Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 96
8. september 2012 LAUGARDAGUR52
BAKÞANKAR
Tinnu Rósar
Steinsdóttur
Það má ekki pissa bak við hurð, ekki henda grjóti oní skurð, hvorki skoða
lítinn kall né gefa ketti drullumall og ekki
segja ráddi heldur réði. Þessar eru á meðal
þeirra lífsreglna sem okkur eru kenndar í
Laginu um það sem er bannað, eftir Svein-
björn I. Baldvinsson.
ÞAR með er þó ekki allt upp talið. Ég
var alin upp við góð gildi og mér kenndir
almennir mannasiðir. Ég veit að maður
sleikir ekki hnífinn sinn, blótar ekki, stel-
ur hvorki né platar og kemur vel fram við
aðra (líka ljóta og leiðinlega).
MEÐ árunum hafa enn fleiri hlutir bæst
á listann og ég hef meðal annars lært að
maður reynir ekki að púlla sömu hár-
greiðslu og David Beckham ef maður er
þrettán ára stelpa, maður má ekki klæð-
ast fötum úr Hagkaup og alls ekki finnast
Harry Potter leiðinlegur. Að drekka kók
fyrir hádegi er algjört nó-nó og varast ber
að vaxa ekki á sér lappirnar í lengri
tíma.
REGLUR samfélagins vega jú
þungt á vogarskálunum þegar við
reynum að stuðla að betri heimi.
Eða hvað? Ég velti því fyrir mér
hvort þessar stöðugu samfélags-
reglur, boð og bönn um það sem
í raun skiptir engu máli geri
heiminn mögulega að verri stað.
UM DAGINN var ég á Facebook (eins og
svo oft áður, kveðja, fíkillinn) og rakst á
eina af þessum háheimspekilegu tilvitn-
unum sem eiga það til að detta þar inn.
Hún fékk mig til að staldra aðeins við.
Þar sagði að ekki þyrfti að óttast það að
heimurinn myndi breytast heldur ein-
mitt hið gagnstæða, að hann myndi hald-
ast eins og hann er.
ÞRETTÁN af hverjum 100 íbúum jarðar
búa við hungursneyð og átján af þessum
sömu hundrað búa við vatnsskort. 59%
alls auðs í heiminum eru í eigu 6% íbúa
hans og 53 af hverjum 100 lifa á undir
tveimur dollurum á dag.
ÉG FÉKK mér styrktarbarn hjá ABC
fyrir nokkrum árum síðan. Þó heiminn
muni eflaust ekki mikið um þann 4.000
kall sem ég borga á mánuði til að fæða,
klæða og fræða Ragava Rao Pupcem, nú
13 ára gamlan „son“ minn á Indlandi, þá
gerir margt smátt eitt stórt (góð vísa er
aldrei of oft kveðin!).
Á MEÐAN meirihluti heimsins vinnur
þessa stundina baki brotnu við að halda
sér á lífi þá sit ég hér í Karen Millen-
kjólnum mínum (bara hinn hefðbundni
fatnaður við pistlaskrif) með iphoninn
í annarri og bíð eftir að fá kvöldmatinn
sendan heim að dyrum. Eðlilegt? Maður
spyr sig!
Samfélagið versus heimurinn1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. ílát, 6. í röð, 8. saur, 9. háttur, 11.
átt, 12. bragsmiður, 14. taka ófrjálsri
hendi, 16. sjó, 17. gaul, 18. munda,
20. tvíhljóði, 21. steypuefni.
LÓÐRÉTT
1. elds, 3. ólæti, 4. fugl, 5. svelgur,
7. aftursæti, 10. varkárni, 13. hluti
kynfæra, 15. síll, 16. dæling, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vasi, 6. áb, 8. tað, 9. lag,
11. na, 12. skáld, 14. stela, 16. sæ, 17.
gól, 18. ota, 20. au, 21. gifs.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. at, 4. sandlóa,
5. iða, 7. baksæti, 10. gát, 13. leg, 15.
alur, 16. sog, 19. af.
Ég sagði að þið
mættuð leika
ykkur með
úðarann...ekki
drulla ykkur út!!
Pabbi myndi
segja að
þetta væri
óviljandi
afleiðing.
Óska-
brunnur
Heyyyyrðu
nú mig...
er þetta ekki
fjárhags-
ráðgjafinn
okkar?
Þetta minnir mig
á eitthvað sem ég
sá Animal Planet
í gær!
Þreytt antíl-
ópa reynir að
sleppa úr klóm
ljónsins!
Slapp
hún? Nei!
Þarna
sérðu.
...Nei.
Látum okkur
sjá...Rúsínu-
rassgat...
krúttibolla...
krúsípúsí...
ástarengill...
snúlludúlla...
bestaskinn...
snúður...
Geturðu ímyndað þér nokkuð
meira niðurlægjandi en að pabbi
þinn kalli þig „herra Bangsa“ fyrir
framan vini þína?
Ætlarðu þá að
hætta að ávarpa
pabba þinn með
skírnarnafninu
hans?
Uuu, JÁ!
Ef ég hætti
því ekki þá
byrjar hann að
kalla mig „herra
Bangsa“!