Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 16
16 9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR R íkjandi stefna menntamálayfirvalda um skóla án aðgreiningar er enn á ný í brennidepli, að þessu sinni vegna staðfestingar menntamálaráðuneytisins á ákvörð- un skólastjórnenda í Klettaskóla í Reykjavík um að synja þroskahömluðum dreng úr Kópavogi um skólavist. Rökin fyrir þeirri synjun voru annars vegar að foreldrarnir hefðu farið rangt að við umsóknina og átt að beina henni að eigin sveitar- félagi, sem síðan hefði átt að semja við Reykjavíkurborg, og hins vegar að drengurinn væri ekki með nógu mikla þroskahömlun til að uppfylla inntökuskilyrði skól- ans. Seinni röksemdin er sú sem hart hefur verið deilt um undan- farin ár. Stefnan um skóla án aðgrein- ingar á sér um tuttugu ára sögu og byggir meðal annars á baráttu foreldra fatlaðra barna fyrir rétti þeirra til að njóta skólagöngu í almennum skóla með jafnöldrum sínum og fá þar nauðsynlega aðstoð, í stað þess að vera greind frá hinum í sérdeildum eða sér- skólum. Hún er líka í samræmi við margvíslega mannréttindasátt- mála, sem Ísland hefur undirritað. Óhætt er að fullyrða að þessi stefna hefur gagnvart miklum meirihluta nemenda með fötlun eða þroskafrávik skilað góðum árangri. En það eru líka til dæmi um að hún hefur alls ekki virkað. Foreldrar barna sem ekki hafa notið sín í almennum skóla, þrátt fyrir ýmsa aðstoð, hafa deilt hart á stefnu menntamálayfirvalda, meðal annars í viðtölum og greinum hér í Fréttablaðinu. Þrátt fyrir stefnuna um skóla án aðgreiningar hafa sérskólar áfram verið til. Fyrir nokkrum árum voru inntökuskilyrðin í Öskju- hlíðarskóla, sem nú hefur runnið inn í Klettaskóla, þrengd þannig að hann varð eingöngu fyrir mikið þroskaskert eða fjölfötluð börn. Það er ekki sízt þessi breyting sem er gagnrýnd, á þeirri forsendu að hún hafi búið til hóp sem líður illa í almennum skóla og einangrast frá jafnöldrunum, en á þess heldur ekki kost að ganga í sérskóla. Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK, Samtaka for- eldra grunnskólabarna í Reykjavík, skrifaði grein hér í blaðið fyrir nokkrum vikum og benti á að foreldrar fatlaðra og þroskahamlaðra barna létu yfirleitt á það reyna hvort barnið þeirra gæti gengið í sinn heimaskóla. Þegar það gengi ekki vel, væri ekki um margt að velja og það væru oftast þung spor að sækja um í sérskóla. Það breytir ekki því að það er mat margra foreldra að það sé betri kost- ur fyrir börn þeirra. Og yfirleitt eru það foreldrarnir sem vita hvað er barni þeirra fyrir beztu. Það er að minnsta kosti sérkennilegt að þrengt sé að valkostum þeirra með áðurgreindum hætti. Kristín Guðmundsdóttir, foreldri fatlaðs barns, skrifaði í Frétta- blaðið í fyrradag og spurði: „Fyrir hvern eða hverja er þessi stefna og hversu langt má hún ganga?“ Það er gild spurning. Stefna menntamálayfirvalda á að sjálfsögðu að vera að gera það sem hverju barni er fyrir beztu. Stefnan um skóla án aðgreiningar hentar flestum, en ekki öllum. Góð stefna má ekki verða kredda, sem gerir að verkum að foreldrar séu sviptir valfrelsinu um skóla sem þeir telja henta þörfum barnanna sinna. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Fjármál Jóhann Hauksson upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnarTil sölu glæsilegt heilsárshús við Sogsbakka í Gríms nes- og Grafnings hreppi. Eignin er á 6 þús fm eignarlandi á glæsilega kjarri vaxinni lóð með góðu útsýni. Um er að ræða sumar - hús sem er skráð 116 fm Stór sólpallur. Steypt plata með hitalögn. Hitaveita, heitur pottur. Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir um svæðið .Innréttað með Lúxus húsbúnaði og húsgögnum sem getur selst með. Verð 34 millj. Sjá nánar á eftirfarandi link: http://www.privateaccommodation.is/lodges-resorts-in-iceland/sogs- bakki-lodge/pictures/ Upplýsingar gefur Þorgrímur s. 892-1270 og Ólafur s.866-0927 Ekki falskar væntingar Stjórnarflokkarnir kynntu í maí fjárfestingaáætlun fyrir árin 2013 til 2015. Til stóð að 39 milljarðar færu í fjárfestingar á tímabilinu, þar af 16,4 á árinu 2013. Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði í Kastljósi sama dag að nú ríkti uppskerutími og fast land væri undir fótum varðandi fjármögnun. „Allir þeir sem tala fyrir auknum fjárfestingum eða nýjum verkefnum eða framlögum til rannsókna, eða hvað það nú er, án þess að benda á hvernig á að fjár- magna það, eru í raun að skapa falskar væntingar. Við vildum ekki gera það.“ Væntingar ekki uppfylltar Í gær var síðan tilkynnt hvernig fjár- mununum yrði varið árið 2013. Á þessum fimm og hálfa mánuði sem liðinn er síðan áætlunin var kynnt hefur fjármagnið fyrir það ár dregist saman úr 16,4 í 10,3 milljarða. Væntingarnar voru þá kannski hálffalskar? Fordæmin fyrir hendi Stjórnarflokkarnir eru því búnir að koma sér í þá stöðu að í staðinn fyrir að guma af tíu milljörðum í fjár- festingar árið 2013, sem er nokkuð, þurfa þeir að svara fyrir hvað varð um hina sex sem var lofað. Hvað framhaldið varðar ríkir óvissa, þar sem kjörtímabilinu lýkur í vor. Þarna hefðu menn getað lært af mis- tökum Umhverfisvina. Ólafur F. Magnússon tilkynnti fyrir þeirra hönd að ná ætti 60 þúsund undirskriftum gegn Fljótsdalsvirkjun. Þegar 45.386 var skilað, sem er nokkuð afrek, þurfti að svara fyrir þær sem vantaði miðað við vænt- ingarnar. kolbeinn@frettabladid.is Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Sigríður Andersen, sem situr nú á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ýjar að því í grein í Fréttablaðinu í gær að Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra hafi narrað fjölda fólks til íbúðarkaupa síðustu mán- uðina fyrir hrun. Sigríður segir að í lok árs 2007 hafi viðskiptabankarnir verið nær hættir að lána til íbúðakaupa vegna aðsteðjandi þrenginga. „Þá beitti Jóhanna Sigurðardóttir húsnæðismálaráðherra sér hins vegar fyrir auknum útlánaheimildum Íbúðalánasjóðs (ÍLS). Hámarkslán ÍLS voru hækkuð og slakað á kröfum um hámarks- veðsetningarhlutfall. Útlán sjóðsins tóku kipp við þessar aðgerðir,“ segir greinarhöf- undur. Ég vil kurteislega benda Sigríði á að Landsdómur sakfelldi þáverandi forsætis- ráðherra, Geir H. Haarde, á þessu ári fyrir að halda ekki fundi með ríkisstjórninni til að ræða alvarlega stöðu sem við blasti þegar í febrúar árið 2008. Hann ræddi málin áreiðanlega ekki við Jóhönnu sem tók við af honum á stóli forsætisráðherra og hefur haft forystu æ síðan um að endur- reisa efnahagslífið. Hún hefur einnig haft forgöngu um bætt verklag á vettvangi ríkis- stjórnarinnar til þess að tryggja að mikil- væg málefni ríkisins hafni ekki í höndum innvígðra og innmúraðra. Áður en Sigríður reynir aftur að koma höggi á Jóhönnu ætti hún að lesa frétta- tilkynningu forsætisráðuneytis Geirs H. Haarde dagsetta í júní 2008: „Mjög hefur hægt á veltu á fasteignamarkaði á yfir- standandi ári. Fasteignamarkaðurinn er mikilvægur hluti af hagkerfinu og veruleg kólnun hans myndi magna efnahagssam- drátt almennt og koma niður á íbúðarkaup- endum og íbúðareigendum,“ segir þar. Aðgerðirnar á miðju árinu 2008 voru eins konar neyðarráðstöfun. Þær voru ræddar í ríkisstjórn að frumkvæði þáver- andi forsætisráðherra og Seðlabankinn lagði blessun sína yfir þær. Þær fólust m.a. í nýjum lánaflokkum Íbúðalánasjóðs til að koma í veg fyrir að fasteignamarkaður- inn botnfrysi. Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkuðu úr 18 í 20 milljónir króna. Áður hafði Jóhanna beitt sér fyrir því að lækka 90% lánshlutfall frá stjórnartíð Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks niður í 80%. Ógöngurnar nú má frekar rekja til þess að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur afnámu félagslega íbúðakerfið og húsbréfakerfið og settu íbúðalán á frjálsan markað. Það er ólán Sigríðar að hafa ekki kynnt sér málið betur áður en hún reiddi til höggs. Sigríðarólánið Val um sérskóla eða almennan skóla: Góð stefna verði ekki vond kredda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.