Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 102
15. september 2012 LAUGARDAGUR70
„Ég hafði tekið eftir því að það
vantaði blað á markaðinn sem
reyndi á fleira en tískuvitund
kvenna,“ segir Hildur Sif Krist-
borgardóttir, ritstýra og einn stofn-
enda tímaritsins Volg sem kemur
út um mánaðarmótin.
Volg er tímarit fyrir konur um
konur að sögn Hildar og verður
dreift frítt á höfuðborgarsvæðinu
í búðir, háskóla, framhaldsskóla og
fleiri vel valda staði. Ásamt Hildi
Sif standa þær Ásta Kristjánsdótt-
ir og Sara María Júlíusdóttir að
útgáfu blaðsins. Ásta er ljósmynd-
ari blaðsins og Sara María stílisti
en að sögn Hildar verður mikil
áhersla lögð á myndir og mynd-
gæði í blaðinu.
„Ég setti mig í samband við
þær Ástu og Söru Maríu en allar
vorum við sammála um að það
vantaði nýtt blað í flóruna. Blað
sem við myndum hafa áhuga á að
lesa. Volg inniheldur vissulega
tísku eins og mörg önnur blöð en
gerir meiri kröfur til lesenda sinna
þar sem við gerum meiri kröfur,“
segir Hildur Sif en í blaðinu verða
auk tískuþátta viðtöl, ráðlegging-
ar og greinar út ýmsum áttum.
„Við teljum okkur vita að stór hluti
kvenna vill lesa um eitthvað annað
en tíu ráð til að líta betur út eða
í hvaða kjól einhver leikkona var.
Við ætlum okkur að einbeita okkur
að því að vera jákvæðar og endur-
spegla það sem er spennandi og
skemmtilegt úr lífi og leik kvenna.“
Fyrirmyndir blaðsins eru erlend
tímarit þar sem konur eru í aðal-
hlutverki en umfjöllunarefni Volg
verða tíska, mannlíf, stjórnmál
og heimsmál. „Það er til svo ótrú-
lega margar flottar konur á Íslandi
sem eru að gera rosalega góða hluti
og vert er að vekja athygli á. Við
gleymum ekkert körlunum samt en
þeir eru bara í skugganum.“
Fyrsta tölublaðið er væntan-
legt um mánaðamótin en stöllurn-
ar hafa lagt mikla vinnu og tíma í
að útkoman verði sem best. Blaðið
verður einnig aðgengilegt á netinu
undir slóðinni Volg.is og á Face-
book.
„Við hlökkum til að sjá heild-
arútkomuna. Það er af mörgu að
taka en við viljum gefa sem minnst
upp um innihaldið til að auka eftir-
væntingu lesenda.“
alfrun@frettabladid.is
PERSÓNAN
Farðu skynsamlega
með þitt Fé!
Fékort er nýtt fyrirframgreitt greiðslukort, sem
sameinar bestu kosti þess að nota reiðufé og kredit-
kort. Nýja MasterCard Fékort auðveldar þér að taka
fjármálin fastari tökum og færir þér um leið ærleg
afsláttarkjör hjá fjölda áhugaverðra fyrirtækja.
Það er óþarfi að vera kindarlegur. Sæktu um
Fékort á www.kreditkort.is.
Goggur útgáfufélag stendur að Volg.
Eigandi Goggs er Sigurjón M. Egilsson.
Meðal annarra blaða hjá útgáfunni eru Útvegsblaðið, Iðnaðarblaðið,
Ferðablaðið, Brimfaxi og Tímarit VM.
Goggur er fjögurra ára gamalt fyrirtæki.
GEFIÐ ÚT AF GOGGI
HILDUR SIF KRISTBORGARDÓTTIR: VANTAÐI NÝTT BLAÐ Í FLÓRUNA
GEFUR ÚT TÍMARIT FYRIR
KRÖFUHARÐAR KONUR
SPENNTUR RITSTJÓRI Hildur Sif Kristborgardóttir er ritstjóri blaðsins Volg sem
kemur í fyrsta sinn út um mánaðamótin. Auk hennar standa þær Ásta Kristjáns-
dóttir og Sara María Júlíusdóttir að blaðinu sem er fyrir konur og um konur.
MYND/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
Þórunn Hjartardóttir
Aldur: 47 ára.
Starf: Myndlistar-
maður, hljóðbóka-
lesari, sjónlýsandi,
þýðandi, prófarka-
lesari og starfar
við hljóðtímarit
Blindrafélagsins.
Foreldrar: Stein-
unn Bjarman og Hjörtur Pálsson.
Fjölskylda: Dæturnar Steinunn (25
ára) og Katrín (21 árs) Harðardætur.
Búseta: 101 Reykjavík.
Stjörnumerki: Fiskur eða snákur í
kínverska stjörnumerkinu.
Þórunn les íslenska þýðingu hinnar
umtöluðu skáldsögu Fifty Shades of Grey
fyrir Blindrabókasafnið.
„Þetta kemur mér verulega mikið á óvart því
mér hefði aldrei nokkurn tíma dottið þetta
í hug,“ segir tónlistarmaðurinn Hallbjörn
Hjartarson, kúreki norðursins og konungur-
inn í Kántrýbæ. Sendiráð Bandaríkjanna á
Íslandi og bandarísku samtökin Country Music
Association hafa ákveðið að veita Hallbirni
viðurkenningu fyrir að koma kántrýtónlist
á framfæri á Íslandi og fyrir framlag hans
til kántrýtónlistar. Afhendingin fer fram í
Kántrýbæ á Skagaströnd næstkomandi þriðju-
dag.
Sendiherra Bandaríkjanna, Luis E. Arreaga,
veitir Hallbirni viðurkenningu frá Country
Music Association og einnig viðurkenningu
frá sendiráðinu, en í báðum tilfellum er um að
ræða staðfestingu á miklu og góðu framlagi
tónlistarmannsins til kántrýtónlistar á Íslandi.
„Með eldmóði sínum og sköpunargáfu hefur
Hallbjörn sameinað bandarískan tónlistarstíl
íslenskri menningu og skapað einstaka tegund
af íslenskri kántrýtónlist,“ segir í viðurkenn-
ingu sendiráðsins.
„Ég er ákaflega stoltur og þakklátur fyrir
þennan skilning sem mér er sýndur á mikil-
vægi þess að kynna kántrýtónlistina á Íslandi,“
segir Hallbjörn, sem á ferlinum gaf út fjöldann
allan af kántrýplötum. Hann kveðst hættur
tónlistarsköpun en starfrækir enn útvarpsstöð-
ina Útvarp Kántrýbæ sem fagnar tuttugu ára
afmæli sínu þann 14. nóvember næstkomandi.
„Ég hef ekki hugsað mér að halda sérstaklega
upp á afmælið en ég hlakka til að veita þessum
viðurkenningum móttöku,“ segir Hallbjörn. -kg
Kúreki norðursins fær viðurkenningar
KÓNGURINN Hallbjörn segist stoltur af viðurkenning-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
„Tökur er hafnar og hér er líf og
fjör,“ segir Þór Freysson hjá Saga
Film en tökur á íslenskri útgáfu
þáttarins Masterchef byrjuðu í gær
í húsakynnum Saga Film.
Dómarar þáttanna, Friðrika Hjör-
dís Geirsdóttir, Eyþór Rúnarsson og
Ólafur Örn Ólafsson, voru önnum
kafnir við að smakka rétti frá von-
góðum þátttakendum. Tæplega 500
áhugasamir sóttu um að vera með
en 50 manns voru boðaðir í áheyr-
endaprufurnar. Þeim var skipt í tvo
hópa, 25 spreyttu sig fyrir framan
eldavélina í gær og seinni hópurinn
gerir slíkt hið sama í dag.
„Þau hafa 45 mínútur til að und-
irbúa rétti í sérstöku eldhúsi hérna
í stúdíóinu og svo hafa þau 5 mín-
útur fyrir framan dómnefndina til
að leggja lokahönd á réttinn,“ segir
Þór sem hafði í nógu að snúast í
gær. Þættirnir verða sýndir á Stöð
2 í byrjun desember en sá sem ber
sigur úr býtum í þáttunum hlýtur
eina milljón króna í verðlaun. -áp
Matarilmur á fyrsta tökudegi
LÍF OG FJÖR Matarilm lagði um húsakynni Saga Film í gær er keppendur lögðu sig
fram við að heilla dómnefnd Masterchef, þau Friðriku Hjördísi, Eyþór og Ólaf Örn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON