Fréttablaðið - 09.11.2012, Síða 2
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
Kjartan, óraði ykkur fyrir því
að vinna þessi verðlaun?
„Nei, ekki einu sinni í okkar allra
villtustu hugarórum.“
Kjartan Yngvi Björnsson hlaut, ásamt
félaga sínum Snæbirni Brynjarssyni,
Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir
fantasíubók þeirra Hrafnsauga.
Maðurinn sem lést í umferðar-
slysi á Hafnarvegi í fyrradag
hét Sigurgeir Ragnarsson,
búsettur á bænum Grund í
sveitarfélaginu Höfn í Horna-
firði. Sigurgeir var 83 ára,
fæddur þann 5. október 1929.
Hann var ókvæntur og barn-
laus.
Slysið varð á fjórða tíman-
um í fyrradag og enn er unnið
að rannsókn þess. Bifreiðin
lenti utan vegar og valt.
Lést í bílveltu
á Hafnarvegi
GVATEMALA, AP Tugir manna fórust þegar jarð-
skjálfti reið yfir í Gvatemala í fyrrinótt. Skjálftinn
mældist 7,4 stig og olli miklu tjóni, einkum í borg-
inni San Marcos en einnig í mismiklum mæli um
allt landið.
Skjálftinn fannst á mjög stóru svæði, meðal ann-
ars í Mexíkóborg sem er í 965 kílómetra fjarlægð
frá upptökum skjálftans.
Í San Marcos hrundu tugir íbúðarhúsa og margar
af litríkum byggingum miðbæjarins voru ýmist
með stórum sprungum eða algerlega í rústum, þar á
meðal bæði lögreglustöð borgarinnar og dómshúsið.
Íbúar borgarinnar óttuðust stóra eftirskjálfta og
margir leituðu skjóls í sjúkrahúsinu, sem var eina
húsið sem rafmagn var enn í.
Björgunarstörf hófust strax um nóttina og þegar
birta tók af degi var stórvirkum vinnutækjum beitt
við að leita að fólki, sem enn kunni að leynast á lífi í
rústunum.
Í gærmorgun lá öll starfsemi fyrirtækja og stofn-
ana niðri í borginni, enda rafmagnslaust alls staðar
og starfsfólk að huga að tjóni. - gb
Jarðskjálfti sem mældist 7,4 stig olli miklu tjóni í Gvatemala:
Fólk leitaði skjóls á sjúkrahúsi
RÚSTIR Bifreið undir rústum húss í borginni San Marco.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL „Það er skýr niðurstaða héraðsdóms að
Borgarbyggðardómur Hæstaréttar hafi fordæmis-
gildi gagnvart þessu bílaláni og þá væntanlega
stórum hluta slíkra lána,“ segir Helgi Hjörvar, for-
maður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, um
dóm í máli fyrirtækisins Samvirkni gegn Lands-
bankanum sem féll í gær.
Þar komst dómari að þeirri niðurstöðu að
Landsbankanum hefði ekki verið heimilt að
reikna seðlabankavexti af ólöglegu gengis-
tryggðu bílaláni aftur í tímann.
Landsbankinn og Lýsing töldu að svokall-
aður Borgarbyggðardómur ætti ekki við
um skemmri lán á borð við bílalán og
hófu því ekki endurútreikning á slíkum
lánum.
„Arion banki og Íslandsbanki hafa hafið endur-
reikning bæði styttri og lengri lána og hafa ekki talið
að það þyrfti að dæma þá í héraði til þess þannig að
maður væntir þess að Landsbankinn hefji nú þegar
þessa vinnu,“ segir Helgi, sem hefur boðað fulltrúa
Landsbankans og Lýsingar á fund efnahags- og við-
skiptanefndar á mánudag til að fara yfir málið.
„Bankarnir hafa nú farið ítrekað ranglega
fram gagnvart viðskiptavinum sínum í þessum
málum og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að
héraðsdómur nægi ekki til þess að Landsbank-
inn leiðrétti hagi viðskiptavina sinna.“
Lýsing sendi frá sér tilkynningu vegna
málsins í gær þar sem fram kemur að fyrir-
tækið telji dóminn ekki fordæmisgefandi
fyrir sín bílalán. - sh
Helgi Hjörvar boðar fulltrúa Landsbankans og Lýsingar á fund í kjölfar dóms:
Lán til styttri tíma lækka líka
HELGI HJÖRVAR
STJÓRNMÁL Stjórn Viðskiptaráðs
Íslands telur brýnt að aðildarvið-
ræður Íslands við Evrópusam-
bandið verði leiddar til lykta.
Þetta kemur fram í nýrri ályktun
stjórnarinnar.
Í ályktuninni segir að aðildar-
viðræðurnar séu lykilinn að
því að halda opnum möguleika
Íslands á tvíhliða upptöku evru.
Þá telur Viðskiptaráð mikilvægt
að lagt sé kapp á að ná sem allra
bestum samningi við ESB sem
síðan yrði lagður í dóm þjóðar-
innar. - mþl
Viðskiptaráð Íslands:
Vill ljúka aðild-
arviðræðum
GRIKKLAND, AP Grísk stjórnvöld
gera sér vonir um að fjármála-
ráðherrar evruríkjanna sautján
ákveði að greiða Grikkjum næstu
útborgun úr stöðugleikasjóði
ESB. Gríska þingið samþykkti
naumlega á miðvikudagskvöld
nýjasta niðurskurðarfrumvarp
ríkisstjórnarinnar, sem er skil-
yrði frekari fjárhagsaðstoðar.
Wolfgang Schäuble, fjármála-
ráðherra Þýskalands, segir þó
ólíklegt að ákvörðun verði tekin
í næstu viku. Þjóðverjar vilja
helst að Grikkir afgreiði fyrst
fjárlög fyrir næsta ár. - gb
Þingið samþykkti niðurskurð:
Grikkir bíða nú
næstu greiðslu
NAUMLEGA SAMÞYKKT Antonis Samaras
tekur í hendur ráðherra í lok þingfundar.
NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL „Verst er einangrunin
og að vera alltaf lélegastur í öllu
og síðastur í öllu,“ segir Ágúst
Kristmanns, faðir Inga Krist-
manns, ellefu ára drengs sem ekki
fær inni í Klettaskóla, skóla fyrir
börn með sérþarfir.
Menntamálaráðuneytið staðfesti
ákvörðun Klettaskóla um að synja
Inga um skólavist. Vísað er til
mats sem Greiningardeild ríkisins
gerði á Inga þegar hann var fimm
ára. Samkvæmt því sé greindar-
vísitala Inga 70 og hann þar með
ekki fatlaður í skilningi laga.
Talað er um greindarskerðingu
þegar vísitalan er 69 og lægri.
„Þeir segja að Ingi sé ekki fatl-
aður en hann er búinn að vera
fatlaður frá því hann var þriggja
ára. Hann er með væga þroska-
hömlun, hreyfiþroskaröskun og
ofvirkniröskun,“ segir Ágúst sem
kveður þær niðurstöður sem birt-
ast í úrskurði ráðuneytisins óskilj-
anlegar. Hið rétta sé að Ingi hafi
mælst með greindarvísitöluna 62
árið 2007. Í fyrra hafi Ingi svo
verið prófaður að nýju í Hörðu-
vallaskóla í Kópavogi, þar sem
hann hefur verið nemandi, og þá
mælst með vísitöluna 57.
Ágúst segir Inga hafa gengið
ágætlega út fjórða bekk. „Um leið
og hann byrjaði í fimmta bekk var
bilið orðið svo mikið milli hans
og jafnaldranna og það er orðið
enn þá meira núna í sjötta bekk.
Hann vill fá sama námsefni og
hinir krakkarnir eru með en hann
ræður ekki við það,“ segir Ágúst
sem kveður Inga líða illa í skól-
anum. Núna sé hann til hvíldar í
sérúrræði í tvo mánuði á vegum
Kópavogsbæjar.
„Ingi heldur sig mikið til hlés
vegna þess að hann getur ekki
gert það sem aðrir eru að gera og
þar af leiðandi upplifir hann sig
alltaf einan.
Hann er alltaf minnimáttar og
orðinn algerlega einangraður,“
segir Ágúst sem telur hugsanlegt
að Inga sé synjað um vist í Kletta-
skóla vegna opinberrar stefnu um
skóla án aðgreiningar.
„Mér finnst þeir teygja sig
ansi langt til að sanna að skóli án
aðgreiningar gangi en það gerir
hann alls ekki fyrir öll börn. Það
verður að vera millibilsúrræði
fyrir krakka eins og Inga, sem
eiga ekki heima í almenna skóla-
kerfinu og virðast ekki eiga heima
í Klettaskóla,“ segir Ágúst sem
segir að þau, foreldrarnir, séu
afar vonsviknir og hyggist leita
til umboðsmanns Alþingis.
„Það er ekki auðvelt skref
fyrir foreldra að sækja um í sér-
skóla fyrir barnið sitt. Ég væri
mjög feginn ef hann gæti verið í
almenna skólakerfinu og ætti þar
vini. En þannig er það ekki. Hann
á hins vegar vini í Klettaskóla,“
segir Ágúst og útskýrir að Ingi
fari í tvær vikur árlega í sumar-
búðir fyrir fatlaða. Þar séu meðal
annars börn úr Klettaskóla. Hann
komi ávallt heim gjörbreytt barn.
„Þar líður honum gríðarlega vel
og þar á hann vini. Hann fær bara
ekki að vera með þeim í skóla.“
gar@frettabladid.is
Synjað um skólavist
með einu vinunum
Ellefu ára drengur fær ekki inni í skóla fyrir börn með sérþarfir því hann sé
ekki greindarskertur líkt og foreldrarnir segja. Faðirinn segir hann einangrað-
an í hverfisskólanum. Hann eigi þó vini í sérskólanum sem hann kemst ekki í.
INGI KRISTMANNS Ágúst Kristmanns og María Björg Benediktsdóttir segja syni
sínum líða illa í hverfisskólanum og eru vonsvikin yfir að hann fái ekki aðgang að
skóla fyrir börn með sérþarfir þótt hann sé með þroskahömlun, hreyfiröskun og
ofvirkniröskun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Tölfræðingurinn Nate
Silver spáði rétt fyrir um útkom-
una í öllum 50 ríkjunum, sem og
í Washington D.C. í nýafstöðnum
forsetakosningum.
Silver heldur úti umfangsmiklu
kerfi sem tekur saman ótal skoð-
anakannanir að viðbættum öðrum
þáttum. Hann vakti fyrst athygli í
kosningunum 2008 þar sem hann
spáði rétt fyrir um úrslitin í 49
ríkjum og í öllum öldungadeildar-
kosningum.
Að þessu sinni spáði Silver
Obama öruggum sigri þrátt fyrir
að fjölmiðlar væru margir á því að
kosningarnar yrðu tvísýnar. Spáin
gekk eftir í öllum ríkjunum og í 32
af 33 kosningum til öldungadeild-
arinnar. - þj
Kosningar í Bandaríkjunum:
Silver reyndist
99% sannspár
VIÐSKIPTI Liv Bergþórsdóttir,
framkvæmdastjóri Nova, og Marel
voru verðlaunuð sem markaðs-
maður og markaðsfyrirtæki ársins
á Markaðsverðlaunum ÍMARK í
gær.
Þetta var í 22. sinn sem ÍMARK,
félag íslensks markaðsfólks,
veitti Markaðsverðlaunin en að
þessu sinni afhenti Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, þau.
Í rökstuðningi fyrir ákvörðun
ÍMARK segir að Liv hafi náð að
byggja upp sterka markaðshneigða
fyrirtækjamenningu hjá Nova sem
auk þess hafi sterka staðfærslu á
markaði. Þá er markaðsstarf Mar-
els sagt sterkt, vel skipulagt og
árangursríkt. - mþl
Markaðsverðlaun ÍMARK veitt:
Liv fékk mark-
aðsverðlaunin
GLAÐIR VERÐLAUNAHAFAR Þau Liv
Bergþórsdóttir og Ingólfur Örn Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs Marel, veittu Markaðsverðlaun-
unum viðtöku í gær.