Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 118
8. september 2012 LAUGARDAGUR74
PERSÓNAN
Rokktríóið The Vintage Caravan
frá Álftanesi er ein af ungu
hljómsveitunum sem stíga á svið
á hátíðinni Rokkjötnum í Kapla-
krika í dag. Þar verður hún innan
um eldri rokkrisa á borð við
Ham, Skálmöld, Brain Police,
Bootlegs og Sólstafi.
„Ég held að þetta fari í sögu-
bækurnar,“ segir Óskar Logi
Ágústsson, söngvari og gítar-
leikari The Vintage Caravan,
um tónlistarhátíðina. „Ég held
að þetta verði alveg stórklikkað
enda verður þarna brot af því
besta í íslensku rokksenunni.
Þarna verða bæði goðsagnir og
líka nýir eins og við.“ Aðspurður
segir hann mikinn heiður að deila
sviði með eldri og reyndari rokk-
urum. „Þetta eru allt menn sem
maður lítur mikið upp til. Maður
reynir bara að sanna sig og gera
sitt besta.“
The Vintage Caravan sækir
innblástur sinn í klassískt rokk
frá árunum í kringum 1970 með
sveitum á borð við Led Zeppelin,
Cream, Deep Purple, The Jimi
Hendrix Experience, Trúbroti
og Óðmönnum. Sveitin gefur
á næstunni út sína aðra breið-
skífu og nefnist hún Voyage.
„Ég á ekki orð til að lýsa því
hvað við erum sáttir við hana,“
segir Óskar Logi. Upptökustjóri
var Alex „Flex“ Árnason. Óskar
segir hljómsveitina hafa þrosk-
ast mikið frá því síðasta plata
kom út. „Við erum búnir að spila
efnið mjög mikið og þetta er
orðið skemmtilega þétt. Bandið
er miklu betra en það hefur nokk-
urn tímann verið og við náðum
að koma þessum „live fíling“ inn
á plötuna. Lokalagið er tólf mín-
útur. Þetta er konsept „fílingur“
með fullt af kaflaskiptingum. Við
vorum mikið í tilraunamennsku í
stúdíóinu.“
The Vintage Caravan sigraði
í hljómsveitakeppninni Battle
of the Bands hér á landi í mars.
Alþjóðlega úrslitakeppnin átti
að fara fram í Rúmeníu í júní en
ekkert varð af því. Í staðinn verð-
ur hún haldin í London í desemb-
er. Sigurlaunin hljóða upp á um
þrettán milljónir króna.
freyr@frettabladid.is
Rokkjötnar í sögubækur
Ham og Bootlegs eru langelstu sveitirnar á
tónleikunum en þær voru stofnaðar á níunda
áratugnum þegar meðlimir The Vintage Caravan
voru ekki einu sinni fæddir. Önnur bönd sem
stíga á svið eru Sólstafir, Skálmöld, Brain Police,
Momentum og Endless Dark. Tónlistarhátíðin
hefst klukkan 16 og er miðaverð 4.900 krónur.
REYNSLUBOLTAR OG YNGRI
Sigríður María Sigurjónsdóttir
Aldur: 27 ára
Starf: Fata-
hönnuður
Búseta: 101
Reykjavík
Fjölskylda:
Maki og dóttir.
Foreldrar:
Sigurjón Mýrdal,
stærðfræðikenn-
ari í ML, og
Helga Jónsdóttir
handavinnu-
kennari.
Stjörnumerki:
Steingeit
Sigríður María heldur út í starfsnám til
franska tískuhússins Soniu Rykiel.
„Við getum kallað verkið virðingavott til Kaffibarsins.
Ég hef verið fastagestur þar í fimmtán ár eða lengur,“
segir listamaðurinn Arnar Snær Davíðsson sem mál-
aði verk framan á barborð Kaffibarsins.
Það tók Arnar Snæ viku að ljúka verkinu og vann
hann það á nóttunni eftir lokun staðarins. „Ég var
þarna allar nætur og stundum alveg fram að opnun
næsta dag, þannig að það var lítið sofið þá viku,“
segir Arnar og bætir við að tíminn muni svo leiða í
ljós hvort verkið standist áhlaup bargesta kvöld eftir
kvöld.
Verkið var afhjúpað á fimmtudaginn var og á því
má greina andlit nokkurra meðlima karlakórsins
Bartóna, sem Arnar Snær er meðlimur í, auk andlita
gamalla og nýrra fastagesta Kaffibarsins. Nokkrar
deilur spruttu upp í kjölfarið því að sögn Arnars voru
einhverjir ósáttir við að hafa ekki fengið sinn sess á
barborðinu. „Fólk getur rifist um það sem eftir er af
hverju þessi var málaður en ekki hinn,“ segir hann og
hlær.
Arnar útskrifaðist frá City & Guilds of London
Artschool árið 2010 þar sem hann stundaði nám í
klassískri myndlist. Hann kveðst ánægður með verkið
og þakklátur Ægi Dagssyni framkvæmdastjóra sem
og öðru starfsfólki Kaffibarsins fyrir að hafa fengið
að skilja eftir sig arfleifð á sínu öðru heimili. „Ég er
mjög ánægður yfir að hafa fengið þetta tækifæri.
Á Kaffibarnum verða til ástir og örlög og staðurinn
hefur verið mitt annað heimili í rúm fimmtán ár.“ - sm
Virðingarvottur til Kaffibarsins
ÞAKKAR FYRIR SIG Arnar Snær Davíðsson varði viku í að mála
verk á barborð Kaffibarsins. Hann segir verkið virðingarvott til
staðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Það er Palli sem verður Tyra Banks þátt-
anna. Hann er formaður dómnefndar,“ segir
Hallgerður Hallgrímsdóttir og hlær, en hún
stígur sín fyrstu skref á sjónvarpsskjánum í
nýjum raunveruleikaþætti, Ljósmyndarinn,
sem fer í loftið á Skjá einum eftir áramót.
Hallgerður tekur þar dómarasæti ásamt
ljósmyndaranum Páli Stefánssyni, sem meðal
annars er þekktur fyrir bækur sínar Áfram
Afríka og PS Ísland. Hallgerður lýsir þátt-
unum sem risastórri ljósmyndasamkeppni og
er spennt að hefjast handa. „Þetta er ágætis
áskorun fyrir mig og ég hlakka til. Við verð-
um tvö og svo alltaf einn gestadómari sem
kemur inn í hverjum þætti,“ segir Hallgerður,
en átta þátttakendur komast á skjáinn og verð-
ur einn kosinn út í hverjum þætti fyrir sig.
Hallgerður er ljósmyndari, fatahönnuður
og blaðamaður og segir Pál hafa stungið upp
á sér í hlutverkið. „Ætli ég sé ekki hugsuð
sem fulltrúi ungu kynslóðarinnar. Ég get
alveg verið harður gagnrýnandi þegar það á
við,“ segir Hallgerður sem er með BA-gráðu
í ljósmyndun frá Skotlandi. „Það eiga flest-
ir myndavél, taka myndir og við erum sífellt
mynduð. Það er hluti af hversdeginum og þess
vegna hafa allir gott af því að sjá hver munur-
inn er á góðri mynd og slæmri. Íslendingar
eru almennt lélegir í myndlæsi enda texta-
hefðin svo rík hjá okkur en vonandi stuðla
þættirnir að einhverjum breytingum,“ segir
Hallgerður. Opnað verður fyrir umsóknir í
þáttinn um mánaðamótin og hvetja þau alla
sem myndavél geta valdið til að sækja um. - áp
Stýra raunveruleikaþætti fyrir ljósmyndara
VILJA AUKA MYNDLÆSI Hallgerður Hallgrímsdóttir og
Páll Stefánsson.
Gítarstúdíó Steingríms
www.gitarstudio.is
Gítarnám fyrir alla aldurshópa.
Innritun í gangi.
Kenni yngstu nemendunum eftir Suzukiaðferð.
Námskeið hefjast frá 10. sept.
Kennt er í Kirkjulundi 17 Garðabæ.
Allar nánari upplýsingar á www.gitarstudio.is
steingrimur@internet.is eða í síma 898 2263.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Travel Agency
HAUST 10
Fararstjóri: Steingrímur Gunnarsson
11. - 20. október
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Gardavatn & Feneyjar
Save the Children á Íslandi
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM