Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 104
8. september 2012 LAUGARDAGUR60
lifsstill@frettabladid.is
TÍSKA Þessa dagana er tísku-
vikan í New York í algleym-
ingi. Smekklegar konur og
herramenn fylla stræti og
torg borgarinnar en ljómyndir
af götutísku eru eitt það vin-
sælasta í kringum tískuvik-
urnar. Þar má sjá ýmsar for-
vitnilegar samsetningar og
litadýrð sem taka má til fyr-
irmyndar. Tískustrauma og
stefnur má yfirleitt rekja
til götutískunnar en þar
kennir ýmissa grasa.
Götutískan gefur tóninn
Hefurðu bitið? Klórað? Eða jafn-
vel flengt? Kynlíf er alls konar og
í miðjum klíðum þegar ástríðan
grípur mann þá stundum stjórn-
ast útlimirnir af hreinni þrá. Þú
klípur, rífur, stynur og nartar.
Það hljómar ekkert svo alvarlega
heldur eins og eitthvað sem flestir
hafa gert. Mér skilst á flestum
að það sem er algengt telst eðli-
legt og því eitthvað sem má, hver
hefur ekki slegið létt á beran
afturenda sem hossast til og frá?
En hei, þú sem flengir, stundarðu
BDSM?
Umræðan um ólíkar tegundir af
kynlífi eru áhugaverðar því við
þurfum stöðugt að setja fólk í
kassa. Við erum í eðli okkar skipu-
lagssjúk og dæmum fólk út frá
gjörðum þess til að skilja betur
ástæðurnar að baki hegðuninni
og til að geta spáð fyrir um hvað
fólk gerir næst. Fólk ímyndar sér
oft að BDSM sé öfgarnar á ögn
harðhentri líkamlegri snertingu.
Þeir sem flengja óvart gera það
af ástríðu en þeir sem flengja
af ásetningi, jafnvel með græju,
stunda BDSM. Ég velti því fyrir
mér hvort við séum ekki að tala
um pylsu og pulsu, sitthvort orðið
yfir sama hlutinn.
Samband tveggja aðila sem
stunda BDSM byggist á virðingu,
trausti og samskiptum. Sam-
bandið byggir ekki á ölæði á krá
heldur tekur það tíma og er ekki
ósvipað stefnumótaferli. Fólk
kynnist og líður vel saman áður
en lengra er farið. Rík áhersla er
lögð á að fá samþykki fyrir hverri
einustu athöfn og að viðkomandi
sé í ástandi til að geta gefið sam-
þykki. Þá setja báðir sér ákveðin
mörk um hvað má og hvað ekki.
Þessi mörk eru virt enda virð-
ing borin fyrir leikfélaganum og
leiknum.
Mikið fyndist mér gaman ef við
„hin“ gætum tekið reglur BDSM-
samfélagsins til fyrirmyndar í
vanillukynlífi okkar. Við myndum
þá treysta bólfélaganum áður en
við stundum kynlíf, veita sam-
þykki fyrir hverri einustu athöfn
og tala opinskátt saman um hvað
má og hvað ekki. Við bærum virð-
ingu fyrir mörkunum sem okkur
eru sett og við gætum leyft okkur
að svífa um á vængjum losta og
unaðar, örugg og áhyggjulaus og
frjáls til að njóta. Þá er ágætt að
muna að það sem stingur holdið
þarf ekki að særa sálina. Sárs-
aukaþröskuldur er einstaklings-
bundin og oft má daðra við línuna
á milli unaðar og sársauka uns
mörkin verða óljós. Slíkt er þó
vitaskuld háð hugarástandi hvers
og eins og ef þú upplifir sársauka
og vilt hætta, þá gerir þú það.
Slíkt kallast að nota öryggisorð í
BDSM-heiminum og hefði ég oft
viljað geta notað slíkt orð í mínu
vanillulífi. „Hættu“, „nei“ og
„stopp“ eru orð sem getur verið
erfitt að segja en „gulur“ eða
„rauður“ eru kannski gerlegri, svo
ekki sé minnst á litlu spurning-
una, „Er allt í lagi?“.
Bíta, klóra og slá af hreinni þrá
VIRÐING OG TRAUST Samband aðila er
stunda BDSM byggist fyrst og fremst á
trausti, virðingu og góðum samskiptum.
NORDICPHOTOS/GETTY
STÓRT BELTI Mjaðmabelti
eru vinsæl í vetur. Hér með
leðurstuttbuxum, litríku naglalakki
og einföldum skartgripum.
SVART OG HVÍTT Litir sem klikka
aldrei saman. Stór leðurtaska,
þessi frá Philip Lim, er hinn full-
komni fylgihlutur.
VÍÐAR SKÁLMAR Bláar buxur
með víðum skálmum passa
vel við stutta græna jakkann og
einföldu leðurtöskuna.
ÓREIMAÐIR SKÓR Þessi
tískubloggari var skrautleg til
fara í óreimuðum stígvélum. Nýtt
trend í uppsiglingu?
BLÁ TASKA Bláa taskan
setur skemmtilegan svip á
klæðnaðinn.
EINFALT Það er enn þá sumar í
New York svo flestir tískuspek-
ingarnir spranga um með bera leggi.
1
2
3
4
5
6
1
4 5 6
2 3
NORDICPHOTOS/GETTY
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
EPLI Á VIKU hafa góð áhrif á virkni lungna. Í eplahýði finnst andoxunarefnið
quercetin sem er talið hollt og gott fyrir lungun.5
Við bjóðum 20%
af bíómiðanum og
meira popp og gos
Þegar þú greiðir með Stúdentakorti
Íslandsbanka í Smárabíói, Háskólabíói og
Borgarbíói Akureyri færðu stórt gos og
popp á verði miðstærðar og 20% afslátt af
bíómiðanum – alla daga.
Sjáðu nánari upplýsingar um námsvild á islandsbanki.is
*Afslátturinn gildir hvorki með öðrum tilboðum né á sýningar í lúxussölum.
Við bjóðum
góða þjónustu
www.facebook.com/Islandsbanki.Namsmenn
Við bjóðum
Námsvild
AÐEINS Í DAG!
GÓLFLAMPI
VERÐ ÁÐUR 18.900,- NÚ 10.000,-
40%
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
Opið í dag, laugardag kl. 11-16.