Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 106

Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 106
8. september 2012 LAUGARDAGUR62 62 popp@frettabladid.is Þættirnir Sönn íslensk sakamál eru væntanlegir á skjáinn en þar eru mörg af minnistæðustu sakamálum seinni ára sett á svið. „Þetta gengur vel. Við erum búin að taka upp um þrjá til fjóra þætti af átta,“ segir Sævar Guðmunds- son, leikstjóri þáttana Sönn íslensk sakamál sem eru í tökum þessa dagana. Sum eftirminnilegustu sakamál seinni tíma verða tekin fyrir í þáttunum eins og líkfund- armálið, morðið á Shri Rahma- wati, vændisstarfsemi Catalinu og morðið á Einar Erni Birgissyni. Sævar fullyrðir að það sé vanda- samt að fjalla um sakamál sem eru almenningi minnisstæð og við- kvæm fyrir aðstandendur. „Við gerum ekkert nema í samráði við aðstandendur og höldum góðu sambandi við þá í gegnum ferlið.“ Stór hluti þáttanna er sviðsett- ur, en einnig verða sýnd viðtöl við aðstandendur, fórnarlömb og fleiri. Lögreglan hefur verið til halds og traust til að kenna réttu handtökin svo að sviðsetningin sé sannfærandi. „Helsti höfuðverkur okkar hefur verið lítið fjármagn en það er bara eins og gengur og gerist í íslenskri kvikmyndagerð í dag. Ekki mörg fyrirtæki vilja láta bendla sig við sakamál en við leggjum okkur fram að endur- spegla alvöru sögur í vönduðum þáttum.“ Þættirnir eru væntan- legir á Skjá einn í lok október. - áp Með viðkvæmt efni í höndunum MORÐINGIN HANDTEKINN Hér má sjá sviðsetningu á morðinu á Shri Rahmawati. Handritin eru unnin beint upp úr dómum og út frá viðtölum við fólk sem kom að málunum. RÉTTU HANDTÖKIN Margir þurfa að bregða sér í hlutverk lögreglu- og tæknimanna í þáttunum. Það var mikið um dýrðir í Los Angeles á fimmtudagskvöldið en þá fóru fram myndbandaverðlaun sjónvarpsstöðvarinnar MTV, MTV Video Music Awards. Stjörnurnar fjölmenntu á viðburðinn bæði til að sýna sig og sjá aðra, veita og taka á móti verðlaunum. Það var poppstjarnan Rihanna sem fór heim með aðalverðlaun kvöldsins en myndband hennar við lagið We Found Love var valið myndband ársins. Strákasveitin One Direction, sem er að slá í gegn meðal ungra stúlkna út um allan heim í dag, fór heim með flest verð- laun á hátíðinni. Sveitin var valin nýliði ársins, besta poppmynd- band ársins var við lag þeirra What Makes You Beautiful og þá var hið sama myndband það lag sem flestir vildu deila á netinu. Það eru áhorfendur MTV sem kjósa sigurvegara í hverjum flokki en Beyonce, Katy Perry og Nicki Minaj voru einnig á meðal sigurveg- ara. Kjólarnir voru hver öðrum feg- urri en Rihanna vakti athygli með drengjakoll og eru spekingar strax byrjaðir að spá klippingunni mikl- um vinsældum hjá kvenþjóðinni á næstu misserum. Myndbandaverðlaun MTV ÞRENN VERÐLAUN Strákasveitin One Direction, með þeim Niall, Harry, Liam, Louis og Zayn innanborðs, tóku á móti þrennum verðlaunum á MTV hátíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY Bandaríska hljómsveitin OM spil- ar á Gamla Gauki 15. september. OM var stofnuð 2003 af fyrrum meðlimum rokksveitarinnar Sleep. Tónlistina mætti flokka sem þunga- rokk en er undir sterkum áhrifum frá bæna- og hugleiðslutónlist. Til- gangurinn er þó ekki að breiða út boðskap ákveðinnar trúar, heldur notar sveitin þekktar aðferðir til að fá áheyrendur á sitt band. Í lok júlí kom út þeirra sjötta plata, Advaitic Songs. Þetta verða fyrstu tónleikar sveitarinnar í Evrópuferð hennar og fer miðasala fram á Midi.is. The Heavy Experience hitar upp. Bænaskotið þungarokk OM Bandaríska hljómsveitin spilar á Gamla Gauki 15. september. ÁR FYLLIR poppsöngkonan Pink, eða Alecia Beth Moore, í dag. Hún fagnar eflaust í faðmi eiginmanns síns Carey Hart og eins árs gamallar dóttur þeirra Willow Sage Hart. 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.