Fréttablaðið - 23.10.2012, Page 29
| FÓLK | 3HEILSA
D-VÍTAMÍN Í
VETRARBYRJUN
■ HOLLT
Þegar vetur gengur í garð finna
margir fyrir orkuleysi. Suma
þeirra sem þjást af þreytu
skortir D-vítamín eða sólskins-
vítamínið. Lítil birta getur verið
orsakavaldur en við fáum 90%
D-vítamíns með sólarljósi. Það
er því afar mikilvægt að nota
birtuna á meðan hún varir og
fara í göngutúr. Um þetta hefur
verið mikið fjallað að undan-
förnu og fólk því orðið með-
vitað um að gott sé að taka inn
D-vítamín. Hins vegar eru færri
sem gera sér grein fyrir að
mataræðið skiptir einnig máli.
Fiskur ætti til dæmis að vera
oftar á borðum. Fæðutegundir
sem eru ríkar af D-vítamíni
eru egg, mjólk, lifur, smjör og
fiskur. Lax er til dæmis sérstak-
lega ríkur af D-vítamíni auk
þess að vera góður matur.
Hér er einföld uppskrift að
grilluðum laxi með mintusósu
fyrir fjóra.
600 g laxaflak
1 tsk. salt
2 msk. tandoori-krydd
1 msk. olía
Saltið flakið klukkustund áður
en það er eldað. Þerrið það
síðan og nuddið með tandoori-
kryddinu. Penslið fiskinn síðan
með olíu. Leggið flakið á heita
grillpönnu, roðmegin, og steikið
þar til liturinn breytist á fisk-
inum. Snúið þá við og steikið
örstutta stund á kjöthliðinni.
Mintusósa
1 dós hrein jógúrt
2 msk. fínt söxuð minta
Salt og pipar
Blandið mintunni saman við jóg-
úrtina og bragðbætið með salti
og pipar. Gott er að gera þetta
fyrir fram þannig að sósan nái
að brjóta sig.
Berið laxinn fram með mintu-
sósu og góðu salati.
■ LYGARAR
Samkvæmt netkönnun sem
framkvæmd var í Bretlandi,
sem eitt þúsund konur svör-
uðu, viðurkenndu nærri 40%
að hafa logið til um að vera á
blæðingum til að losna undan
kynlífi. Höfuðverkur er algeng-
asta lygin í svefnherberginu
en konurnar notuðu blæðingar
einnig oft sem afsökun til að
segja nei við bónda sinn. Blæð-
ingar eru einnig notaðar sem
afsökun til að losna undan
leikfimi eða öðrum íþróttum.
Um 20% nota blæðingar sem
afsökun fyrir því að vera í
vondu skapi eða til
að liggja í leti.
Konurnar fundu
ekki fyrir sam-
viskubiti
vegna
þessara
lyga.
VINSÆL AFSÖKUN
Engiferjurtin hefur bæði verið notuð sem fyrirbyggjandi vörn og lækning við hinum
ýmsu kvillum svo sem höfuðverk, hálsbólgu, hósta, magakveisu og svona mætti
lengi telja.
Margir hafa nú þegar nælt sér í einhverjar haustpestir og því ekki vanþörf á að
birta hér uppskrift að góðu engifertei sem vonandi getur linað einhverjar kvalir.
4 til 6 þunnt skornar sneiðar af hráum engifer
1 1/2 til 2 bollar vatn
Safi úr 1/2 lime
1 til 2 tsk. hunang
Sjóðið engifer í vatni í tíu mínútur. Því lengur sem soðið er þeim mun sterkara
verður teið. Takið af hitanum og bætið lime-safa og hunangi við. Njótið.
ENGIFER VIÐ KVILLUM
Í meira en tvö þúsund ár hefur verið mælt með notkun
engifers í austurlenskum lækningafræðum.
BJÓÐIÐ BAKTERÍ-
UNUM BYRGINN
Engiferdrykkir eru
góðir við kvefi og
hvers kyns kvillum.
NORDIC PHOTO/GETTY
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Verkjalaus og svaf
eins og engill
Á einhverjum tímapunkti ákvað ég
að hætta að taka inn NutriLenk, mér
leið svo vel - verkjalaus og svaf allar
nætur eins og engill en eftir nokkra
daga fann ég fyrir gamalkunnum
verkjum og var ég fljót að byrja aftur
að taka inn NutriLenk.
Nú tek ég NutriLenk Gold að staðaldri,
3 töflur á dag eða fleiri – því þar sem
mér finnst gaman af allri útiveru og
fer til dæmis í golf, göngur og sund þá
þarf ég að “hlusta” á líkamann og taka
fleiri töflur þá daga sem ég er í meiri
hreyfingu – allt upp í 5 töflur á dag.
Nutrilenk Gold hefur reynst mér hin
besta heilsubót og undravert hversu
vel það virkaði eftir aðgerðina.
Frábært að hægt sé að endurbæta
liðheilsuna með náttúrulegu efni og
get ég svo sannarlega mælt með
Nutrilenk Gold.
Anna K Ágústsdóttir
Endurheimt liðheilsa
og laus við lyfin!
Fyrir 3 árum gekkst ég undir liðskiptaaðgerð á mjöðm, hafði ég þurft
að taka inn gigtarlyf í 5 ár þar á undan vegna slitgigtar í báðum mjöð-
mum og hálsliðum. Eftir aðgerðina var ég í tiltölulega stuttan tíma
á sterkum verkjalyfjum því ég byrjaði meðfram þeim að taka inn
Nutrilenk og fann ég fljótt fyrir mun betri líðan.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!