Fréttablaðið - 23.10.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 23.10.2012, Blaðsíða 46
23. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR34 DRYKKURINN „Þessi verðlaun eru bæði jákvæð og dýrmæt fyrir ferilinn minn, tengslanet og framtíðar- verkefni. Þau geta opnað ýmsar dyr bæði á Íslandi og erlendis,“ segir Rán Flygenring. Hún hlaut þýsku barnabókmenntaverðlaunin á bókamessunni í Frankfurt fyrr í mánuðinum fyrir teikningar sínar í bókinni Frerk, du Zwerg!. Verðlaunin, Deutsche Jugendliteraturpreis, hafa verið veitt árlega frá árinu 1956 og eru með virtustu barnabókaverðlaununum í Þýska- landi. „Árlega eru gefnar út yfir 8.000 barna- bækur í Þýskalandi svo samkeppnin er mikil. Það voru sex bækur tilnefndar í okkar flokki svo það er varla hægt að segja að verðlaunin hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti, en spurð fyrir fram hefði ég líklega veðjað á ein- hvern reyndari,“ segir Rán. Frerk, du Zwerg! er skrifuð af þýska rithöfundinum Finn-Ole Heinrich og aðspurð hvort hún og Finn-Ole stefni á áframhaldandi samstarf segir hún þau vera með ýmislegt á prjónunum. Rán er nú stödd í Simbabve, en hún hefur verið á faraldsfæti frá því í ársbyrjun. „Sem sjálfstætt starfandi teiknari get ég unnið hvaðan sem er svo lengi sem ég hef aðgang að interneti. Ég reyni að nýta mér þau fríð- indi óspart. Það mætti kannski segja að ég reki eins konar ferðaskrifstofu, í óhefðbundnum skilningi þess orðs. Stundum er ég svo heppin að geta unnið verkefni á staðnum og hér í Sim- babve mun ég meðal annars heimsækja barna- þorp SOS og teikna með krökkunum þar,“ segir ævintýramanneskjan Rán að lokum. - trs Hlaut þýsk barnabókaverðlaun MIKILL HEIÐUR Deutsche Jugendliteraturpreis eru með virtustu barnabókaverðlaununum í Þýskalandi og því mikill heiður fyrir Rán og Finn-Ole að hafa hlotið þau. Hér er Rán að taka við verðlaununum úr hendi stjórn- málamannsins Lutz Stroppe. MYND/JOSÉ POBLETE „Gin og tónik, Tangueray að sjálfsögðu, með fullt af klaka og fullt af lime. Uppáhalds.“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona og markaðs- og kynningarfulltrúi hjá Sagafilm. Önnur breiðskífa tónlistarmanns- ins Snorra Helgasonar, Winter Sun, kemur út í Þýskalandi, Austur- ríki og Sviss á föstu daginn. Það er plötuútgáfan Pop-Up Records sem stendur að útgáfunni en Sindri Már Sigfússon, úr Sin Fang og Seabear, stjórnaði upptökum á plötunni. Winter Sun fékk prýðis- góðar viðtökur hér á landi er hún kom út fyrir rúm- lega ári. Platan fékk fjórar stjörnur hjá gagnrýn- anda Frétta- blaðsins og sögð ein af betri plöt- um ársins 2011. Í tilefni af útgáf- unni heldur Snorri í tónleikaferðalag um Austur- ríki, Þýskaland og Sviss í des- ember. Með honum í för verður úrval íslenskra tónlistarmanna á borð við bassaleikarann Guð- mund Óskar Guðmundsson, úr Hjaltalín og Tilbury, og Sigurlaugu Gísladóttur, betur þekkt sem Mr. Silla, en hún syngur og spilar á úkú lele. Tónleikaferða- lagið hefst í Hamborg þann 3. desem ber og lýkur í Bremen þann 16. desember. - áp Winter Sun til Evrópu Í ÚTRÁS Plata Snorra Helga- sonar, Winter Sun, kemur út í Austurríki, Þýskalandi og Sviss á föstudaginn. Nýtt leikverk um stöðu Evrópu í dag eftir Jón Atla Jónasson verður frumsýnt í hinu þekkta leikhúsi Schaubühne í Berlín í mars. „Þetta er sýning sem ég vinn með leikhúsfólki frá Grikklandi og Spáni, þar sem ástandið er hvað verst í augnablikinu,“ segir Jón Atli og á þar við fjármálakreppuna sem þar hefur riðið yfir. Verkið hefur enn ekki fengið nafn en leikstjóri er Falk Richter, einn virtasti leikstjóri og leikskáld Þýskalands. „Það er verið að sýna verk eftir mig í húsinu, Djúpið, og í framhald- inu sýndu þeir áhuga á að ég myndi skrifa meira fyrir leikhúsið,“ segir Jón Atli, spurður út í tilurð verks- ins. Þetta verður annað frumsýnda verkið hans á skömmum tíma því Borgarleikhúsið sýnir í lok janúar leikritið Nóttin nærist á deginum. Jóni Atla er umhugað um að leik- rit spyrji spurninga sem skipta máli í samtímanum. „Leikhús á Íslandi þurfa að spyrja sig hvort þau vilja reka afþreyingarleikhús eða sam- tímaleikhús sem tekst á við mikil- vægustu spurningarnar á hverjum tíma. Alveg eins og fólk fær þá póli- tík og pólitíkusa sem það á skilið á hverjum tíma, fær fólk líka það leikhús sem það á skilið, nema það kjósi að gera eitthvað annað og breyta því,“ segir hann. „Ástandið er þannig núna að ef við líkjum leik- húsi við heilbrigðiskerfið þá er eins og við séum hætt að gera hjartaupp- skurði því það er meiri peningur í að stækka brjóst.“ - fb Nýtt leikverk um stöðu Evrópu SÝNIR Í BERLÍN Nýtt leikverk eftir Jón Atla Jónasson verður frumsýnt í Berlín í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég var í fríi á Grikklandi í sumar og ákvað að prófa köfun í eitt skipti. Mér fannst þetta svo ofsalega gaman að ég vildi komast strax aftur út í og ákvað því að skrá mig á námskeið og taka köfunar réttindi. Þegar ég kom heim tók ég réttindi fyrir þurrgalla og svo fór ég aftur út í haust til að kafa meira,“ segir Magdalena Dubik fiðluleikari sem var smituð af kafarabakteríunni í sumar. Síðan þá hefur hún stundað köfun af miklu móð, bæði hér heima og erlendis. Aðspurð segir Magdalena að það sé einstök tilfinning að vera neðan- sjávar. „Það er svo magnað að geta verið svona lengi neðansjávar og andað. Það fylgir þessu líka mikil kyrrð og ró. Þegar maður kemst svo loks yfir það hvað þetta er allt saman magnað þá getur maður betur einbeitt sér að þessum ókunnuga heimi, litadýrðinni og dýra- og plöntulífinu.“ Hún stundar íþróttina eins oft og hún hefur tíma til og kafar oftast með öðrum félagsmönnum úr Sportkafarafélagi Íslands. „Ég hef aldrei haft tíma fyrir „hobbí“ áður MAGDALENA DUBIK: ALDREI HAFT TÍMA FYRIR „HOBBÍ“ ÁÐUR Smituð af kafarabakteríu FORFALLIN Magdalena Dubik tónlistarkona prófaði að kafa í fyrsta sinn í sumar og er nú forfallinn aðdáandi íþróttarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN því ég var alltaf á fullu í skólanum og í tónlistinni. Það er skemmti- legt að uppgötva eitthvað nýtt sem manni finnst geðveikt gaman að gera.“ Magdalena kveðst ætla að stunda köfun áfram næstu árin og hefur hægt og rólega verið að kaupa sér þann búnað sem þarf til að stunda íþróttina. „Ég er ekki alveg komin með allt, það er mikið sem þarf að kaupa. En maður sankar græjunum að sér hér og þar og fær svo lánað það sem vantar upp á.“ Fyrir utan köfunina sinnir Magdalena tónlistinni enn þá auk þess sem hún vinnur hjá fyrir- tækinu Andrá sem sér um að fram- leiða og dreifa Penzimi og öðrum vörum sem búnar eru til úr þorsk- ensímum. „Ég vinn, spila á fiðlu, tek að mér einstaka fyrirsætuverk- efni og kafa þess á milli,“ segir hún að lokum glaðlega. sara@frettabladid.is Viðburðurinn Divers Night fer fram í áttunda sinn þann 1. nóvember næstkomandi. Við- burðurinn gengur út á að kafarar víðs vegar um heiminn séu á kafi á nákvæmlega sama tíma. Met var sett árið 2009 þegar 2.749 kafarar voru á kafi á sama tíma í 218 vötnum í tuttugu löndum. Stefnt er að því að slá metið í ár klukkan 20.12 þann 1. nóvember. Íslenskir kafarar ætla að vera á kafi í Silfru á þessum tíma. Magdalena kveðst ætla að taka þátt í fjölköfuninni í ár. „Þeir stefna á að setja heimsmet í fjölköfun og ég ætla klárlega að vera með,“ segir hún spennt. REYNA AÐ SLÁ HEIMSMET Í FJÖLKÖFUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.