Fréttablaðið - 15.09.2012, Síða 24

Fréttablaðið - 15.09.2012, Síða 24
15. september 2012 LAUGARDAGUR24 Ég veit að sumir fóru að hjálpa fólki með íslenskukennslu. Ég bauð Línu það en hún vildi bara hafa það fyrir sig. Þetta er hörkudugleg kona sem hefur staðið í ýmsu, og ég held að hún hafi ekkert viljað láta einhvern fara að sjá um sig eða hjálpa eitt- hvað óskaplega mikið nema bara á sínum forsendum. Ég leyfði henni bara að ráða því. Ég var ekkert að trana mér fram en ef hana vantaði eitthvað þá gat hún alltaf bankað upp á. Bara eins og með aðra vini mína – ég leit ekkert á mig eins og ég ætti að bjarga henni.“ Eru nágrannar og vinkonur Ingibjörg og Lína eru ágætar vinkonur í dag, auk þess að vera nágrannar. „Okkar verkefni var formlega lokið eftir ár, samningur- inn var í ár, en ef þú hefur mynd- að gott samband við fólk þá stekk- urðu ekkert út eftir ár og lætur ekki sjá þig.“ Hún segir mjög mis- jafnt hvernig samböndum stuðn- ingsfjölskyldna og flóttamanna- fjölskyldna sé háttað í dag. Lína og Ingibjörg haldi líklega mestu sam- bandi. „Þessar konur sem komu hingað eru alls konar konur eins og gengur. Fólki hefur gengið mis- jafnlega að aðlaga sig og auðvitað verður þú ekki vinur einhvers sem þú átt ekkert sameiginlegt með.“ Ingibjörg er oft gestur á heim- ili Línu og þær hittast reglulega. „Hún er jafngömul dóttur minni en hún segir að ég sé bara eins og systir hennar og ég held að það sé alveg rétt.“ Meiri fordómar en hún átti von á Ingibjörg segist hafa upplifað miklu meiri fordóma gagnvart flóttafjölskyldunum en hún átti von á. „Fordómar eru eitthvað sem maður vissi að væri til en ég hefði aldrei látið mig dreyma um að það væru svona miklir fordómar. Miklu meira en ég gerði mér grein fyrir.“ Hún segist telja að fordóm- ar gagnvart aröbum séu öðruvísi heldur en fordómar sem til dæmis konur frá Asíu hafi mætt. „Mér hefur fundist þetta svo hatrammt. Fólk er uppfullt af því að allir karl- ar séu lemjandi allar konur, þær verði að gera hitt og þetta og verði að vera með slæður. Fólk er meira að segja að tala um að litlir strák- ar stjórni heilu fjölskyldunum. Ég hef verið alveg ófeimin við að láta í mér heyra þegar fólk er að tala um þetta. Fólk sem tekur þetta að sér ætti líka að hafa í huga að vera eins konar talsmenn þessa fólks út á við.“ Ingibjörg segir líka mikilvægt að fólk taki sig ekki of hátíðlega ef það ætlar sér að styðja við flótta- menn með þessum hætti. „Það má alveg hafa pínu húmor. Það koma upp alls konar sniðug atvik sem maður hlær að eftir á. Eins og til dæmis með Bónus, sem er með grísinn framan á og þau borða ekki svínakjöt. Þegar þetta var komið á djúsfernurnar þá var farið að spyrja spurninga. Fólk má alveg hafa húmor fyrir þessu, auðvitað finnst þeim sumt asnalegt og skrít- ið. Og svo máttu segja nei, þú gerir bara það sem þú vilt. Þetta er bara eins og í venjulegu vinasambandi.“ FRAMHALD AF SÍÐU 22 Um mánaðamótin er von á þremur flóttamannafjölskyldum ættuðum frá Afganistan hingað til lands. Þær koma þó í gegnum Íran. Allar fjölskyldurnar samanstanda af einstæðum mæðrum með börnin sín. Hver fjölskylda sem kemur hingað til lands sem flóttamenn á vegum stjórnvalda fær þrjár til fjórar stuðningsfjölskyldur sem hjálpa þeim við að aðlagast íslensku samfélagi sem best. Það er Rauði kross Íslands sem stendur að stuðningi við fjölskyldurnar og heldur námskeið fyrir væntanlegar stuðningsfjölskyldur þann 19. september. Þar verður farið yfir verkefnið og sögu fólksins sem kemur að þessu sinni, auk þess sem fólki verða kynntar hefðir og menning Afganistans og heyrir reynslusögu stuðningsfjölskyldu. Rauði krossinn leitar nú að fjölskyldum sem eru tilbúnar til að hjálpa flóttamönnunum að aðlagast lífinu á Íslandi, og geta áhugasamir fundið nánari upplýsingar á heimasíðu Rauða krossins. ■ LEITA AÐ FJÖLSKYLDUM fjölskyldufyrirtæki í 20ár www.saft.is KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ SKOÐA EFNI Á NETINU MEÐ GAGNRÝNUM HÆTTI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.