Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 34
15. september 2012 LAUGARDAGUR34
L
engi vel var mjög mikill kynjahalli
í rannsóknum á heilbrigðismálum.
Það voru fáar konur sem störfuðu
sem vísindamenn og rannsóknir
endurspegluðu það. Sem betur fer
hefur orðið mikil breyting á und-
anförnum árum,“ segir Herdís Sveinsdótt-
ir, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskóla
Íslands og annar tveggja ritstjóra bókar-
innar Við góða heilsu? Konur og heilbrigði í
nútíma samfélagi. Í bókinni, sem ritstýrt er
af Helgu Gottfreðsdóttur, dósent í ljósmóð-
urfræði, auk Herdísar,
er að finna fræðigreinar
um fjölmörg málefni sem
tengjast heilsufari kvenna.
Blæðingar, meðganga,
ófrjósemi, tíðahvörf, áföll,
þunglyndi og vefjagigt eru
meðal umfjöllunarefna
bókarinnar.
Herdís segir að þær hafi
haft að leiðarljósi að birta
fræðigreinar sem varpa
nýju ljósi á heilbrigðismál kvenna. „Rann-
sóknir hafa leitt í ljós að konur og karlar
bregðast til dæmis ekki eins við lyfjum og því
þarf að rannsaka sjúkdóma hjá bæði körlum
og konum. Undanfarin tuttugu ár hefur, hvað
varðar heilsu kvenna, náðst mestur árang-
ur í að lækka dánartíðni af völdum brjósta-
krabbameins, hjarta- og æðasjúkdóma og
leghálskrabbameins. Hins vegar hefur ekki
verið lögð næg áhersla á að rannsaka félags-
lega, menningarlega og umhverfislega áhrifa-
þætti heilsu kvenna,“ segir Herdís.
Það er mikilvægt jafnréttismál að þekking
á heilsu kvenna sé jafn góð og á heilsu karla
að mati ritstjóra til að úrræði og inngrip við
hæfi standi til boða eða eins og segir í inn-
gangi bókarinnar: „Gagnrýnin umræða um
heilsufar kvenna og samspil þess við félags-
legt umhverfi hefur […] náð eyrum margra en
til að uppræta megi misrétti þegar kemur að
heilsu er mikilvægt að taka á undirrót kynja-
mismunar innan hvers samfélags. Jafnrétti
kynjanna er forsenda þess að hægt sé að tak-
ast á við annan ójöfnuð í heiminum.“
Heilsa kvenna í nýju ljósi
Þekking á heilsufari kvenna var lengi vel af skornari skammti en þekking á heilsufari karla. Ný bók varpar ljósi á ýmsar hliðar er
snerta heilbrigðismál kvenna sagði Herdís Sveinsdóttir, annar tveggja ritstjóra bókarinnar, við Sigríði Björgu Tómasdóttur.
HERDÍS
SVEINSDÓTTIR
VISSIR ÞÚ AÐ...
■ ÓRÁÐGERÐ ÞUNGUN*
*Kvenna sem fóru í
fóstureyðingu
50%
Engin
getnaðarvörn
Vandamál
við notkun
Óörugg
getnaðarvörn
Óútskýrð
30%
10%
10%
■ UNGUM MÆÐRUM FÆKKAR
‘71-´75 ´75-´80 ´81-´85 ´86-´90 ´91-´95 ´96-´00 ´01-05 ´06-´10
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
%
22%
16%
23%
38%
48%
28%
13%
52%
■ Hlutfall frumbyrja
20 ára og yngri
■ … talið er að á næstum árum muni eitt af hverjum
sex pörum í heiminum þurfa að glíma við vandamál sem
tengjast ófrjósemi á einhverjum hluta frjósemisskeiðs
síns eða á því öllu. Samkvæmt skilgreiningu Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) telst það vera
ófrjósemi þegar par hefur reynt að geta barn í meira en
eitt ár án þess að það takist.
■ … líffræðilegar breytingar sem verða við blæðing-
ar koma fram fyrr og hraðar hjá þeim sem þroskast
snemma. Hormónabreytingar sem leiða til kynþroska
geta valdið ýmsum tilfinningalegum sveiflum þar sem
sjálfsmat og sjálfsstjórn þroskast síðar. Unglingar eru því
örari á þessu tímabili, verða spenntari, sýna meiri tilfinn-
ingasemi og geta orðið áhættusæknari en síðar.
■ … um víða veröld eiga allflestar konur sem verða 55
ára eða eldri það sameiginlegt að hætta blæðingum.
Þrátt fyrir alla þessa sameiginlegu reynslu af tíðahvörfum
(síðustu blæðingum) var þekking á aðdraganda þeirra og
áhrifum á heilsu kvenna af skornum skammti allt fram á
tíunda áratug 20. aldar.
■ … þrátt fyrir
greiðan aðgang að
öruggum getnaðarvörnum á
Vesturlöndum verða árlega fjölmargar
konur þungaðar án þess að ætla sér það.
Ýmislegt hefur áhrif á notkun getnaðarvarna en fagleg
ráðgjöf um þær er talin vera mjög mikilvæg til að stuðla
að markvissri notkun.
■ … enn er ekki að fullu vitað hvað veldur vefjagigt en
þar sem sérstakar lífeðlis- og lífefnafræðilegar orsakir
hafa ekki fundist hefur því verið haldið fram að þær
geti að einhverju leyti verið sálfræðilegar. Hafa nokkrar
rannsóknir til dæmis sýnt að talsvert hlutfall einstaklinga
með vefjagigt hafði orðið fyrir einu eða fleiri áföllum áður
en einkenni gigtarinnar komu fram og svo virðist sem
konur sem hefur verið nauðgað séu líklegri til að þjást af
vefjagigt en aðrar. Konur sem eru þolendur ofbeldis eru
ellefu sinnum líklegri til að vera með vefjagigt en aðrar
konur.
■ … skýr kynjamunur kemur fram bæði í tegundum
áfalla og afleiðingum þeirra. Rannsóknir hafa leitt í
ljós að karlmenn eru líklegri til að verða fyrir öllum
tegundum áfalla nema þeim sem tengjast kynferðis- og
heimilis ofbeldi, en slík áföll eru töluvert algengari hjá
konum og konur eru líklegri en karlar til að þróa með sér
áfallastreitu röskun og önnur vandamál í kjölfar áfalla.
■ … hérlendis voru 3,3% barna sem fæddust árið 2008
getin með aðstoð tæknifrjóvgunar sem er samheiti yfir
meðferðir við ófrjósemi, svo sem glasafrjóvgun, smásjár-
frjóvgun, uppsetningu frystra fósturvísa og tæknisæðingu.
■ … konur með langvinna lungnateppu er hratt vaxandi
skjólstæðingahópur heilbrigðisþjónustunnar víðs vegar
um heiminn. Þær nota þjónustuna meira en karlar þótt
sjúkdómurinn sé síður greindur hjá þeim. Reykingar eru
meginorsök sjúkdómsins. Sjúkrahúskostnaður vegna
langvinnrar lungnateppu er stærsti einstaki útgjaldaliður
heilbrigðisþjónustu vestrænna þjóða. Dánartíðni kvenna
með langvinna lungnateppu á Íslandi fór fram úr dánar-
tíðni karla á árinu 2004.
Heimild: Heilsufar kvenna, Hagstofa Íslands.
■ Ástæður óráðgerðrar þungunar meðal kvenna sem fóru í fóstureyðingu
hér á landi voru rannsakaðar á árunum 1999 til 2000. Meginástæða þess
að getnaðarvarnir voru ekki notaðar var sögð vera kæruleysi. Þetta háa hlut-
fall kvenna sem ekki notuðu getnaðarvarnir þegar getnaður varð er mun
hærra hér en víða annars staðar.
■ Með tilkomu getnaðarvarna í kringum
1960, hafa konur í auknum mæli getað
stýrt barneignum sínum en það hefur
síðan haft áhrif á meðalaldur kvenna
þegar þær eignast sitt fyrsta barn. Eins og
grafið sýnir hefur frumbyrjum 20 ára og
yngri fækkað mjög.
MEÐALALDUR FRUMBYRJA
26,6 ár
LÉST ÚR LANGVINNRI LUNGNATEPPU ÁRIÐ 2009 EN
37 KARLAR.
51 kona
KVENNA HAFA ÁTT VIÐ ÓFRJÓSEMI AÐ STRÍÐA
Á ALDRINUM 20-44 ÁRA.
9% kvenna
Stillanleg heilsurúm! Fyrir þínar bestu stundir.
D Ý N U R O G K O D D A R
TEMPUR® Orginal eða Cloud heilsudýna á
C&J stillanlegum botnum. 2x80x200 cm.
TILBOÐ Kr. 578.550,-
Verð 749.875,- Þú sparar 171.325,-
* 3, 5% lántökugjald
12
mánaða
vaxtalaus lán
á st i l lanlegum
rúmum*
Þráðlaus fjarstýring