar?
„Efnið í bókinni er um hæfi-
leika, já hún er einfaldlega hrós
því hún er svo jákvæð. Það eru
líka myndir í henni og allt efnið
snýst um pabba.“
Hvernig fórstu að því að gera
bókina? „Ég handgerði hana
í textílmennt í skólanum. Svo
hringdi ég í ættingja og vini og
bauð þeim að skrifa eitthvað fal-
legt um hann pabba. Einnig límdi
ég inn myndir. Bókin sjálf er ekki
vel skreytt en textinn er aðalmál-
ið.“
Hvað var vandasamast? „Eig-
inlega var allt vandasamt nema
kápan.“
Hjálpaði þér einhver? „Já, en
ég gerði mest sjálfur því ég vildi
ekki hjálp. Sumir héldu að þetta
ætti að vera bók eins og minning-
argrein um látinn mann.“
Hvernig var bókinni svo tekið?
„Henni var tekið eins og um upp-
finningu væri að ræða!“
Finnst þér að aðrir krakkar
gætu farið að dæmi þínu? „Alveg
klárlega. Krakkar eru alveg jafn-
TEKIÐ EINS OG UM UPP-
FINNINGU VÆRI AÐ RÆÐA
Hinum þrettán ára Alexander Mar þykir gaman að skrifa. Hann bjó til sérstaka
bók handa föður sínum í afmælisgjöf, með texta og myndum. Efnið er bæði eftir
hann sjálfan og vini og ættingja afmælisbarnsins.
ALEXANDER MAR Hann
handgerði bókina í textíl-
mennt í skólanum og segir
hana ekki vel skreytta en
textinn sé aðalmálið.
góðir rithöfundar og fullorðn-
ir. Þeir verða bara að hafa trú á
verkefninu.“
Hvaða ráðleggingar hefurðu
þá til þeirra? „Að lesa bækur,
skoða þær vel og taka eftir
orðum.“
Langar þig að gera f leiri
bækur? „Já, ég er að vinna í
sögu um unglinga en er ekki
nógu duglegur við það. Svo hef
ég stundum ekki tíma.“
gun@frettabladid.is
Veistu, ég veit ég er pirrandi stund-
um en þú verður að taka því gegn-
um unglingsárin. En seinna meir
skal ég hjálpa þér í ýmsum verk-
efnum. Ég vona að við lifum allt-
af í sátt og samlyndi. Það er gott
að þú gerir ekki neitt ávanabind-
andi og ert alltaf þú sjálfur.
Ég vildi láta vita hversu þakklátur ég er að eiga pabba sem tekur öllum
áskor unum vel í lífinu og reynir alltaf að leita þess góða.
krakkar@frettabladid.is
50
SKÁK Í RÁÐHÚSINU Krakkar geta lært mannganginn og tekið
þátt í skákmyndakeppni í fjölskylduhorni skákveislu sem haldin er í
Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og hefst klukkan 14.
Kennarinn: „Hvað er það sem
er kallað miðbaugur, Óli?“
Óli: „Það er svart strik á kort-
inu.“
Borgarbúinn: „Ert það þú sem
átt þetta stöðuvatn?“
Bóndinn: „Já, svo á að heita.“
Borgarbúinn: „Munduð þér
telja það stórsynd ef ég drægi
úr því nokkra silunga?“
Bóndinn: „Nei, en ég mundi
telja það kraftaverk.“
Einu sinni voru agúrka og
gulrót sem skelltu sér saman
í bíó. Allt í einu sá gulrótin
að gúrkan var að skæla og
spurði:
„Af hverju ertu að skæla
gúrka, þetta er gamanmynd.“
„Ég veit,“ svaraði gúrkan,
„þetta er bara vegna þess að
það er laukur við hliðina á
mér.“
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN