Fréttablaðið - 23.10.2012, Blaðsíða 14
14 23. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Þátttaka, og niðurstöður, atkvæða-greiðslunnar um stjórnarskrána um
helgina komu mörgum þægilega á óvart.
Þátttakan var miklu meiri en a.m.k.
flestir áttu fyrir fram von á. Skilaboðin
til Alþingis voru skýr.
Í fyrsta lagi tók fast að helmingur
atkvæðisbærra manna þátt í atkvæða-
greiðslunni. Það er mjög hátt hlutfall.
Það er hærra en sést að jafnaði í Sviss,
sem hefur mesta reynslu af beinu lýð-
ræði af þessu tagi.
Í öðru lagi voru niðurstöðurnar mjög
afgerandi. Mikill meirihluti, eða ríflega
66%, vill nýja stjórnarskrá á grundvelli
þeirra draga, sem um var kosið. Öllum
spurningum sem lagðar voru fyrir þjóð-
ina var svarað játandi. Það var athyglis-
vert að í einu tilviki tók þjóðin aðra
afstöðu en lá fyrir í drögum stjórnlaga-
ráðs – og vill þjóðkirkju í stjórnarskrána.
Það sýnir að fólk tók sjálfstæða afstöðu,
vó og mat tillögur í drögunum, og komst
að eigin niðurstöðu.
Yfirgnæfandi stuðningur, eða 84,1%,
var við lykiltillögu um að stjórnarskrá
mæli skýrt fyrir um sameign þjóðar-
innar á auðlindum. Þjóðin lýsti einnig
afdráttarlausum vilja til að taka upp
þjóðaratkvæðagreiðslur, efla persónu-
kjör, og hafa jafnt vægi atkvæða.
Milli stjórnmálaflokka hafa verið mis-
munandi skoðanir á þessum þáttum og
aðferðinni við að semja nýja stjórnar-
skrá. Nú er það allt að baki. Þjóðin hefur
talað – og hún hefur talað mjög skýrt.
Við þessar aðstæður á Alþingi að grafa
stríðsexina, og mynda breiða samstöðu
um frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Hún
þarf að byggja á gagnkvæmu tilliti, en
hún þarf líka að vera trú þeirri lýðræðis-
legu vinnu sem liggur að baki stjórnar-
skrárdrögunum, og þar með niðurstöðu
kosningarinnar.
Þetta á að verða meginverkefni á
þinginu í vetur: að útfæra frumvarp sem
til er orðið með þjóðfundi og kjörnum
fulltrúum til stjórnarskrárvinnu. Sam-
staða um það er besta leiðin sem Alþingi
getur farið til að endurvinna traust
landsmanna. Í kjölfar þeirrar vinnu
færi vel á að leggja frumvarpið í dóm
þjóðarinnar samfara þingkosningum
í vor. Alþingi hefur þá í hverju skrefi
unnið með þjóðinni að því að búa til nýja
stjórnar skrá.
Stjórnarskráin – gröfum stríðsexina
Ný
stjórnarskrá
Össur Skarp-
héðinsson
utanríkisráðherra
R
áðgjafahópur atvinnuvega- og fjármálaráðherra skilaði
í síðustu viku tillögum um heildarumgjörð um fjármála-
stöðugleika á Íslandi. Þeirra á meðal eru margar tillögur
um hvernig takmarka megi eða koma í veg fyrir áhættu-
sækni í endurreistu bankakerfi, til þess auðvitað að mis-
tökin sem leiddu til hrunsins fyrir fjórum árum endurtaki sig ekki.
Á meðal þessara tillagna er að „unnt verði að aðgreina mikilvæg-
ustu rekstrarþætti, svo sem fjárfestingar- og viðskiptabankastarf-
semi, við skilameðferð, og athugað
verði gaumgæfilega hvort krefjast
skuli lagalegs aðskilnaðar tiltek-
inna sérlega áhættusamra starfs-
þátta frá þeim rekstri bankanna
sem tekur við innlánum ef þeir
starfsþættir eru verulegur hluti
af rekstri banka“.
Hér er ekki tekið djúpt í árinni
og virðist fylgt þeirri línu, sem hefur verið lögð bæði í Bandaríkj-
unum og á vettvangi Evrópusambandsins, að „girða af“ rekstur fjár-
festingarbankastarfsemi innan sömu bankasamstæðu fremur en að
aðskilja með öllu rekstur fjárfestingarbanka og viðskiptabanka.
Rökin fyrir aðskilnaði eru þó frekar augljós. Áhættusækni er
nánast byggð inn í viðskiptalíkan fjárfestingarbanka, sem þjónusta
stærstu fyrirtækin á markaðnum og fagfjárfesta og ástunda verð-
bréfamiðlun. Íhaldssemi og varkárni er fremur ríkjandi við rekstur
viðskiptabanka, sem taka við innlánum almennings og fyrirtækja
og veita útlán gegn veðum.
Í leiðara viðskiptablaðsins Financial Times í síðustu viku voru
hálfvolgar tillögur nefndar á vegum brezkra stjórnvalda um „girð-
ingar“ innan fjármálafyrirtækja gagnrýndar. „Menning áhættu-
sækni gengur þvert gegn íhaldssömum gildum sem eiga að ráða í við-
skiptabankastarfsemi,“ skrifaði blaðið. „Í einu og sama fyrirtækinu
er líklegt að fyrrnefnda menningin seytli í gegnum hvaða girðingu
sem verður reist og verði þeirri síðarnefndu yfirsterkari.“
Þetta er kjarni þessa máls. Ef viðskiptabönkum er leyft að stunda
fjárfestingarbankastarfsemi er líklegt að gróðavonin, sem er meiri
í fjárfestingarbönkum, leiði til þess að menn taki of mikla áhættu.
Við höfum séð einu sinni til hvers það getur leitt og þurfum ekki að
læra þá lexíu aftur. Í tilviki íslenzku bankanna getur staðan orðið sú
að þegar ekki er lengur hægt að hagnast á endurmati á eignasöfnum,
freistist menn til að vilja efla fjárfestingarbankastarfsemi til að
bæta arðsemina, fremur en til dæmis að skera niður rekstrarkostnað
sem alþjóðlegur samanburður sýnir þó að ekki er vanþörf á.
Það er stundum notað sem rök gegn aðskilnaði viðskipta- og fjár-
festingarbanka á Íslandi að síðarnefnda starfsemin sé hverfandi nú
um stundir. Það eru einmitt rök fyrir því að stíga þetta skref sem
fyrst, áður en hún verður svo ríkur hluti af rekstri bankanna að sömu
flækjurnar við aðskilnað og nú þvælast fyrir stjórnvöldum bæði í
ESB og Bandaríkjunum verða óleysanlegar.
Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis,
sagði í fréttum RÚV á sunnudaginn að ólíkt öðrum þjóðum gætu
Íslendingar nú „skilið á milli þessarar starfsemi með mjög afgerandi
hætti án þess að það bitni á starfsemi viðskiptabankanna svo neinu
nemi“. Það er rétt hjá honum og rétt að gera meira í málinu en að
„athuga það gaumgæfilega“.
Fjárfestingar- og viðskiptabankastarfsemi:
Skilnaður fremur
en girðingar
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Starfi feðranna lokið?
Íslendingar gengu að kjörborðinu um
helgina og kusu um drög að nýrri
stjórnarskrá. Segja má að þetta mál
hafi vafist fyrir þjóðinni og ekki síst
þinginu síðan lýðveldisstjórnarskráin
var samþykkt 1944. Árið 1947 skipaði
Alþingi stjórnarskrárnefnd og í henni
áttu sæti, meðal annarra, þeir
Bjarni Benediktsson og Gylfi Þ.
Gíslason. Það er skemmtileg
staðreynd að framáfólk
í endurskoðunarstarfinu
núna skuli vera börn þeirra.
Valgerður Bjarnadóttir
er formaður stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar
Alþingis og Þorvaldur Gylfason sat í
stjórnlagaráði.
Athyglisvert samtal
Eftirfarandi samtal átti sér stað á
milli Egils Helgasonar og Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra í
Silfri Egils á sunnudag: EH: Þú ætlar
að sitja út þetta þing? JS: Já.
EH: Og sem forsætisráð-
herra fram á… JS: Já,
já. EH: … síðasta dag,
þangað til þú lætur
af embætti formanns
Samfylkingarinnar,
í, í, í, í …? JS:
Febrúar já.
Svo kemur þú
Nú má vel vera að í þessu samtali
hafi Egill og Jóhanna ekki verið að
ræða sama hlutinn, eða skilið það
eins. Úr þessu verður þó ekki lesið
annað en að Jóhanna ætli að hætta
sem forsætisráðherra í febrúar og
hún þarf að leiðrétta misskilninginn.
En ef þetta er rétt, hvað gerist þá?
Tekur nýr formaður við sem for-
sætisráðherra, jafnvel einhver
sem ekki er í ríkisstjórn nú?
Eða kemur Össur enn einu
sinni til bjargar flokknum og
gegnir embættinu fram að
kosningum?
kolbeinn@frettabladid.is
NÝ
KILJA