Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 30
15. september 2012 LAUGARDAGUR30 T ravelin Mick ferðast á afskekkta staði og leitar uppi ættbálka og húðflúr sem tengj- ast jafnvel þúsund ára gömlum hefðum. „Stundum kem ég á stað þar sem eru kannski tvær 100 ára gaml- ar konur þær einu eftirlifandi sem bera húðflúr ættbálks síns og þekkja söguna. Oft hefur þetta fólk búið á afskekktum stöðum alla sína ævi og því ekki til nein- ar myndir eða heimildir um flúrin og ástæðurnar sem liggja að baki þeim. Ég reyni að varðveita þekk- inguna með því að mynda flúrin og skrifa niður sögurnar,“ segir ljósmyndarinn og blaðamaðurinn Mick. Á ferðalögum sínum um heiminn hefur hann komist í kynni við marga stórmerkilega hópa sem bera ýmis konar húðflúr af menn- ingar- eða trúarlegum ástæðum. „Ég verð oft var við endurtekin mynstur, jafnvel hjá fólki sem býr á afskekktum stöðum í sitthvorum hluta heimsins,“ segir hann. Dularfull saga húðflúra Húðflúr hafa tilheyrt menningar- samfélögum í mörg þúsund ár en saga þeirra er þó sveipuð dulúð og leyndardómum. Líklegt þykir að fyrstu flúrin hafi orðið til af slysni þar sem sót hafi komist ofan í sár og þannig gróið inn í húðina. Elsta húðflúr sem fundist hefur var á um 5.300 ára gamalli múmíu ísmannsins Ötzi sem fannst við landamæri Ítalíu og Austurrík- is árið 1991. Talið er að Ötzi hafi verið uppi um 3.300 fyrir Krist og var hann með 57 húðflúr, sem hægt var að sjá með berum augum því jökullinn hafði varðveitt líkið svo vel. Rannsóknir leiddu í ljós að þau voru gerð úr sóti og talið er að þau hafi þjónað læknisfræðilegum tilgangi. Mick kannast vel við sög- una af Ötzi og ber sjálfur húðflúr sem er eins og eitt af þeim sem á Ötzi er. „Ég var staddur meðal búsk- manna í Namibíu þegar ég sneri mig á ökkla. Þá var fundin rétt jurt til að lækna mein mín, búið var til blek úr henni og lækningartattú flúrað á mig. Seinna kom í ljós að þetta flúr var alveg eins og eitt þeirra sem fundust á Ötzi,“ segir hann. Mick segir nálar af sítrónu- trjám oft vera notaðar sem nálar í þessum afskekktu samfélögum, en þær eru mjög beittar og harð- ar. Sótið hefur verið vinsælt sem blek í gegnum aldirnar auk þess eru jurtir notaðar eða viður sem er hakkaður niður og blandað saman við vökva, til dæmis mjólk. Menningararfur sem þarf að rannsaka Mick hóf rannsóknir sínar og ferðalög árið 1999. Hann segir mikinn menningararf í húðflúrum og honum hafi þótt nauðsynlegt að varðveita hann. „Það er mjög sorg- legt hvað tattúheimurinn hefur verið lítið rannsakaður í gegnum tíðina því hann er svo merkileg- ur. Ég veit ekki betur en að það sé einn vísindamaður í heiminum í dag sem sérhæfir sig í húðflúrum. Sjálfur rannsaka ég þetta meira út frá sjónarhorni blaðamannsins,“ segir hann. Mick er þýskur að uppruna og býr nú í Berlín. Hann eyðir þó minnstum hluta ársins heima hjá sér því átta til tíu mánuði af árinu ferðast hann um heiminn. „Starfið mitt er í raun þríþætt. Árlega fer ég á tuttugu til 25 tattúráðstefnur um allan heim þar sem ég set upp myndasýningar og skrifa um ráð- stefnurnar,“ segir hann en hann skrifar helst fyrir tattú-tímarit þó annars konar tímarit leiti stund- um til hans líka. „Ég leita líka uppi tattúlistamenn og tek við þá við- töl, sýni vinnu þeirra og fjalla um hvað sé sérstakt við þá. Að lokum eru það svo áðurnefnd ferðalög,“ segir Mick. Kærastan deilir áhugamálinu Travelin Mick er staddur hér á landi til að taka þátt í Icelandic Tattoo Expo sem fer fram í Súlna- sal Hótel Sögu um helgina. Þar mun hann setja upp ljósmynda- sýningu sína In Your Face, auk þess sem hann mun skrifa um ráðstefnuna. „Á sýningunni má sjá fólk með mismunandi tattú í andlitinu sem bera vitni um menningu þeirra eða trú,“ segir hann. Kærastan hans, Sana, deil- ir blessunarlega áhugamálinu með honum og ferðast þau mikið saman. Hún er einnig stödd hér- lendis og verður með danssýn- ingu á Icelandic Tattoo Expo. Það er viðeigandi að þau skuli starfa saman í tattúheiminum því þau kynntust einmitt í gegn- um hann. „Það er stór og merki- legur hluti tattúheimsins í Japan en þeir eru fáir þar sem tala ensku og ég tala ekki japönsku, Sana starfaði sem túlkurinn minn og þannig kynntumst við,“ rifj- ar Mick upp, en hjónaleysin eru búin að vera saman í fjögur ár. Þau komu til landsins fyrir viku og tóku sér nokkra daga til að ferðast um Suðurlandið. „Við lent- um í smávegis óveðri en vorum á góðum bíl svo við björguðum okkur,“ segir Mick, sem hefur lengi ætlað að koma til Íslands en alltaf eitthvað komið upp á á síð- ustu stundu. „Ég er rosalega glað- ur yfir að hafa loksins komist alla leið hingað. Ég er alveg heillaður af Íslandi og fjölbreytileika lands- ins. Það leynist eitthvað óvænt handan við hvert horn,“ segir hann ánægður en þau Sana verða hér fram á þriðjudag. Á sýningunni má sjá fólk með mismunandi tattú í andlitinu sem bera vitni um menningu þeirra eða trú. Með 5.000 ára gamalt húðflúr Travelin Mick hefur ferðast um heiminn og myndað húðflúr. Hann er staddur hérlendis og spjallaði við Tinnu Rós Steinsdóttur um þá stórmerki- legu hluti sem hann hefur séð og kynnst á ferðalögum sínum. TRAVELIN MICK Mick hefur ferðast til afskekktustu svæða heims þar sem hann hefur tekið myndir og skráð sögu alls kyns húð- flúra. Hann segir þetta vera mikinn menningararf sem þurfi að varðveita. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON M ick eyddi fimm árum í að leita uppi trúarhóp á Indlandi þar sem meðlimir eru með nafn guðs- ins Ram húðflúrað yfir allan líkama sinn. Hópurinn býr á mjög afskekktum og leyndum stað og þegar Mick fór frá þeim sór hann þess eið að hann myndi aldrei segja neinum frá því hvar þeir héldu til. Allir með- limir hópsins eru komnir vel til ára sinna og vilja fá að lifa í friði, en aðeins eru nokkrir tugir enn á lífi. Hópurinn iðkar hindúisma, sem eru þriðju fjöl- mennustu trúarbrögð heims, og hafa tileinkað guðinum Ram tilveru sína með því að hylja húð sína með húðflúruðu nafni guðsins. Þeir brugðu á þetta öfgaráð til að greina sig frá öðrum hópum. „Það er óhætt að segja að það verði ekki aftur snúið þegar þú hefur ákveðið að tilheyra þessum hópi,“ segir Mick. Öll húð hulin nafni guðsins T ravelin Mick verður í Súlnasal Hótel Sögu alla helgina. Þar stendur yfir Icelandic Tattoo Expo sem er haldin hérlendis í fyrsta skipti þessa helgina. Fjölbreytt dagskrá er í boði og meðal annars verður þarna að finna hinn heimsfræga Lizardman sem er allur húðflúraður eins og eðla og með klofna tungu. Einnig verður þar að finna marga færustu húðflúrlistamenn heims sem margir hverjir eru með hátt í tveggja ára biðlista, en hægt verður að komast í flúrun hjá þeim. Auk þess verða keppnir í gangi alla helgina en allir sem eru með húðflúr geta tekið þátt. Nánar er hægt að kynna sér keppnirnar og dagskrá helgarinnar á Facebook-síðu þeirra, facebook.com/Icelan- dicTattooExpo. Icelandic tattoo expo á Hótel Sögu ■ TATTÚHEIMURINN FJÖLBREYTTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.