Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 87

Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 87
LAUGARDAGUR 15. september 2012 55 Sýningin Teikning – þvert á tíma og tækni verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins í dag. Á sýn- ingunni eru teikningar skoska vís- indamannsins John Baine sem tók þátt í leiðangri Stanleys til Íslands árið 1789 en auk þess teikningar Önnu Guðjónsdóttur og grafík- myndir Per Kirkeby og Þóru Sig- urðardóttur. Teikningar Baines hafa nokkra sérstöðu í safni ferðateikninga frá Íslandsleiðöngrum fyrri alda og miðla athugunum og greiningum vísindamannsins skýrt til áhorf- andans. Vettvangsferðir á norðurslóð- um hafa verið grundvöllur verka danska listamannsins Per Kirkeby, sem sýnir fínlegar koparristur frá 2001-2008. Nýleg verk Önnu Guðjónsdóttur hafa skýra vísun í ferðir og firnindi en grafískar teikningar Þóru Sigurðardóttur, gerðar 2011, skírskota hins vegar til farvega efnis og tíma. Tími og teikningar Tónlist ★★★ ★★ Upphafstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í vetur Einleikari: Steven Osbourne. Stjórnandi: Ilan Volkov. Eldborgarsalur Hörpu, 13. september Vöðvastæltur Tsjaíkovskí Arnold Schwarzenegger lék einu sinni Hamlet. Það var í stuttri senu í kvikmynd- inni The Last Action Hero. Schwarzenegger var mjög óvanalegur Hamlet, vöðva- stæltur og árásargjarn. Á einum tímapunkti spurði hann sjálfan sig: „To be, or not to be?“ Og svaraði: „Not to be!“ Svo sprengdi hann allt í tætlur. Mér datt þetta í hug á upphafstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Ilan Volkov stjórnaði fimmtu sinfóníunni eftir Tsjaíkovskí. Það voru engin vettlingatök. Túlkunin átti greinilega að vera nútímalegt mótvægi við tilfinningasemina sem svífur yfir vötnum í tónlistinni. Sálarlíf Tsjaíkovskís var þrungið átökum, og í þessari sinfóníu er allt litróf mannlegra tilfinninga. Tónlistin er dálítið endurtekningasöm, en það virkar ef stígandi er í túlkuninni. Mismun- andi kaflar í verkinu þurfa að fæðast, verða til eðlilega, ná hápunkti. Ef túlkunin er þannig verða endurtekningarnar spennandi. Hljómsveitin má eiga það að hún spilaði vel. Heildarhljómurinn var óvanalega flottur, strengirnir hnausþykkir og glansandi. Margir hljóðfæraleikarar spiluðu líka fallegar einleiksstrófur. Engu að síður var þetta ekki Tsjaíkovskí eins og hann á að vera. Maður sá tónskáldið fyrir sér í sundskýlu að hnykla tattúskreytta vöðvana á vaxtaræktarmóti. Hann ætlaði sér að vinna! Útkoman var yfirborðsleg, og maður satt best að segja beið eftir að verkið væri búið. Mun meira var varið í píanókonsertana eftir Ravel. Þennan vinsæla í G dúr, og svo konsertinn fyrir vinstri hönd. Sá síðarnefndi var saminn fyrir píanóleikarann Paul Wittgenstein. Hann missti hægri höndina í fyrri heimsstyrjöldinni. Lét þó ekki deigan síga, heldur pantaði verk frá ýmsum tónskáldum og spilaði þau á tónleikum. Einleikari var hinn skoski Steven Osborne. Hann var einfaldlega frábær. Konsertarnir voru dásamlega ferskir og leikandi í meðförum hans. Hraðir kaflar voru stórglæsilegir, alls konar tónahlaup svo skýr og örugg að maður dáðist að. Túlkunin var sannfærandi, full af krafti og spennu. Ravel, sem var uppi um aldamótin þarsíðustu, var yngsta tónskáldið á efnisskránni. Á Sinfóníutónleikum hefur músíkin oftast ekki verið nýrri en það. Fagnaðarefni er því að hljómsveitin býður nú upp á þá nýbreytni að vera stundum með svokallaðan Eftirleik. Það eru stuttir tónleikar með nýjum eða nýlegum öndvegisverkum, og eru eftir aðaldagskrána fyrr um kvöldið. Af persónulegum ástæðum gat ég því miður ekki hlustað á Eftirleikinn að þessu sinni. Flutt var Flower Shower eftir Atla Heimi Sveinsson. Ég á góðar minningar frá því verki og hefði svo sannarlega viljað heyra það nú. Jónas Sen Niðurstaða: Sinfónían spilaði vel, en túlkunin var stundum yfirborðsleg. Einleikarinn var frábær. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ – BETRI HEILSA ER BETRA LÍF MEÐ BECEL – Frá aðeins kr. 64.900 Prag 27. september í 3 nætur og 4. október í 4 nætur Ótrúlegt verð Allra síðustu sætin! Nú er upplagt að skreppa til Prag og njóta haustsins í þessari einstaklega fögru borg. Athugið fleiri gistimöguleikar í boði. Verð kr. 64.900 Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á Hotel Ilf *** í 3 nætur með morgunmat. Sértilboð 27. setpember. Verð kr. 79.900 Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á Ibis Mala strana *** í 4 nætur með morgunmat. Sértilboð 4. október. FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20 Föstudaginn 26. október kl. 20 – 2. sýning Laugardaginn 27. október kl. 20 – 3. sýning Sunnudaginn 4. nóvember kl. 20 – 4. sýning Laugardaginn 10. nóvember kl. 20 – 5. sýning Laugardaginn 17. nóvember kl. 20 – 6. sýning Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is Miðasölusími 528 5050 SAGA UM ÁSTIR OG HEFND JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON · AUÐUR GUNNARSDÓTTIR TÓMAS TÓMASSON / ANOOSHAH GOLESORKHI ELSA WAAGE / ALINA DUBIK · VIÐAR GUNNARSSON GRÉTA HERGILS · SNORRI WIUM KÓR OG HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR HLJÓMSVEITARSTJÓRI: CAROL I. CRAWFORD LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON BÚNINGAR: ÞÓRUNN MARÍA JÓNSDÓTTIR LEIKMYND: GRETAR REYNISSON LEIKSTJÓRI: HALLDÓR E. LAXNESS STEVEN OSBOURNE HALLDÓR BALDURSSON FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.