Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 10
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING
Hver er staðan í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi?
Sjálfstæðismenn í Kraganum kjósa
um það á laugardag hvernig listi
þeirra verður skipaður fyrir næstu
alþingiskosningar. Bjarni Bene-
diktsson, formaður flokksins, er
talinn öruggur í fyrsta sætið. Meiri
spenna ríkir um næstu sæti.
Suðvesturkjördæmi hefur lengi
verið sterkt vígi Sjálfstæðisflokks-
ins, en hann fékk skell þar í síðustu
kosningum líkt og annars staðar.
Árið 2007 fékk flokkurinn 42,6 pró-
sent atkvæða og var það eina kjör-
dæmið þar sem fylgið fór yfir 40
prósent. Tveimur árum síðar fékk
hann 27,6% fylgi. Það er yfir lands-
fylginu, sem var 23,7 prósent, og
Kraginn var áfram sterkasta kjör-
dæmi Sjálfstæðisflokksins.
Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Kannanir sýna að flokkur-
inn hefur að nokkru náð sínum fyrri
styrk og hann mun bæta verulega
við sig fylgi í Suðvesturkjördæmi. Í
ofanálag fær kjördæmið þrettánda
þingmanninn, en vegna breytinga á
fólksfjölda færist einn þingmaður
frá Norðvestur- til Suðvesturkjör-
dæmis.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
gefur ekki kost á sér, en hinir þrír
þingmenn flokksins, Bjarni, Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir og Jón Gunn-
arsson, gera það allir. Ekki er óvar-
legt að ætla að flokkurinn nái sex
þingmönnum, á góðum degi gæti
sá sjöundi bæst við. Því eru þrjú til
fjögur þingsæti á lausu, þrátt fyrir
að þingmenn næðu allir endurkjöri.
Tveir eru í framboði til fyrsta
sætis; Bjarni og Ragnar Önundar-
son. Samkvæmt heimildarmönn-
um blaðsins er Bjarni öruggur
með efsta sætið, en hann verður að
vinna sannfærandi sigur sem for-
maður flokksins. Nú reynir á hvort
þau mál á viðskiptasviðinu sem
Bjarni hefur verið tengdur við hafa
áhrif á fylgi hans.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir og
Jón Gunnarsson tókust á um þriðja
sætið síðast og hafði Ragnheiður
betur. Líklega verður mjótt á mun-
unum hjá þeim núna.
Heimildarmenn blaðsins telja að
slagurinn um næstu sæti standi á
milli Óla Björns Kárasonar, Elínar
Hirst, Sigurlaugar Önnu Jóhanns-
dóttur, Bryndísar Loftsdóttur, Kar-
enar Elísabetar Halldórsdóttur og
Friðjóns R. Friðjónssonar. Þá gæti
Vilhjálmur Bjarnason blandað sér í
þann slag.
kolbeinn@frettabladid.is
Mosfellsbær
Kóp.
Kóp.
Kópavogur
Garðabær
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður
Álftanes
Seltjarnarnes
Kjósarhreppur
KORT/WIKIPEDIA
Fylgi flokksins
2007 2009
42,6% 27,6%
4 þingmenn
6 þingmenn
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í SV-kjördæmi
www.volkswagen.is
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
6“
á
lfl
eg
ur
, þ
ok
ul
jó
s
Volkswagen Polo
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km*
Þarfir okkar eru misjafnar og við leitum leiða til
þess að uppfylla þær. Volkswagen Polo er öruggur,
hagkvæmur og þægilegur bíll sem mætir þínum
þörfum fullkomlega.
Komdu og reynsluaktu nýjum Volkswagen Polo í dag.
Polo Trendline 1.2 bensín, 70 hestafla,
beinskiptur
Polo kostar aðeins frá
2.350.000 kr.
* Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Polo Trendline 1.2 TDI
Við fjármögnum þín bílakaupmiðað við Volkswagen Polo Trendline 1,2 TDI beinskiptan og
óverðtryggðan bílasamning með gullvildarkjörum frá Ergo til 84
mánaða og 25% útborgun. Hlutfallstala kostnaðar 11,25%.
29.898 kr.
á mánuði
Gott tækifæri fyrir nýliða
í vígi Sjálfstæðisflokksins
Allar líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn bæti umtalsverðu fylgi við sig í Suðvesturkjördæmi. Þrír til fjórir
nýir þingmenn gætu náð kjöri. Þátttaka í prófkjörinu um helgina segir til um hver styrkur flokksins er.
eru á kjörskrá fyrir prófkjörið.
14.800
BÚA SIG UNDIR LJÓSAHÁTÍÐ Listakona
í Hyderabad á Indlandi málar leirker til
að nota á ljósahátíðinni í næstu viku.
NORDICPHOTOS/AFP
Bjarni Benediktsson, Bryndís Loftsdóttir, Elín Hirst, Friðjón R. Friðjónsson,
Gunnlaugur Snær Ólafsson, Jón Gunnarsson, Karen Elísabet Halldórsdóttir,
Kjartan Örn Sigurðsson, Óli Björn Kárason, Ragnar Önundarson, Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Sveinn Halldórsson, Sævar
Már Gústafsson, Vilhjálmur Bjarnason og Þorgerður María Halldórsdóttir.
Sextán eru í framboði
HEILBRIGÐISMÁL Meirihluti fjár-
laganefndar leggur til að Land-
spítalinn fái 30 milljónir króna
aukalega á fjáraukalögum til þess
að mæta kostnaði við að fjarlægja
PIP-brjóstapúða.
Þegar hafa 42 milljónir verið
greiddar vegna 102 aðgerða sem
gerðar voru frá febrúar og fram í
september. Nú hefur dregið mjög
úr umsóknum um aðgerðir til að
fjarlægja púðana og þykir því lík-
legt að aðgerðirnar verði færri en
upphaflega var talið. Þó er miðað
við að allt að fimmtíu konur í við-
bót sæki eftir aðgerð. - þeb
Færri aðgerðir en talið var:
30 milljónir
vegna PIP-púða
BRJÓSTAPÚÐI Talið er að um 400 konur
hér á landi hafi verið með PIP-púða.
NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra sagði í
ræðu á Sjávarútvegsráðstefnunni í
gær að aldrei hefði verið jafnbrýn
þörf á sérstöku markaðsátaki fyrir
sjávarafurðir frá Íslandi á mörk-
uðum erlendis. Hann lýsti yfir vilja
sínum og atvinnuvegaráðherra til
að standa að sameiginlegu átaki
stjórnvalda og sjávarútvegsins og
benti á samstarf ríkisstjórnar og
ferðaþjónustu gegnum Inspired by
Iceland sem fordæmi.
Össur benti á að aukin þorsk-
gengd í Barentshafi hefði gert Norð-
mönnum og Rússum kleift að auka
kvóta sinn sem
nemur meira
en öllum þorsk-
afla á Íslandi.
„Þetta þýðir það
eitt að við getum
gert ráð fyrir
miklu harðari
samkeppni á
mörkuðum en
við höfum átt
í áður,“ sagði
Össur og að eina leiðin til að bregð-
ast við væri með stóraukinni mark-
aðssókn. „Sennilega hefur aldrei
verið jafnmikil þörf og nú á skipu-
lögðu átaki fyrir íslenskan sjávar-
útveg á mörkuðum erlendis,“ sagði
Össur.
Utanríkisráðherra sagði að til að
halda í við Norðmenn í markaðs-
málum þyrftu Íslendingar að verja
5-600 milljónum króna á ári í 30-40
markaðsverkefni á ári tengd sjávar-
útvegi.
Össur sagði fullan vilja til að
„taka höndum saman með grein-
inni og sveifla okkur saman í öflugt
markaðsátak fyrir íslenskan sjávar-
útveg“. Sú skoðun hans átti breiðan
samhljóm meðal annarra sem tóku
til máls á ráðstefnunni í gær. - shá
Utanríkisráðherra segir brýna þörf á samvinnu um markaðsátak í sjávarútvegi:
Stjórnvöld bjóða markaðsátak
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
SVÍÞJÓÐ Eftir að húseigendum í
Stokkhólmi var gert að greiða
gjald eftir þyngd heimilissorps
fleygja fleiri en áður því í rusla-
tunnur á almannafæri eða hjá
nágrannanum. Einn poki fyllir
tunnu á almannafæri, sem fyrir
vikið nýtist ekki sem skyldi.
Haft er eftir upplýsingafull-
trúa Avfall Sverige á vef Metro
að þetta sé í raun bara vandamál
fyrst eftir að gjaldið er sett á.
Menn átti sig fljótt á að gjaldið sé
það lágt að ekki borgi sig að fara
langar leiðir með ruslið. - ibs
Gjald á heimilissorp:
Ruslið í tunnu
nágrannans
Tryggja heitavatnsleiðsluna
Orkuveitan hefur í vikunni unnið að
viðgerð á bilunargjörnum kafla á
heitavatnslögninni frá Deildartungu-
hver. Vegna þessa hafa verið trufl-
anir á heitavatnsmiðlun á Akranesi, í
Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Jón
Pálmi Pálsson, bæjarstjóri á Akranesi,
segir fagnaðarefni að heitavatns-
lögnin sé treyst fyrir veturinn.
ORKUMÁL