Fréttablaðið - 23.10.2012, Síða 34

Fréttablaðið - 23.10.2012, Síða 34
23. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR22 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is 33 Okkar ástkæra, SIGRÍÐUR JÚLÍUSDÓTTIR lést þriðjudaginn 2. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA JÓNSDÓTTIR áður til heimilis að Sævangi 15, Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi 18. október. Útför hennar verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINBJÖRN JÓHANNESSON Heiðarbæ í Þingvallasveit, lést föstudaginn 19. október. Steinunn E. Guðmundsdóttir Margrét Sveinbjörnsdóttir Auðunn Arnórsson Jóhannes Sveinbjörnsson Ólöf Björg Einarsdóttir Helga Sveinbjörnsdóttir Guðmundur Helgi Vigfússon Kolbeinn Sveinbjörnsson Borghildur Guðmundsdóttir og barnabörn. Móðir okkar, KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR KAABER menntaskólakennari, sem lést 16. október, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 25. október kl. 11.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Svanhildur Kaaber Lúðvík Kaaber Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG OTTÓSDÓTTIR Laugarnesvegi 87, Reykjavík, andaðist að morgni mánudagsins 22. október. Útförin verður auglýst síðar. Guðjón Eyjólfsson Eyjólfur Guðjónsson Ottó Guðjónsson Guðbjörg Sigurðardóttir Karólína Guðjónsdóttir Áslaug Guðjónsdóttir Steinþór Pálsson Gunnar Guðjónsson Marta Svavarsdóttir og barnabörn. Merkisatburðir 1728 Brunanum mikla í Kaupmannahöfn slotar en þá er brunninn um þriðjungur borgarinnar. 1938 Samband íslenskra berklasjúklinga, SÍBS, er stofnað. 1955 Stytta af Héðni Valdimarssyni reist við verkamannabú- staðina við Hringbraut í Reykjavík. 1956 Uppreisnin í Ungverjalandi hefst með mótmælum námsmanna í Tækniháskólanum í Búdapest. 1958 Bandalag háskólamanna, BHM, er stofnað. 1976 Alexandersflugvöllur er tekinn í notkun á Sauðárkróki. Hann er nefndur eftir prófessor Alexander Jóhannessyni, sem var frumkvöðull í flugmálum. Þar er þá lengsta flugbraut á Íslandi utan Keflavíkurflugvallar. 2002 Numið er úr gildi sérákvæði í stjórnarskrá Ítalíu um að afkomendum Úmbertós 2., síðasta konungs Ítalíu, í beinan karllegg sé bannað að stíga fæti á ítalska grund. „Ég fékk striga, pensla og málningu í 10 ára afmælisgjöf frá systur minni. Það var svo daginn eftir afmælið, 16. september 2007, að ég byrjaði að mála fyrir alvöru og hef ekki stoppað síðan,“ segir Sigurður Sævar Magn- úsarson myndlistarmaður. Sigurður Sævar tekur þátt í sýn- ingu Félags frístundamálara sem opnar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Hann er yngstur í hópi þeirra fjöru- tíu fjölbreyttu frístundamálara sem sýna verk sín þar, en elsti þátttak- andinn er 90 ára. „Ég verð alls ekkert var við það að ég sé yngri en flestir í þessum heimi,“ segir hann, en ver- andi aðeins 15 ára gamall er hann vel undir meðalaldri myndlistarmanna. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Sigurður Sævar setur upp sýningu á verkum sínum þó þetta sé í fyrsta skipti sem hann tekur þátt í sýningu á vegum Félags frístundamálara. Fyrsta sýningin hans var á Menn- ingarnótt 2011 þegar hann sýndi í garðskála Höfðatorgs í samstarfi við Simma og Jóa, eigendur Íslensku hamborgara fabrikkunnar. Þar eftir fylgdi sýning á veitingastaðnum Á næstu grösum á Laugavegi og svo var hann í anddyri Vesturbæjarsundlaug- ar í upphafi þessa árs. Allar þessar sýningar voru einkasýningar. Hann átti svo 22 verk á sýningu í Saltfélag- inu á Menningarnótt nú í ágúst en þá deildi hann sal með myndlistar- mönnunum Sigurði Þóri og Sigurði Örlygssyni. Hann segist ekki hafa tölu á hversu mörg listaverk hann hafi gert hingað til. „Síðast þegar ég taldi þá voru þau komin yfir 200 en það er komið töluvert síðan það var,“ segir hann. Í upphafi málaði hann mest abstrakt verk en er í dag búinn að færa sig yfir í fígúratív verk. Áhugann á myndlist segir hann hafa kviknað á sýningu Ólafs Elías- sonar, Frostvirkni, í Hafnarhús- inu 2004. Hann stefnir á að leggja myndlist fyrir sig í framtíðinni og myndlistarnám erlendis er á dag- skrá að menntaskóla loknum. Hing- að til hefur hann þó ekki lagt stund á neitt nám tengt listinni. „Ég er alveg sjálflærður,“ segir hann. Aðspurður hvort hann sé farinn að íhuga hvert hann vilji fara til að læra segir hann vera ótímabært að ákveða það að svo stöddu. „Ég ætla bara að einbeita mér að því að komast í menntaskóla fyrst, svo fer ég að hugsa um þetta,“ segir Sigurður Sævar en hann byrj- aði í 10. bekk í Hagaskóla nú í haust. Hann segir krakkana í skólanum mjög áhugasama um það sem hann er að gera. „Þau styðja mig í þessu eins og öllu öðru,“ segir hann. Hing- að til hefur Sigurður Sævar verið að selja málverkin sín og er hægt að skoða verkin hans á Facebook-síðunni http://www.facebook.com/siggitheart- ist. tinnaros@frettabladid.is SIGURÐUR SÆVAR: ÁHUGINN KVIKNAÐI Á SÝNINGU ÓLAFS ELÍASSONAR Byrjaði að mála 10 ára gamall FÍGÚRATÍV VERK Sigurður Sævar segist hafa byrjað á að mála abstrakt verk en vera nú búinn að færa sig yfir í fígúratív verk. Hér er hann með verkið sem verður til sýnis á sýningu Félags frístundamálara í Ráðhúsi Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Julie Andrews kom í fyrsta sinn fram í einsöngshlutverki í leikhús- inu London Hippodrome þann 23. október 1947. Andrews réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur söng hina erfiðu aríu „Je Suis Titania“ úr gamanóperunni Mignon í dagskrá sem nefndist „Starlight Roof“, þá nýorðin tólf ára. Áður hafði hún komið fram í léttum revíum ásamt móður sinni og stjúpföður í um það bil tvö ár. Andrews lék í Hippodrome-leik- húsinu í eitt ár en í nóvember 1948 flutti hún sig yfir í London Pall- adium þar sem hún varð yngsti einsöngvarinn sem þar hafði stigið á svið. Frægðin lét ekki á sér standa og fljótlega var hún farin að koma reglulega fram í útvarpi og sjón- varpi í Bretlandi. Mestra vin- sælda naut hún fyrir hlutverk sitt í útvarpsleikritinu Educating Archie þar sem hún lék frá 1950 til 1952, frá fjórtán til sextán ára ald- urs. Á sama tíma lék hún í ýmsum sýningum á West End, meðal annars Öskubusku í samnefndum söngleik, og var í leikhóp sem ferð- aðist víða um Bretland og sýndi til skiptis Jóa og baunagrasið og Rauðhettu. Árið 1954 flutti Andrews sig yfir til New York þar sem hún lék í hinum geysivinsæla söngleik Kær- astanum og í kjölfarið fékk hún aðalhlutverkið í My Fair Lady á Broadway. Þar með var framtíðin tryggð: Andrews varð ein skær- asta stjarnan í bandarísku leikhúsi og kvikmyndum. ÞETTA GERÐIST 23. OKTÓBER 1947 Julie Andrews debúterar ein á sviði JULIE ANDREWS „Það eru á milli 150 og 160 manns skráðir í félagið,“ segir Hafdís Harðardóttir, stjórnarmeðlimur Félags frístundamálara. Félagið var stofnað árið 2009 og stendur fyrir alls kyns fundum og fyrirlestrum auk þess sem félagar þess setja upp sýningar saman. „Félagið er opið fyrir alla og engar skyldur eða kvaðir sem fylgja því að vera meðlimur, nema þá bara að borga árgjaldið. Allir sem hafa áhuga á að vera með mega það,“ segir Hafdís. „Það er skemmtilegt að geta boðið upp á vettvang þar sem frístundamálarar geta sett upp sýningar því við komumst ekki inn í þessi klassísku sýningarrými,“ bætir hún við. Sýning Félags frístundamálara í Ráðhúsinu hefst í dag klukkan 17 og stendur yfir í viku eða þar til 30. október. Fjörutíu listamenn sýna þar eitt málverk hver, sem öll þurfa að vera metri á lengd og metri á hæð. Öllum málverkunum verður svo raðað upp á trönur og þau höfð þannig til sýnis. Á sunnudaginn næsta, 28. október, heldur svo listamaðurinn Goddur, Guðmundur Oddur Magnússon, fyrirlestur í tengslum við sýninguna um það hvernig eigi að búa til myndlist. FÉLAG FRÍSTUNDAMÁLARA Í RÁÐHÚSINU ÞÓRA KARÍTAS ÁRNADÓTTIR Leikkona og þáttastjórnandi er 33 ára í dag. „Margir hafa spurt mig hvort ég verði íslenska útgáfan af Heidi Klum og eftir að ég sá mynd af henni skal ég gjarna taka við því viðurnefni.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.