Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 20

Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 20
Hitið ofninn í 70°C. Hitið olíuna á pönnu og brúnið kjötið á öllum hliðum. Leggið á pappírsklædda plötu og bakið í 3 klst. eða þar til að kjarnhitinn hefur náð 55°C. Hitið gasgrillið (má líka nota grillið í ofninum) og steikið kjötið í 2-3 mínútur á hvorri hlið eða þar til að kjarnhiti hefur náð 60°C. Leggið kjötið á álpappír og kryddið með sjávarsalti og nýmöluðum pipar og lokið. Hvílið kjötið í 15 mínútur áður en að það er skorið. Gott er að bera réttinn fram með bökuðum kartöflum og fersku salati. 1 kg nautalund 1 msk olía sjávarsalt og nýmalaður pipar BERNAISE SÓSA 350 g smjör 4 eggjarauður 2 msk hvítvínsedik 1/2 msk sterkt sinnep karrý á hnífsoddi cayenne pipar á hnífsoddi 1/4 nautakraftskubbur 1/2 msk þurrkað estragon sjávarsalt og nýmalaður pipar Bræðið smjörið í potti við vægan hita. Setjið eggjarauðurnar í pott ásamt ediki, sinnepi, karrý og cayenne pipar og þeytið vel yfir vatnsbaði þar til að blandan verður ljós og létt. Gætið þess að eggjarauðurnar hlaupi ekki. Leggið pottinn á vinnuborðið og hellið smjörinu smám saman við og hrærið vel á milli. Þegar 1/3 af smjörinu er kominn saman við blönduna er kjötkraftskubbi og estragoni bætt við og síðan haldið áfram að bæta smjörinu smám saman við þar til að það er uppurið. Kryddið til með salti og pipar. HÆGELDUÐ NAUTASTEIK MEÐ EKTA BERNAISE fyrir 4 G ild ir til 1 1. n óv em be r á m eð an b irg ði r e nd as t. 16“ pizza með skinku eða pepperoni með eldbökuðum botni, unnin úr fyrsta flokks hráefni. Botninn er svo toppaður með íslenskum maribó, cheddar og mozzarella ostablöndu. 16" PIZZA 2 TEGUNDIR afsláttur á kassa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.