Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 96
15. september 2012 LAUGARDAGUR64
FÓTBOLTI Margrét Lára Viðarsdótt-
ir hefur verið dugleg að safna að
sér öllum helstum markametum í
íslenskum fótbolta en um síðustu
helgi tókst tveimur stórefnileg-
um leikmönnum að slá aldursmet
hennar frá 2004 þegar Margrét
Lára varð markadrottning úrvals-
deildarinnar 18 ára gömul.
Elín Metta Jensen og Sandra
María Jessen eru báðar fæddar
árið 1995 og fögnuðu því 17 ára
afmæli sínu fyrr á þessu ári. Þær
skoruðu báðar 18 mörk í 18 leikjum
í Pepsi-deild kvenna í sumar og
urðu báðar markadrottningar.
Elín Metta spilaði færri mínútur
og fékk því gullskóinn en
Sandra María varð jafnframt
Íslandsmeistari með Þór/KA og
er ein af þeim sem koma sterklega
til greina sem besti leikmaður
tímabilsins.
„Þetta er frábært og ég rosalega
stolt af þessum stelpum. Ég
þjálfaði aðeins Elínu þegar hún
var yngri og þekki hana því aðeins
betur en Söndru. Þær eru báðar
hrikalega efnilegar og við fögnum
því að það séu að koma leikmenn
upp,“ sagði Margrét Lára aðspurð
um nýju markaprinsessurnar.
M a r g r é t L á r a s j á l f
verður vonandi leikfær á
Laugardalsvellinum klukkan 16.15
í dag þegar íslenska liðið mætir
Norður-Írlandi í næstsíðasta leik
íslenska liðsins í undankeppni EM.
Sandra byrjaði landsliðsferil-
inn eins og Margrét Lára eða með
því að skora með fyrstu snertingu
aðeins nokkrum mínútum eftir
að hún kom inn á í sínum fyrsta
landsleik. „Sandra er þegar búin
að standa sig vel með landslið-
inu og báðar þessar stelpur eru
með mikið sjálfstraust sem skipt-
ir miklu máli þegar maður er að
koma nýr inn. Við eigum von á því
að þær eigi eftir að setja mark sitt
á leikinn á laugardaginn (í dag),“
sagði Margrét Lára.
„Ég er mjög spennt og ég held að
þetta eigi eftir að ganga mjög vel á
móti Norður-Írlandi. Ég passa mig
að gera ekki of miklar væntingar
um að fá að spila í þessum leik en
ég vona að ég fái að spila eitthvað
og að minnsta kosti að ég verði í
hóp. Það er ótrúlega gaman að fá
að vera ein af 22 og ég er mjög glöð
með það,“ segir Sandra María Jes-
sen en hún hefur komið inn á sem
varamaður í tveimur fyrstu lands-
leikjunum og skorað í báðum.
Sandra María varð eins og áður
sagði að sjá á eftir gullskónum
með minnsta mun. „Ég verð bara
að sætta mig silfurskóinn sem
er líka frábært. Aðalmálið var
að vinna Íslandsmótið. Ég fékk
þann bikar og get því ekki kvart-
að,“ segir Sandra María sem skor-
aði í síðasta leiknum en það var
þó ekki nóg.„Nú hef ég bara eitt-
hvað til að stefna að á næsta ári,“
segir Sandra María en það hefur
þó ekkert slest upp á vinskapinn
hjá þeim stöllum þrátt fyrir harða
baráttu.
„Við erum mjög góðar vinkon-
ur enn þá og það er allt í góðu.
Það þarf alltaf einhver að vinna.
Hún vann í þetta skiptið og það er
bara flott hjá henni,“ sagði Sandra
María og Elín Metta tekur undir
þetta. „Við erum að sjálfsögðu enn
þá vinkonur. Við erum búnar að
vera herbergisfélagar með yngri
landsliðunum og erum bara fínar
vinkonur,“ segir Elín Metta. Hún
er nú að spila meðal margra fyrir-
mynda sinna úr Val.
„Þetta er rosalega flott lið og
það er ofboðslega gaman að fá
að vera partur af því. Ég var
bara boltasækir hjá þeim fyrir
nokkrum árum og það er því mjög
gaman að fá að spila með þeim
núna,“ segir Elín Metta. Hún er að
sjálfsögðu í skýjunum að hafa náð
í gullskóinn í Pepsi-deildinni.
„Það er skemmtilegt og mikill
heiður að fá gullskóinn. Ég var
ekkert að búast við því að vinna
þetta. Hún var einu marki fyrir
ofan mig og ég var ekki búin að
kynna mér reglurnar þannig að
ég vissi ekkert hvernig þetta færi
ef við yrðum jafnar. Svo kom þetta
bara skemmtilegt á óvart,“ sagði
Elín Metta.
Margrét Lára hefur skorað 45
mörk fyrir íslenska landsliðsins
síðan Sigurður Ragnar Eyjólfsson
tók við liðinu í ársbyrjun 2007 eða
langmest af öllum leikmönnum
liðsins á þeim tíma.
„Okkur hefur svolítið vantað
markaskorara undanfarin ár og
það er því frábært að fá svona
stelpur inn. Það er greinilegt að
þær hafa verið að æfa vel undan-
farin ár sem er að skila þeim langt.
Það eiga líka örugglega fleiri góðir
leikmenn eftir að koma upp og við
fögnum því,“ segir Margrét Lára.
ooj@frettabladid.is
NÝJU MARKAPRINSESSUR LANDSLIÐSINS
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur verið markadrottning kvennalandsliðsins í mörg ár en Elín Metta og Sandra María, tvær 17 ára
stelpur, slógu í gegn í Pepsi-deild kvenna í ár og eru í íslenska landsliðshópnum fyrir gríðarlega mikilvæga leiki í undankeppni EM.
MARKADROTTNINGIN OG PRINSESSURNAR Margrét Lára Viðarsdóttir með Söndru Maríu Jessen á hægri hönd og Elínu Mettu
Jensen á vinstri hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Edda Garðarsdóttir mun
væntanlega leika sinn 94. lands-
leik í dag þegar íslenska kvenna-
landsliðið fær Norður-Írland í
heimsókn á Laugardalsvöllinn
í næstsíðasta leik sínum í und-
ankeppni EM í Svíþjóð en með
sigri tryggja íslensku stelpurnar
sér í það minnsta þátttökurétt í
umspili um sæti í úrslitakeppn-
inni á næsta ári.
Edda vill ekki gera of mikið
úr áhrifum þess að mikil óvissa
hefur verið í kringum þátttöku
fyrirliðans Katrínar Jónsdóttur
og markadrottningarinnar Mar-
grétar Láru Viðarsdóttur í þess-
um leikjum.
„Það er gleðiefni að Margrét
Lára sé hérna með okkur og hún
var mjög spræk á fyrstu æfing-
unni og það var ekki að sjá að hún
hafi verið lengi í burtu. Þetta er
bara það klassíska að maður
kemur í manns stað. Ég var uppi
í stúku þegar við spiluðum fyrri
leikinn við Noreg og sá leikur fór
bara þokkalega,“ segir Edda en
Ísland vann þá 3-1 sigur á Noregi
í Laugardalnum.
„Það eru margar stelpur í
hópnum núna sem ég hef varla
séð áður en eru að koma þvílíkt
sterkar inn. Við vorum með lið
þar sem allar voru undir 23 ára
aldri. Þetta lið sýndi góða takta
þegar við vorum úti í Skotlandi.
Framtíðin lofar góðu og þetta
lítur mjög vel út,“ segir Edda en
stelpurnar eiga mikla möguleika
á því að tryggja sig inn á annað
Evrópumótið í röð.
„Þetta eru algjörir úrslitaleik-
ir og þetta er allt í okkar hönd-
um. Þetta er undir okkur komið
hvernig við komum stemmdar á
leikdegi. Ef þær (Margrét Lára
og Katrín) þurfa að skokka og
teygja á æfingunum í kringum
leikina þá er það allt í lagi en
þær geta ekki gert það í leiknum
sjálfum,“ segir Edda. Hún, sem er
mikill reynslubolti í liðinu, mun
taka að sér það stóra hlutverk að
stilla spennustigið rétt fyrir leik-
inn á morgun.
„Þetta verður að vera eins og
í vel samstilltum kvennakór og
að við drífum hverja aðra áfram
en ekki öfugt. Ef við skítum upp
á bak á laugardaginn og gerum
ekki það sem við erum bestar
í eða sýnum okkar rétta andlit
þá er þetta bara búið. Það sem
hjálpar mér núna er Noregur og
Kýpur,“ sagði Edda og vísar þá
í síðustu tvo leiki karlaliðsins
þar sem strákarnir töpuðu fyrir
Kýpur aðeins fjórum dögum eftir
flottan sigur á Norðmönnum.
„Við verðum að gera okkar
besta og vera í toppstandi á leik-
dag,“ sagði Edda. - óój
Edda Garðarsdóttir veit að ekkert má klikka í dag:
Verðum eins og vel
samstilltur kvennakór
ALLTAF HRESS OG KÁT Edda Garðars-
dóttir lífgar ávallt upp á æfingar og sam-
verustundir kvennalandsliðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN