Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 95

Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 95
LAUGARDAGUR 15. september 2012 63 HANDBOLTI Haukar rúlluðu yfir HC Mojkovac með tuttugu marka mun, 32-12, í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð EHF bikarsins í gær. Eins og tölurnar gefa til kynna voru Haukar betri á öllum svið- um handboltans frá fyrstu mínútu til þeirrar 55. en þá gáfu Haukar aðeins eftir og Svartfellingarnir skoruðu þrjú síðustu mörk leiks- ins. Vörn Hauka var frábær og markvarslan einnig en Aron Rafn Eðvarðsson varði 18 skot og fékk á sig 9 mörk á 51 mínútu. Stefán Rafn Sigurmannsson fór mikinn í markaskorun en hann skoraði 13 mörk í leiknum, einu marki meira en andstæðingurinn. „Ég lagði upp fyrir leikinn að skora meira en þeir allir,“ sagði léttur Stefán Rafn Sigurmannsson eftir leikinn. „Þetta var rosalega létt og við mættum alveg klárir eins og sést á tölunum. Við vorum búnir að skoða þá á vídeófundum og vissum að þeir væru þungir. Við vorum því ákveðnir í að keyra á þá og við munum gera það í seinni leiknum líka,“ sagði Stefán Rafn. „Ég átti von á að þetta væri erfiðara framan af leik þar sem þeir næðu að svæfa okkur og skora einfaldari mörk á okkur þar sem við værum komnir á hælana en ég verð að hrósa vörninni og markvörslunni því menn héldu sér á tánum og héldu dampi út allan leikinn,” sagði Aron Kristjánsson þjálfari Hauka í leikslok. Seinni leikurinn verður leikinn í dag klukkan 17. -gmi Haukar-HC Mojkovac 32-12 Mörk Hauka: Stefán Rafn Sigurmannsson 13, Gylfi Gylfason 5, Tjörvi Þorgeirsson 3, Elías Már Halldórsson 3, Freyr Brynjarsson 2, Árni Steinn Steinsþórsson 2, Adam Haukur Baumruk 1, Sveinn Þorgeirsson 1, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1, Egill Eiríksson 1. Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 18/3, Giedreius Haukar rúlluðu yfir Svartfellingana á Ásvöllum í gær: Stefán Rafn skoraði marki meira en HC KOMUST EKKERT ÁFRAM Stefán Rafn Sigurmannsson (númer 10) og Matthías Ingimarsson taka hér vel á Svartfellingi í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.